Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2007, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2007, Síða 17
DV Sport þriðjudagur 9. október 2007 17 Hléið er kærkomið Alan Curbishley, stjóri West Ham, er ánægður með það hlé sem kemur í ensku deildinni vegna landsleikja um næstu helgi. dean ashton, george McCartney og Luis boa Morte eiga allir við meiðsli að stríða og Curbishley vonast til að þessir leikmenn verði klárir í næsta deildarleik. „Ég þarf á þessu fríi að halda því ég veit ekki einu sinni hvort ég sé með ellefu heila leikmenn á þessari stundu. ef til vill hjálpar þetta hlé okkur, ég vona bara að allir okkar leikmenn komi heilir heim úr þessum landsleikjum,“ segir Curbishley. WrigHt-PHilliPs er klámHundur Hinn virti miðill the Sun segist hafa heimildir fyrir því að kantmaðurinn smái hjá Chelsea, Shaun Wright- Phillips, sé orðinn helsti styrktaraðili klámstöðvarinn- ar babe Central. Segir blaðið að Wright Phillips hafi sett 200 þús- und pund til styrktar stöðinni sem gerir henni kleift að fá alvöru leikkonur í hlutverkin. klámleikkonur verða seint taldar líklegar til að vinna óskarsverðlaun en nú mun babe Central verða Chelsea klámsins. Hafa mestu peningana á milli handanna og getur fengið fallegustu konurnar. blaðið segir einnig að Wright- Phillips sé fastagestur í stúdíói stöðvarinnar þar sem hann mæti gjarnan með félögum sínum og glápi á stúlkurnar þegar þær eru í vinnunni. diof Hættur með senegal El Hadji Diouf, leikmaður bolton, tilkynnti í gær að hann væri hættur að leika með senegalska landsliðinu. diouf er 26 ára og var fyrirliði Senegal en segist ekki geta leikið lengur fyrir hönd þjóðar sinnar. „Ég er hættur með landsliðinu. það eru svo mikil vandamál tengd því að spila fyrir það. það á að spila æfingaleik eftir vikutíma og ég veit ekki einu sinni við hvaða lið við erum að fara spila. þetta er ekki hægt. Svo þurfum við að borga fyrir allt uppihald og flug sjálfir og það er annað stórt vandamál. Ég á ekki von á því að ég skipti um skoðun,“ sagði diouf en hann er með um þrjár milljónir á viku hjá bolton. Hann á að baki rúmlega 30 landsleiki. Bruce að Hætta með BirmingHam? Steve Bruce viðurkennir að sex ár í starfi framkvæmdastjóra birmingham séu senn á enda runnin. bruce samþykkti samning við birmingham fyrir tímabilið, en eftir að ljóst var að yfirgnæfandi líkur eru á því að nýr eigandi birmingham verði milljarða- mæringurinn Carson Yeung, þykir staða bruce heldur ótrygg. „Ég verð nú að segja það að þetta lítur ekki vel út eins og staðan er núna,“ sagði bruce þegar hann var spurður um það hvort hann byggist við því að halda starfinu eftir að yfirtökunni væri lokið. „Við sjáum til hvað gerist þegar nýju eigendurnir koma inn en þangað til mun ég reyna að gera mitt besta,“ segir bruce. enski Boltinn Sam Allardyce, stjóri Newcastle, hefur lýst yfir áhyggjum af aðalstjörnu sinni, Michael Owen. Owen fór í kvið- slitsaðgerð fyrir skömmu en kom inn á á sunnudag gegn Everton og að sjálf- sögðu skoraði hann. Hann var valinn í enska landsliðið sem spilar tvo leiki á fjórum dögum og það líst Allardyce ekki allt of vel á. „Ég veit ekki hvort það sé rétt að láta hann spila tvo leiki á svona skömmum tíma rétt eftir að hafa farið í aðgerð en það er ekki ég sem ræð. Ég mun ræða við Steve McClaren landsliðsþjálfara. Fyrir mig skiptir máli að hafa hann til- tækan í lið Newcastle í hverjum leik. Hann fór í aðgerð hjá einum besta skurðlækni í heimi og jafnaði sig furðu fljótt.“ Owen sjálfur segir að það hafi ekki verið vandamál að spila svona skömmu eftir aðgerð. Ótrúlegt en satt var hann með saumana enn í sér þegar hann spilaði á móti Everton. En hann vill spila allar þær mínútur sem í boði eru fyrir enska liðið. „Auðvitað, stjór- inn hér og kannski einhverjir aðdá- endur efuðust hugsanlega um að ég væri tilbúinn. Ég hlusta með athygli á álit skurðlæknisins og hún sagði að ég mætti reyna á nárann eins mikið og ég gæti.“ Það sem er enn merkilegra er að Owen vildi byrja leikinn því hann var búinn að vinna að því hörðum hönd- um að koma sér í stand. „Að spila leik átta dögum eftir aðgerð með saumana enn í mér er nokkuð gott. Ég vann vel og kom mér í stand en það var ekki auðvelt. Það var pínu svekkjandi að byrja ekki leikinn því ég var búinn að æfa frá því á fimmtudag. Ég missti ekki af svo mörgum æfingum en stjórinn vildi að ég byrjaði á bekknum og kæmi ferskur þaðan.