Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2007, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2007, Síða 12
Margsannað er að sagan end-urtekur sig. Á seinustu öld og í bláenda þeirrar sem nú stendur voru áhrifamenn- irnir Alfreð Þorsteinsson, oddviti Fram- sóknarflokks, og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Sjálfstæðisflokki, sem samvaxnir tvíburar þótt þeir tilheyrðu stjórn og stjórnarandstöðu hjá Reykjavík og væru þannig opinberlega andstæð- ingar. Vinátta þeirra var á vitorði þeirra sem vildu vita og þeir báru samheitið Vilfreð. Tvíhöfðinn Vilfreð dafnaði innan borgarapparatsins og vináttan nýttist báðum í leik og starfi. Svarthöfði verður að viðurkenna að hafa dáðst að þeim báðum fyrir djör- fung og dug. Hver man til dæmis ekki eftir Línu net sem Alfreð stofnaði í óþökk Sjálfstæðisflokksins en með þegjandi samþykki Villa? Þegar Alfreð hvarf úr borgar-stjórn óx vegur Vil-hjálms mjög. Hann var fljótur að jafna sig á vinamissinum og kom sér upp nýjum vini, Birni Inga Hrafns- syni, sem reyndar var skæðasti óvinur Alfreðs og arftaki. Villi sá auðvitað að tvíhöfðinn gat ekki lifað með eitt höfuð og til varð tvíhöfðinn Vil- björn. Og þá hófst blómaskeiðið því tvíhöfði komst í meirihluta. Vilbjörn þurfti engan að spyrja og lýðræði varð óþarft. Nú varð til meirihluti innan borgarinnar sem byggðist á hug- myndafræði um tvíræði. Ekki einræði því það er auðvitað siðlaust fyrir- komulag. Og þeir félagar fóru ekki í neinn smábisness á borð við Línu net og risarækjueldi sem var hjartans mál Alfreðs. Nú var öll Orkuveitan undir og Vilbjörn ákvað að leggja undir sig heiminn. Milljarðar voru settir í útrás og Vilbjörn ákvað að stíga dansinn við íslensku víkingana sem höfðu náð svo frábærum árangri víða um heiminn. Vilbjörn þurfti engan að spyrja innan flokka sinna. Fyrir það fyrsta var Björn Ingi eini fulltrúi flokksins í borgarstjórn. Villa megin voru einhverjir krakkar sem áttu að halda sig við smærri mál innan borg- arinnar. Tvíhöfðinn stofnaði REI og vinir og vandamenn voru ráðnir inn á ofurlaunum og með kaupréttarsamn- inga sem áttu að færa þeim milljónir. Allt virtist ætla að ganga upp þegar krakkaskrattarnir í Sjálfstæðisflokkn- um fóru að ybba sig og þvæla um lýð- ræðislegar ákvarðanir. Blessuð sjálf- stæðisbörnin skildu ekki tvíræði og að það er helmingi betra fyrirkomulag en einræði. Þótt Villi reyndi að tala um fyrir þeim varð uppreisn í flokknum. Svarthöfða blöskrar bókstaflega þessi framganga ungu sjálfstæðismann- anna sem píndu Vilbjörn til að falla frá kaupréttarsamningunum og hætta við allt saman. Uppreisn um borð í borgarstjórn var staðreynd og það var að sjá sem byltingin myndi heppnast. Meðan allt þetta gekk yfir var Vilbjörn einhöfða og réð illa við ástandið. Hitt höfuðið hafði brugðið sér til Kína í þeim bráðnauðsynlegu erindum að opna þar frystigeymslu ásamt forsetanum og Dorritt. Tvíhöfðinn Vilbjörn var því aðeins hálfur maður í hörðum átökum við eigin borgar- stjórnarflokk. Og óeirðirnar héldu áfram að breiðast út og nú var ráð- ist á hinn helminginn af Vilbirni, sjálfan Björn Inga, sem var í sakleysi sínu í Kína eftir að hafa margfaldað verðmæti