Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2007, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2007, Síða 2
Ráðist var á Borgþór Gústafsson á heimili hans um hádegisbil á sunnu­ dag með þeim afleiðingum að hann lést. Nágranni Borgþórs, Þórarinn Kristmundur Gíslason, var hand­ tekinn á vettvangi og færður á brott í járnum. Vitni segja hann hafa verið ölvaðan. Lögreglu barst tilkynning um að Borgþór lægi meðvitundarlaus og blóðugur á heimili sínu á Hring­ braut 121, klukkan 13.30 á sunnu­ dag. Maðurinn sem tilkynnti lög­ reglu um atburðinn var handtekinn. Hann var yfirheyrður í gærdag og sit­ ur nú í gæsluvarðhaldi til 15. októb­ er. Lögregla segir að ástæðan fyrir gæsluvarðhaldinu sé sú að hann liggi undir grun vegna láts Borgþórs. Frið­ rik Smári Björgvinsson yfirlögreglu­ þjónn segir of snemmt að gefa upp hvort barefli hafi verið notað á Borg­ þór, en hann bar meðal annars höf­ uðáverka sem leiddu hann til dauða. Íbúðin varð að greni Íbúðin sem Borgþór bjó í er í eigu Félagsbústaða Reykjavíkur­ borgar. Eftir ítrekaðar kvartanir ná­ granna kröfðust Félagsbústaðir þess að Borgþór yrði borinn út. Málið fór fyrir dómstóla og kvað héraðsdómari upp úr að Borgþór skyldi áfram vera í íbúðinni vegna þess að hann hefði aðeins fengið eina formlega viðvör­ un. Samkvæmt leigusamningi þurfti hins vegar tvær. Georg Viðar Björnsson, hús­ vörður í húsinu á Hringbraut, sagði í viðtali við DV í septemberlok að Borgþór hefði breytt heimili sínu í nokkurs konar greni. „Það er hálfur bærinn á eftir honum og fólk kemur til hans bæði dag og nótt. Ef hann er ekki heima fer það bara inn um svala­ dyrnar,“ sagði Georg Viðar. Nágrönn­ um stóð stuggur af hegðun Borgþórs en hann og gestir hans skildu eftir sig sprautur og nálar í húsinu. Langur sakaferill „Nú er hann dáinn, blessaður,“ segir Georg Viðar. Hann segir Borg­ þór hafa átt í miklum vandræðum og meðal annars hafi hann rætt við sig um að hann óskaði þess helst að deyja. Hann segist hafa beðið hann að bíða rólegan um sinn, því aldrei væri að vita nema sólin tæki að skína. „Þetta var bara núna fyrir helgina,“ segir Georg. Georg sagði í viðtali við DV í síð­ asta mánuði að Borgþóri væri bráður bani búinn ef hann færi á götuna. „Ég vildi gjarnan hjálpa honum en vissi ekki hvað ég gat gert,“ sagði hann. Borgþór átti nær sleitulausan sakaferil frá árinu 1983. Hann hafði hlotið þrjátíu dóma fyrir brot á hegn­ ingarlögum, flesta vegna þjófnaða en einu sinni vegna líkamsárásar. Hann var síðast dæmdur í tveggja mánaða fangelsi í febrúar síðastliðinn fyrir að hafa pantað mat fyrir sautján þúsund krónur á veitingastaðnum Indókína, án þess að borga. Þegjum fólk í hel „Ástandið hjá okkur er þannig að við þegjum fólk í hel,“ segir Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri Geð­ hjálpar. Hann segir harmleikinn á Hringbrautinni aðeins vera einn af mörgum. „Ég tel að samfélaginu beri skylda til að bregðast við veikindum og erfiðleikum fóks áður en við les­ um fréttir af harmleik,“ segir hann. Sveinn bendir á að nýlega hafi hann rætt við mann sem barðist við fíkn og geðraskanir um langt ára­ bil. „Á endanum varð hann manni að bana. Nú er hann í nokkuð góðu jafnvægi á Sogni. Hann spurði mig hvers vegna honum væri hjálpað fyrst eftir að hafa drepið mann,“ seg­ ir Sveinn. Sigursteinn Másson, formað­ ur Öryrkjabandalags Íslands, tekur undir þetta með Sveini. „Við þurf­ um að horfa til þess sem kallað hefur verið snemmtæk