Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2007, Qupperneq 15
DV Sport þriðjudagur 9. október 2007 15
Sport
Þriðjudagur 9. október 2007
sport@dv.is
Alfonso Alves skoraði sjö mörk Engin krísa hjá Liverpool
Sigurður ragnar EyjólfSSon Er á uEfa-námSkEiði mEð roy kEanE.
að námSkEiðinu loknu vErður hann mEnntaðaSti þjálfari landSinS. blS. 18.
Sigurvíma FH-inga var mikil þegar
Egill Már Markússon flautaði bikarúr-
slitaleikinn af á laugardag. Fögnuður
Hafnfirðinga var eðlilega gríðarlegur
enda fyrsti bikartitillinn kominn í hús.
Í öllum fagnaðarlátunum gleymdist
hins vegar bikarinn á hlaupabraut
Laugardalsvallar og þurftu starfs-
menn KSÍ að hrópa og kalla í FH-inga
til að láta vita að bikarinn hefði orð-
ið eftir.
„Ætli ég verði ekki að taka þetta á
mig sem fyrirliði liðsins,“ sagði Daði
Lárusson, markvörður FH, og hló.
„Þetta verður að skrifast á mig. Ekki
það að maður geti afsakað þetta en þá
var eðlilega heilmikið í gangi. Ég skelli
samt skuldinni á ykkur fjölmiðla-
menn. Það er aldrei friður fyrir ykkur
fjölmiðlamönnum eftir leiki. Ég var
tekinn í einhver fimm viðtöl eftir leik.
Það voru hinar og þessar fótboltasíð-
ur, blöðin sem og sjónvarpsstöðvarn-
ar. Það er orðið svo mikið um þetta,“
sagði Daði í léttum dúr.
Hann segir tíma hafa verið kom-
inn á að verða bikarmeistari. „Það var
gott að enda á titli og ég segi það að
þennan titil vantaði sárlega. Maður er
alltaf að verða ánægðari og ánægð-
ari með hverri stundinni sem líður
að hafa unnið þetta. Maður er í raun
bara rétt að melta þetta. Maður er í
raun búinn að vinna alla þá titla sem
eru í boði á þessu skeri. Það hefur ver-
ið einhver bikargrýla á okkur í þess-
um úrslitaleikjum. Það hefur ekki ver-
ið nein sérstök frammistaða í þessum
úrslitaleikjum sem við höfum komist
í. Þetta var einhver fjórða eða fimmta
tilraun okkar og svo höfum við kom-
ist nokkrum sinnum í undanúrslit og
drullað á okkur þar líka.“
Laugardalsvöllurinn var ekki FH-
ingum happadrjúgur hér áður fyrr
og ekki sterkasta vígi risans frá Hafn-
arfirði. „Hann hefur verið að sækja á,
það hefur aðeins verið að skána und-
anfarin ár frammistaða okkar þar.
Hérna áður fyrr var það bara dauði
og djöfull að fara á Laugardalsvöllinn
því það gekk ekkert hjá okkur,“ sagði
Daði.
benni@dv.is
FH-ingar urðu VISA-bikarmeistarar en í öllum fögnuðinum kom kæruleysi upp enda sigurvíman mikil:
Gleymdu bikarnum stundarkorn
Menntaðasti
þjálfari landsins
Hvað er að gerast?
birkir Sveinsson hjá kSÍ og jóhann
kristinsson vallarvörður létu FH-inga
vita að bikarinn hefði orðið eftir.