Orkuveitunnar. Formað- ur Framsóknarflokksins, Guðni Ágústsson, sem býr út á landi, tjáði sig mjög neikvætt um frammistöðu Vil- björns eins og honum kæmi við það sem gerist í hjarta Reykjavík- ur. Og einn ridd- arinn af öðrum hefur síðan ruðst fram á völlinn með brugðið sverð og reynt að höggva höfuðin af Vilbirni. Þetta eru auðvit- að ekkert annað en ofsóknir á hend- ur athafnastjórnmálamönnum sem hafa stofnað til tvíræðis og vinna samkvæmt því að heill borgarbúa og landsmanna allra. Svarthöfða er öllum lokið. þriðjudagur 9. október 200712 Umræða DV Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf. Stjórnarformaður: Hreinn loftsson framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir ritStjórar: reynir traustason og Sigurjón m. Egilsson ábm. fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson auglýSingaStjóri: Valdimar Birgisson Umbrot: dV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. aðaLnúmer 512 7000, ritstjórn 512 7010, Áskriftarsími 512 7080, augLýsingar 512 70 40. Vilbjörn, Vilfreð og svarthöfði Sigurjón M. EgilSSon ritStjóri Skrifar. Rúinn trausti Leiðari Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri nýtur ekki trausts samstarfsmanna sinna, hann nýtur ekki trausts minni-hlutans í borgarstjórn og hann nýtur ekki trausts borgarbúa. Vilhjálmur borgarstjóri fór á bak við allt og alla og þegar hann leyndi upplýsingum og samþykkti samruna Reykja- vik Energy Invest og Geysis Green Energy braut hann af sér. Samstarfsfólkið hefur haft þungar áhyggjur vegna þessa og klagað borgarstjóra til formanns og varaformanns Sjálfstæðisflokks- ins. Þrátt fyrir trúnaðarbrestina hafa þau ósáttu stigið fram og fullyrt að þau beri traust til Vil- hjálms. Því trúir enginn. Með framgöngu sinni hefur Vilhjálmur rúið sig trausti. Hann hefur orðið uppvís að valdahroka. Dæmin sanna að valdahroki fer stjórnmálamönnum illa og það sem verra er, hann versnar. Ekki er samtrygging stjórnmálamanna betri. Augljóst hefur ver- ið að Vilhjálmur er einangraður og hann hefur fyrirgert trausti sínu. Þrátt fyrir hversu augljóst málið er koma borgarfulltrúarn- ir fram og segja ágreining að baki og að traust til borgarstjóra sé óskert. Ekki er nokkur leið að trúa þessu óhikað. Reiðialdan í samfélaginu er mikil vegna þessa og þó svo borgarfulltrúarn- ir segist treysta borgarstjóra er svo ekki með þorra þjóðarinnar. Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi vinstri grænna, hefur haft forystu í gagnrýni á vinnu- brögðin. Hún segir í yfirlýsingu: „Ljóst er að borgarstjóri hefur teflt mjög alvarlega af sér í þessu máli. Hann hefur farið á bak við borgar- búa, samflokksmenn sína innan og utan borg- arstjórnar sem og aðra kjörna fulltrúa í borgar- stjórn. Hann hefur farið á svig við lög og tekið þátt í ósiðlegu atferli sem ofbýður fólki um allt land. Fólk vill ekki slíka stjórnendur. Borgarbú- ar treysta ekki slíkum borgarstjóra þótt borgar- fulltrúar Sjálfstæðisflokksins virðist greinilega ekki gera sömu kröfur.