íhlutun. Samfélag­ ið þarf að hafa kerfi sem getur brugð­ ist við í tæka tíð,“ segir Sigursteinn. þriðjudagur 9. október 20072 Fréttir DV Olía lak út Engan sakaði þegar vöru­ bifreið rakst á Höfðabakkabrú klukkan hálfellefu í gærmorgun. Bifreiðin skemmdist mikið og var slökkviliðið á höfuðborgar­ svæðinu kallað út til að hreinsa upp olíu og glussa sem lak úr bifreiðinni. Slysið varð með þeim hætti að krani á vörubifreiðinni rakst á brúna þegar bifreiðinni var ekið undir hana. Hreinsunarstarf slökkviliðsins gekk greiðlega. Ræðir tvíhliða samskipti Geir H. Haarde forsætisráð­ herra fundar í dag með Sali Ber­ isha, forsætisráðherra Albaníu. Á fundinum, sem fram fer í ráð­ herrabústaðnum á Tjarnargötu, ræða forsætisráðherrarnir um tvíhliða samskipti á milli Íslands og Albaníu. Þá verða á dagskrá önnur alþjóðamál sem tengjast ríkjunum. InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is baRinn til ólífis „Honum er bráður bani búinn ef hann fer á götuna. Ég vil gjarnan hjálpa honum en veit ekki hvað ég get gert,“ segir Georg Viðar Björnsson, húsvörður á Hringbraut 121 þar sem Félagsbústaðir eiga tólf íbúðir. Í mars flutti þar inn ógæfumaður i mikilli óreglu, Borgþór Gústafsson. „Hér gekk allt mjög vel fyrir sig þar til hann kom. Hann er með allan bæinn á eftir sér og hér finnast bæði sprautur og nálar. Þetta er algjör skelfing,“ seg-ir Georg. Reyndi að ræna Nóatún Nágrannar Borgþórs hafa orðið fyrir miklu ónæði eftir að hann kom í húsið vegna hávaða og drykkjuláta. „Hann hefur gert þetta að hálfgerðu greni eftir að hann flutti inn. Það er hálfur bærinn á eftir honum. Fólk kemur til hans bæði dag og nótt,“ seg-ir Georg. „Ef hann er ekki heima fer það bara inn um svaladyrnar.“Verslun Nóatúns, Lyf og heilsa og Myndlistarskólinn í Reykjavík eru einnig á Hringbraut 121. Í síðustu viku fór Borgþór í annarlegu ástandi inn í Nóatún, fyllti körfu af matvælum og gekk með hana framhjá afgreiðslukössum. Georg segist hafa heyrt óhljóð og farið út á svalir. „Þá hafði starfsfólk verslunarinnar stoppað hann af,“ segir Georg. Veikur maður Eftir ítrekaðar kvartanir nágranna sendu Félagsbústaðir Borgþór skriflega aðvörun þar sem þess var krafist að hann færi að húsreglum, ella þyrfti hann að flytja. Hegðun Borgþórs breyttist lítið. „Þetta er ákaflega veikur maður,“ bendir Georg á. „Hann ætti ekki að drekka áfengi.“Í kjölfarið kröfðust Félagsbústaðir þess að Borgþór yrði borinn út og var leitað til dómstóla. Fyrr í september var síðan úrskurðað að Félagsbústaðir hefðu ekki heimild til að vísa Borgþór í burtu þar sem í leigusamningi er kveðið á um að ekki nægi að senda eina viðvörun heldur tvær, áður en hægt er að krefjast útburðar. Engir fantar Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður Húseigendafélagsins, segir leigusamninga Félagsbústaða rýmri en venjan er. „Í húsaleigulögum segir að það þurfi aðeins eina aðvörun áður en hægt er að rifta samningi vegna óláta og ónæðis.“ Sigurður bendir á að Félagsbústaðir séu þekktir fyrir liðlegheit þegar kemur að leigjendum. „Þeir gera þetta ekki nema fokið sé í flest skjól. Þetta eru engir fantar.“ Sigurður Friðriksson, framkvæmdastjóri Félagsbústaða, segir leigusamninga leigjenda endurskoðaða eftir ákveðinn tíma. Þá er litið til þriggja þátta; hvort viðkomandi hafi staðið í skilum með greiðslur, hvort hann gangi vel um íbúðina eða valdi nágrönnum ónæði. „Ef þessi þrjú atriði eru í lagi göngum við frá ótímabundnum samningi. Ef ekki látum við hann renna sitt skeið.