Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2007, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2007, Page 19
DV Góði hirðirinn þriðjudagur 9. október 2007 19 Gamlir gimsteinar Mikið úrval bóka er í góða hirðinum. ir utan á hverjum einasta degi. Það eru yfirleitt fastakúnnar sem eru að leita sér að einhverju sérstöku. Þá skiptir öllu máli að vera framarlega í röðinni til að auka líkur á að næla í bestu bitana,“ segir Anna. IKEA Pólverjanna Hún segir nýbúa stóran hluta kúnnahópsins. „Ég heyrði einhvern segja um daginn að Góði hirðirinn væri stundum kallaður IKEA Pól- verjanna,“ segir Anna og hlær. „Það er bara gaman að því og frábært að fólk skuli geta nýtt sér verslunina í jafnríkum mæli og gert er.“ Hún seg- ir að þó nýbúar séu stór hluti við- skiptavina séu allir hópar samfélags- ins á meðal kúnna. „Hingað eru allir velkomnir og við fáum fólk hingað af öllum stéttum, jafnt háa sem lága. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá fólk sem er að koma hingað í fyrsta skipti og upplifa búðina. Fólk verður stundum furðu lostið, bæði yfir verð- inu, vörunum og þeirri stemningu sem er í búðinni okkar. Við leggjum mikið upp úr vinalegu andrúmslofti. Margir koma hingað einungis til að hitta skemmtilegt fólk, spjalla og fá sér kaffisopa.“ Ágóðinn til líknarmála Í Góða hirðinum vinna hvorki fleiri né færri en þrettán manns. Anna segir ekki vanþörf á þeim mannskap. „Við verðum að hafa þetta marga til að anna því sem hér þarf að gera. Það er svo margt sem selst hratt að það er heilmikið verk að koma nýjum hlutum fyrir. Við höfum leitað eftir liðsauka hjá sam- félagsþjónum og þeir hafa reynst okkur einstaklega vel,“ segir Anna. Góði hirðirinn er í eigu Sorpu en markmið hans er að stuðla að end- urnotkun, minnka sóun og láta gott af sér leiða. Allur ágóði af sölu í Góða hirðinum rennur í lok hvers árs til góðgerðarmála. Aukin meðvitund fólks um nytjagáma hefur gert það að verkum að upphæðin sem versl- unin gefur til góðgerðarmála hækk- ar ár frá ári. Í fyrra veitti Góði hirð- irinn alls tíu milljónir króna til átta líknarfélaga. „Ég kem hingað fyrst og fremst til að leita mér að ljóðum. Ég hef fundið margar mjög góðar ljóðabækur hér í Góða hirðinum. Svo finn ég stundum aðra fallega eða nytsamlega hluti án þess að vera beinlínis að leita að þeim. Ég hef til dæmis keypt mér nokkra vasa, frystiskáp og kaffikönnu svo eitt- hvað sé nefnt. Ljóðin eru samt alltaf í uppáhaldi en ég er búinn að koma hingað reglulega í tvö eða þrjú ár.“ ÓlAfur SIGurðSSon 48 ára

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.