“ benni@dv.is Owen segist tilbúinn að spila fyrir enska landsliðið þótt stjóri hans sé ekki jafnhrifinn: AllArdyce hefur áhyggjur Enn með saumana Michael owen er enn með saumana eftir aðgerðina í sér. Úkraínumaðurinn Andryi Shevchenko er kominn í kunnuglega stöðu hjá Chelsea: færist neðar í goggunarröðinni LiverpooL Alfonso Alves, leikmaður Heer- enveen í Hollandi, varð um helgina fyrsti leikmaðurinn í efstu deild þar í landi til að skora sjö mörk í einum leik. Það gerði hann í leik Heeren- veen og Heracles, sem endaði 9-0 fyrir Heerenveen. Alves fæddist 30. janúar árið 1981 í brasilísku borginni Belo Horizonte. Hann er 186 cm á hæð og hefur skor- að eitt mark í sjö landsleikjum fyrir Brasilíu. Alves hóf sinn atvinnumannafer- il með Atletico Mineiro, sem er lið heimaborgar hans. Atletico Mineiro leikur í efstu deild í Brasilíu, eftir að hafa unnið B-deildina þar í landi á síðasta ári. Nokkrir frægir knattspyrnumenn hafa spilað með Atletico Mineiro í gegnum tíðina. Þar nægir að nefna leikmenn eins og Taffarel, fyrrver- andi landsliðsmarkvörð Brasilíu, Gilberto Silva, leikmann Arsen- al Cicinho og Mancini, leikmenn Roma, Lincoln, leikmann Galat- asaray og fyrrverandi leikmann Schalke, Dede, leikmann Dort- mund og Juliano Belletti, leikmann Chelsea. Það er því ljóst að Alves sver sig í hóp frambæriegra knattspyrnu- manna félagsins. En vinsælasti leik- maður Atletico Mineiro frá upphafi er þó leikmaður að nafni Reinaldo. Árið 1977 skoraði hann 28 mörk í átj- án leikjum, sem gerir 1,55 mörk í leik að meðaltali. Það er hæsta meðal- talskor í brasilísku deildinni frá upp- hafi. Fór til Svíþjóðar Frá Atletico Mineiro fór Alves til sænska liðsins Örgryte árið 2002. Hann lék tvö tímabil með Örgryte og skoraði 23 mörk í 39 leikjum. Malmö festi kaup á Alves árið 2004 og hjálp- aði liðinu að vinna sænska meistara- titilinn með því að skora fjórtán mörk í 24 leikjum á sínu fyrsta tímabili. Heerenveen keypti Alves frá Malmö árið 2006 fyrir 4,5 milljónir evra, um 386 milljónir króna, sem er hæsta upphæð sem Heerenveen hef- ur borgað fyrir leikmann. Heerenveen hefur í gegnum tíð- ina alið af sér nokkra frambærilega sóknarmenn, svo sem Ruud van Ni- stelrooy, Jon Dahl Tomasson, Klaas- Jan Huntelaar og Georgios Samaras. Alves stóð fyllilega undir vænt- ingum á sínu fyrsta tímabili með Heerenveen. Hann skoraði 34 mörk í 31 leik á síðustu leiktíð, sem er fé- lagsmet hjá Heerenveen, og varð markahæsti leikmaður hollensku deildarinnar. Í hóp með Romario og Ronaldo Alves varð þar með þriðji Brasil- íumaðurinn til að verða markahæsti leikmaður hollensku deildarinnar. Áður höfðu Brasilíumennirnir Rom- ario og Ronaldo fengið gullskóinn í Hollandi. Alves varð einnig annar Brasilíumaðurinn til að skora yfir 30 mörk í deildinni en Romario skoraði 30 mörk fyrir PSV, tímabilið 1994- 1995. Enska liðið Middlesbrough gekk á eftir Alves með grasið í skónum í sumar og Heerenveen og Middles- brough komust ekki að samkomu- lagi um kaupverð. Einnig var Alves orðaður við Ajax í sumar þegar Ajax seldi Wesley Sneijder til Real Madr- id. Alves átti við meiðsli að stríða í upphafi yfirstandandi leiktíðar og hefur aðeins komið við sögu í tveim- ur leikjum í hollensku deildinni til þessa. Alves minnti hins vegar hressi- lega á sig á sunnudaginn þegar hann skoraði sjö mörk í 9-0 sigri Heeren- veen á Heracles. Alves varð þar með fyrsti maðurinn til að skora sjö mörk í hollensku deildinni og skákar þar við ekki ómerkari mönnum en til dæm- is Johan Cruyff og Marco van Basten, sem báðir skoruðu sex mörk í einum leik á sínum tíma. DAguR SvEinn DAgBjARtSSOn blaðamaður skrifar: dagur@dv.is Alfonso Alves, leikmaður Heerenveen, gerði sér lítið fyrir og skoraði sjö mörk í leik gegn Heracles um helgina og varð þar með fyrsti leikmaðurinn til að skora sjö mörk í einum leik í hollensku deildinni. Skoraði sjö mörk í einum leik alfonso alves varð um helgina fyrsti maðurinn til að skora sjö mörk í einum leik í hollensku deildinni. Á spjöLd sögunnar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.