“ Neyðaraðgerðir Sigurður Friðriksson bendir á að stundum þurfi að grípa til neyð-araðgerða. „Einstaka sinnum kem-ur fyrir að hegðun leigjenda bitnar á nágrönnum og veldur þeim ónæði. Við höfum vissulega skyldur gagn-vart okkar leigjendum.“ Í þessu til-viki leigja bæði Borgþór og nágrannar hans hjá Félagsbústöðum. Sigurður harmar að málið hafi farið fyrir dóm-stóla. „Því miður urðu þarna mistök,“ segir hann og vísar til þess að aðeins hafi verið send ein aðvörun til Borg-þórs. Hann leggur einnig áherslu á að Félagsbústaðir hafi gert allt sem í þeirra valdi standi. Georg Viðar hefur áhyggjur af Borgþóri. „Hins vegar er ómögulegt að hann búi í fjölbýli eins og staðan er nú. Þetta reynir mikið á okkur hin.“ „Þetta er auðvitað hinn besti maður þegar hann er edrú,“ segir Georg sem telur nauðsynlegt að Borgþór fái inni þar sem hann fær viðeigandi aðstoð. Sjálfur stendur hann úrræðalaus „Hann verður að fá aðstoð. Gatan á ekki að vera fyrsti griðastaður hans,“ segir Georg og gerir þá kröfu að Reykjavíkurborg sinni skjólstæðingum sínum.Starfsfólk Nóatúns og Lyfja og heilsu sagðist ekki geta tjáð sig um málið vegna trúnaðar við viðskiptavini þegar til þess var leitað. föstudagur 28. september 2007 4 Fréttir DVSandkorn Vefmiðlar landsins fluttu í gær fréttir af því að Gunnar Stefán Möller Wathne hefði verið handtekinn á Indlandi. Gunnar og mál hans eru lesendum DV að sjálfsögðu vel kunnug eftir umfjöllun blaðsins en aðrir miðlar sögðu nú flestir í fyrsta sinn frá því að hann hefði verið eftirlýstur. Mbl.is var einn þeirra fjölmiðla sem sagði frá handtöku Gunnars. Það vakti þó athygli sumra lesenda vefjarins að þeim gafst ekki færi á að blogga um handtöku Wathne-sonarins ólíkt flestum öðrum fréttum á vefnum Mbl.is. Þingmenn mæta aftur til starfa á Alþingi á mánudag, þegar þing kemur saman eftir sumarfrí. Undanfarið hafa fastanefndir þingsins undirbúið starf vetrarins og svo hafa þingmenn verið duglegir að flakka um landið á ferðalögum með þingnefndum sem þeir eiga sæti í. Nú tekur hins vegar við starf þeirra í þingsal. Búast má við að stjórnarandstæðingar noti tækifærið til að láta ljós sitt skína, horfa menn ekki síst til umræðu um Grímseyjarferjumálið. Þar er ljóst að þeir sleppa Kristjáni L. Möller og Sturlu Böðvarssyni,núverandi og fyrrverandi samgönguráðherra, svo létt við gagnrýni. Annars verður fjárlaga- frumvarpið í brennidepli á mánudag. Árni Mathiesen fjármálaráð- herra kynnir þau um morguninn og þau verða að venju fyrsta málið sem er lagt fram á fyrsta degi þingsins. Fjárlagafrumvörp breytast oft í meðferð þingsins áður en þau verða að fjárlögum og hafa þingmenn stundum verið skammaðir fyrir eyðslusemi. Þó má vera ljóst að mestar breytingarnar eru iðulega eftir að fjárlög eru samþykkt, þá kemur að því að ráðherrar og stjórnendur ríkisstofnana og fyrirtækja þurfa að fara eftir fjárheimildum en fara svo oft fram úr heimildum. Egill Helgason og Halldór Guðmundsson héldu vart vatni þegar þeir skoðuðu myndskeið úr hreins- unarréttar- höldum Stalíns í Moskvu árið 1938. Þar var Halldór Laxness meðal áhorfenda og þóttu mikil tíðindi þegar mynd af honum í áhorfendaskaranum birtist í bók Halldórs um Nóbelskáldið fyrir nokkrum árum. Nú hefur fundist myndskeið þar sem sjá mátti skáldið. Sögðu þeir Egill og Halldór að ekki færi á milli mála hver væri þarna á ferð, svo áberandi og sérstakur væri vangasvipurinn. Einhverjir sjón-varpsáhorfendur sáu þó lítið annað en hvíta klessu, hvort sem myndinni, útsendingunni eða sjónvarpsskjánum var um að kenna. xxxxx vondur nágranni ERla hlyNsdóttiR blaðamaður skrifar: erla@dv.is Formaður húseigendafélagsins sigurður segir ljóst að vandamálið sé stórt þar sem félagsbústaðir hafi gripið til aðgerða. „Þetta er veikur maður. Hann ætti ekki að drekka áfengi.