“ Því er ekki trúað að borgarstjóri hafi óskert traust. Sennilegast er að samtrygging stjórnmálamanna hafi ráðið gerðum borgar- fulltrúanna. Frekar en að gera borgarstjóra ábyrgan var sú auma leið farin að verja hann út á við. Ekki vegna þess sem hann gerði eða sagði. Nei, vegna þess að hann er stjórnmálamaður. Það er sennilega hárrétt hjá Svandísi Svavarsdóttur þegar hún segir: „Fólk vill ekki slíka stjórnendur. Borgarbúar treysta ekki slíkum borgarstjóra...“ „í nafni friðar líst mér vel á þetta. Vonandi hjálpar þetta okkur í baráttunni fyrir friði.“ Ragnheiður Júlíusdóttir, 66 ára fulltrúi í Ráðhúsi Reykjavíkur. „mér finnst þetta mjög flott framtak. ef þetta hjálpar til við að stuðla að friði í heiminum er þetta einfaldlega hið besta mál.“ Guðfinnur Sveinsson, 18 ára menntaskólanemi „Ég er hrifinn af þessu framtaki en á sjálfur eftir að sjá súluna til að leggja endanlegt mat á hana. það vantar ekki að hugmyndin er góð.“ Garðar Guðnason, 54 ára lyftueftirlitsmaður. „mér finnst þetta mjög gott mál. Ég ætla rétt að vona að súlan komi til með að minna okkur á friðarhugtakið um ókomna framtíð.“ Helgi Sæmundsson, 61 árs rafvirkjameistari. sandkorn n Marga rak í rogastans þegar Bjarni Ármannsson, stjórn- arformaður Reykjavík Energy Invest, dúkkaði upp í þættin- um Sunnudags- kvöld með Evu Maríu . Þáttur- inn bar þess keim að um hvítþvott væri að ræða þótt spjall- þáttadrottn- ingin reyndi að spyrja hann út í hið um- deilda brölt hans. Þá er hermt að Bjarni hafi ekki verið inni í myndinni sem viðmælandi en þáttur með Önnu Pálsdóttur dómkirkjupresti var tilbúinn. Bjarna var komið inn á seinustu stundu í drottningarviðtalið og pískrað er um að Eva María hafi verið beitt þrýstingi af toppun- um á RÚV. n Áhyggjur af meintu bruðli Sjónvarpsins fara vaxandi og margir reikna með því að niður- staðan um áramót verði mikill halli. En ýmislegt bendir þó til þess að sparnaður sé í gangi með sam- nýtingu á fólki. Kast- ljóssmaður- inn Sigmar Guðmunds- son og frétta- konan Þóra Arnórsdóttir stýra spurn- ingaþættinum Útsvari í Sjón- varpinu og Ragnhildur Stein- unn Jónsdóttir kastljósskona og Gísli Einarsson fréttamað- ur stjórna skemmtiþættinum Laugardagslögin. Gárungar bíða þess í ofvæni hvort Bogi Ágústs- son dúkki upp sem umsjónar- maður Stundarinnar okkar. n Kvikmyndagerðarmaður- inn Einar Þór Gunnlaugsson vinnur hörðum höndum að heimildamyndinni Norðvestur sem fjallar um snjóflóðin á Flat- eyri og í Súðavík. Kvikmynda- miðstöð Íslands hefur þegar styrkt verkefnið og Sjónvarpið hefur gefið viljayfirlýsingu um að kaupa myndina til sýninga á næstu ári. Reiknað er með að myndin veki mikla athygli en Einar Þór er á heimavelli, alinn upp á Hvilft í Öndundarfirði, örstutt frá Flateyri. Reiknað er með að myndin verði frumsýnd seinni hluta næsta árs. n Vandræðin í Frjálslynda flokknum eru síst að baki. Svo virðist sem grasrótin sé komin í stríð við forystuna og því er spáð að senn styttist í að Guðjón A. Kristjánsson formaður og Jón Magnússon alþingis- maður skili sér aftur heim í Sjálf- stæðisflokk- inn. Jón var snöggur upp á lagið í Silfri Egils þegar Valgerður Sverrisdóttir fitjaði upp á málinu og sagði að hún mætti eiga Kristin H. Gunnars- son. Valgerður brást föl og fá við tilboðinu. tVíræðið hvað finnst þér um friðargeislann í viðey? dómstóLL götunnar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.