“ hringbraut 121 Húsvörður hefur áhyggjur og vill að borgþór fái aðstoð frá reykjavíkurborg. Einn angi kvótakerfisins sýnir sigFólk sem starfað hefur alla ævi, frá sextán ára aldri, er meðal þeirra fjörutíu sem missa vinnuna þegar hraðfrystihúsi Eskju á Eskifirði v rður lokað um áramótin. „Við funduðum með starfsfólkinu í fyrradag. Þetta er greinilega mikið áfall fyrir alla sem þarna koma nærri,“ segir Sverrir Már Albertsson, framkvæmdastjóri AFLs – starfsgreinafélags. Öllu starfsfólki í frystihúsinu verður sagt upp störfum um næstu mánaðamót. Um það bil helming-ur starfsfólksins er heimamenn sem margir hafa unnið fyrir Aðalstein Jónsson og fjölskyldu hans alla sína tíð. Hinn helmingurinn er fólk af er-lendu bergi brotið sem flust hefur til Eskifjarðar til þess að starfa við fisk-vinnslu. Sverrir segir að ef ekki væri fyrir aðra uppbyggingu í landshlutanum væru þessar uppsagnir hreint reiðarslag fyrir samfélagið. „Hér r einn angi kvótakerfisins að sýna sig,“ segir hann. Helga Jónsdóttir, bæjarstjóri í Fjarðabyggð, tekur undir með Sverri. „Það eru alltaf einhverjir sem verða illa úti þegar svona gerist. Okkur tekur þetta þungt,“ segir Helga. Hún segir að auðvitað hefði fólk kosið að rekstrargrundvöllur væri fyrir frystihúsinu þannig að fólk gæti gengið að tryggri atvinnu. „Enn hefur ekkert verið rætt við okkur hvað varðar mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar,“ segir Helga. Hún segir bæjarstjórnina hafa sent frá sér ályktun um nokkur viðfangsefni í bæjarfélaginu sem falli beint að stefnu ríkisstjórnarinnar í mótvægisaðgerðum. „Við þurfum að fylgja þessu eftir með samtölum við ráðherrana,“ segir hún. Útgerð og vinnsla Eskju á Eskifirði hét áður Hraðfrystihús Eskifjarðar. Frystihúsið var byggt upp af Aðalsteini Jónssyni, sem þekktur er sem Alli ríki, sem ók við stjórn þess þegar rekstur þess var kominn í ógöngur. Frystihúsið hefur verið rekið frá árin 1944. sigtryggur@dv.is aðalsteinn Jónsson alli ríki tók við rekstri Hraðfrystihúss eskifjarðar á erfiðleikaskeiði. reksturinn varð blómlegur. frystihúsinu verður lokað um áramótin vegna kvótaskerðingar. Sigtryggur Ari jóhAnnSSon blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is húsvörðurinn georg Viðar björnsson sagðist í viðtali við dV í september gjarnan vilja hjálpa borgþóri en hann vissi ekki hvernig það væri hægt. Borgþór gústafsson lést eftir barsmíðar á heimili sínu á Hringbraut á sunnudag. Krist- mundur Þórarinn gíslason, nágranni Borg- þórs, var leiddur á brott í járnum. Hann er grunaður um morðið. Félagsbústaðir reyndu nýverið að fá Borgþór borinn út vegna óreglu. Sigursteinn Másson og Sveinn Magnússon telja að samfélagið eigi að bregðast við áður en til hildarleiks kemur. hringbraut 121 Nágrannar segja borgþór gústafsson hafa breytt íbúð sinni í greni. Félagsbústaðir reykjavíkurborgar höfðu freistað þess að fá borgþór borinn út en dómari hafnaði. borgþór var laminn til dauða á heimili sínu á sunnudag. 28. SepteMBer dV sagði frá erfiðleikum á Hringbraut 121 í síðasta mánu i. Dorrit beðin afsökunar á framsetningu Vegna yfirlýsingar Dorritar Moussaieff um að hún borgi ekki fyrir umhverfisverðlaun þau er eiginmaður hennar Ólafur Ragnar Grímsson hlaut skal áréttað að forsetafrúin er nefnd meðal þeirra sem styrkja Louise T. Blouin­stofn­ unina. Reynt var í þrjá daga að fá viðbrögð forsetaembættis­ ins við vinnslu fréttarinnar en þau bárust ekki, eflaust vegna anna embættisins á erlendri grundu. Forsetafrúin segist ekki hafa greitt beinlínis fyrir verðlaunin og er ekki ástæða til að efast um þá fullyrð­ ingu hennar. Eftir stendur að hún er ásamt tóbaksrisan­ um Philip Morris tilgreind á meðal styrktaraðila þeirrar stofnunar sem veittu forsetan­ um verðlaunin. Þeirrar óná­ kvæmni gætti í forsíðutilvís­ un fréttarinnar að sagt var að forsetafrúin borgaði verðlaun­ in. Réttara hefði verið að segja að hún væri á meðal styrktar­ aðila stofnunarinnar. Dorrit er beðin velvirðingar á þeirri framsetningu. Kínverjar áhugasamir Kínversk yfirvöld hafa mikinn áhuga á að stórefla samvinnu við Ísland um jarð­ hitanýtingu. Þetta kom fram á fundi sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sótti í Xian Yang­borg í gær. Sin­ opec, þriðja stærsta orkufyr­ irtæki Kína, hefur einnig lýst yfir áhuga á frekara samstarfi en fyrirtækið reisir hitaveitu í Xian Yang í samvinnu við Glitni, Orkuveitu Reykjavík­ ur og Enex. Kínversk yfir­ völd hafa valið borgina sem miðstöð jarðhitanýtingar í landinu. Jóhanna Eiríksdóttir er hætt sem formaður Kraftlyftingasambandsins: Tveir menn þvinguðu mig út „Ég var þvinguð til afsagnar,“ seg­ ir Jóhanna Eiríksdóttir sem sagði af sér formennsku í Kraftlyftingasam­ bandi Íslands á fundi þess á föstu­ dag. Ástæðu þess að hún var þvinguð frá formennsku segir Jóhanna vera meðal annars þá að tilteknir menn vilji ekki aðild að Íþróttasambandi Íslands þar sem reglulega eru gerð lyfjapróf. Jóhanna hefur unnið fyrir félagið í sjö ár. „Ég er mjög sár,“ seg­ ir hún. Jóhanna segir tvo menn hafa haft forystu í því að hún var þvinguð til afsagnar en vill ekki nafngreina þá. Í Fréttablaðinu í gær kom hins veg­ ar fram að þessir menn væru Hjalti Úrsus Árnason og Auðunn Jónsson kraftlyftingamenn. Hjalti Úrsus segist ekkert skilja í þessum málflutningi. „Þessar ávirð­ ingar eru allt of alvarlegar til að hægt sé að láta sem ekkert sé. Engar þvinganir áttu sér stað,“ segir hann. „Ég lifi á ímyndinni. Þetta er mikill skaðvaldur,“ segir Hjalti Úr­ sus sem hefur unnið að miklu kynn­ ingarstarfi fyrir íþróttina hér á landi. Hann segist vilja veg kraftlyftinga sem mestan. Kraftlyftingafélagið er nú aðili að International Powerlifting Federat­ ion og þar eru reglulega gerðar lyfja­ prófanir. Á fundinum lagði stjórnin til að gengið yrði inn í annað fé­ lag, World Powerlifting Federation, WPF, þar sem ekki eru gerð lyfja­ próf. Jóhanna segist hafa lagt þetta fram til að fá stefnu félagsmanna á hreint. Hún vill ekki gefa upp hvort félagið hún sjálf kjósi enda hafi hún verið kosin til trúnaðarstarfa. Hjalti segir þá Auðun, ásamt flestum fundarmönnum, hafa verið alfarið á móti inngöngu í WPF. „Ég hef barist fyrir auknum lyfjapróf­ um,“ segir hann. Hjalti Úrsus seg­ ir að þess vegna hafi innganga í fé­ lagið ekki samræmst stefnumiðum þeirra. Jakob Baldursson hefur tek­ ið við formennsku í Kraftlyftinga­ sambandinu af Jóhönnu sem hætti síðasta föstudag en hann var áður varaformaður. erla@dv.is hjalti Úrsus Árnason Hjalti hefur barist fyrir auknum lyfjaprófunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.