Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2007, Side 32
Framkvæmdir við uppsetningu
snjóframleiðslukerfis í Hlíðarfjalli
á Akureyri fóru 32 milljónir fram
úr áætlun og er það tæplega þriðj-
ungur þeirrar upphæðar sem upp-
haflega stóð til að framkvæmdirnar
myndu kosta.
„Ástæðan fyrir þessum umfram-
kostnaði liggur að stærstum hluta í
veðurfari á meðan á framkvæmd-
unum stóð,“ segir Ólafur Jónsson,
formaður íþróttaráðs á Akureyri.
„Úrkomumet var í fjallinu þetta
haust og var jarðvegurinn þar af
leiðandi mjög erfiður. Einnig var
hönnuninni breytt lítillega sökum
aðstæðna og nokkrum tækjum var
bætt við.“
Samkvæmt fyrirliggjandi gögn-
um nemur heildarkostnaður vegna
verkefnisins 138 milljónum króna,
en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á
106 milljónir króna. „Vissulega var
gert ráð fyrir einhverjum óvæntum
kostnaði eins og gert er þegar stór-
framkvæmdir eiga sér stað en þetta
fór því miður töluvert fram úr áætl-
un,“ segir Ólafur.
Íþróttaráð hefur óskað eftir því
við stjórn Vetraríþróttamiðstövar
Íslands að hún fjármagni áfallinn
viðbótarkostnað og þannig verk-
efnið í heild sinni. „Við vonumst
til að fá svör fljótlega,“ segir Ólafur
og bætir við að búnaðurinn hafi nú
þegar sannað sig. „Það var metað-
sókn í fjallinu í fyrra og nú fljótlega
förum við að framleiða snjó fyrir
veturinn. Með þessu verkefni vilj-
um við einnig geta miðlað reynslu
okkar til annarra skíðasvæða á
landinu.“
Skíðasamband Íslands flyt-
ur skrifstofur sínar til Akureyrar á
næstunni og einnig hefur Akureyr-
arbær boðið íslenska skíðalands-
liðinu að gera Hlíðarfjall að sínum
heimavelli. „Þetta mun hafa gríð-
arlega jákvæð áhrif á bæinn,“ segir
Ólafur. kolbrún@dv.is
„Ég veit ekki hvort ég var í einhverj-
um sjúklegum sálfræðihernaði,“
sagði Ólöf Ósk Erlendsdóttir fyr-
ir dómi í gær þar sem hún játaði að
hafa bundið mann niður og keflað
hann í því skyni að þvinga hann til að
láta af hendi verðmæti. Ólöf, ásamt
fjórum karlmönnum, er ákærð fyrir
frelsissviptingu, rán og húsbrot.
Keflaður með leðurgrímu
Í ákæru segir að Ólöf hafi bundið
manninn fastan með reipum og lím-
bandi, keflað hann með munnkúlu
með áfastri ól og sett leðurgrímu yfir
höfuð hans. Bæði gríman og munn-
kúlan eru oft notuð sem hjálpartæki
í bindi- og drottnunarkynlífi.
Arnar Óli Bjarnason og Ró-
bert Wayne Love er sakaðir um að
hafa pyntað húsráðanda með ýms-
um hætti. Arnar játaði að hafa hellt
kveikjarabensíni yfir húsráðanda, þar
sem hann var bundinn og keflaður
við stól, og hótað að kveikja í honum.
Arnar sagði Róbert hafa slegið fórn-
arlambið í höfuðið með járnkylfu og
Róbert sagði Arnar hafa hótað hús-
ráðanda því að sprauta hann með
óþekktum efnum þannig að hann
hlyti bana af. Hinir ákærðu neituðu
því að hafa hótað að mölva tennur
mannsins og bora í hnéskeljar hans.
Félagarnir höfðu á brott með sér
fartölvu, farsíma, prentara, stafræna
myndavél, vefmyndavél, DVD-spil-
ara, hleðsluborvél, verkfæri, sjókort
og leikfangabangsa. Þeir óku burt á
Toyota-bifreið húsráðanda og eru
þeir ákærðir fyrir að hafa neytt hann
til að afhenda þeim lyklana.
Fær martraðir
Maðurinn sagðist ekki vita ástæðu
árásarinnar en hélt því fram að hún
væri ekki vegna fíkniefnaskuldar.
Hann sagðist enn ekki hafa jafnað
sig á andlegum afleiðingum árásar-
innar, hann fái enn martraðir og sofi
illa. Um tíma hafi hann ekki þorað
út úr húsi af ótta við að hitta árásar-
mennina.
Málið var tekið fyrir í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Saksókn-
ari gerir refsikröfur ljósar síðar. Ólöf
hefur nú verið edrú í hálfan þriðja
mánuð. Fyrir dómi sagðist Ólöf hafa
neytt fíkniefna frá grunnskólaaldri,
með hléum. Hún sækir reglulega sál-
fræðiviðtöl og sinnir sjálfboðastarfi í
sunnudagaskóla Grafarvogskirkju.
Inn með blekkingum
DV skrifaði um málið í febrúar
og samkvæmt heimildum blaðsins
höfðu Ólöf Ósk og Arnar Óli Bjarna-
son, einn hinna ákærðu, setið að
fíkniefnaneyslu á heimili fórnar-
lambsins daginn áður en árásin átti
sér stað. Þetta var staðfest fyrir dómi
í gær.
Eftir að þau voru farin uppgötvaði
húsráðandi að ýmsir munir höfðu
horfið og hringdi í Ólöfu í því skyni
að fá þá aftur. Hún hafi komið undir
því yfirskini að skila þýfinu en í stað-
inn hleypt félögum sínum inn sem
stálu enn meiru.
þriðjudagur 9. október 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910
FréttasKot
5 1 2 7 0 7 0
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur.
Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Fokdýr snjór!
SUNNUDAGASKÓLASTÚLKA
KEFLAÐI MANN OG PYNTAÐI
Fimm ákærð fyrir að ráðast inn á heimili manns og ræna hann:
Fjölmenni í ráðhúsinu Handverkssýning í Ráðhúsi Reykjavíkur fangaði athygli margra í gær. Margvíslegt skart og klæðnaður
var meðal þess sem var til sýnis.
Snjóframleiðsla í Hlíðarfjalli fer þriðjung fram úr áætlunum:
Snjórinn kostaði 32 milljónum of mikið
KEA að selja
Norðlenska
Samningaviðræður standa nú
yfir um kaup Búsældar á 40 pró-
senta hlut KEA í kjötvörufyrirtæk-
inu Norðlenska.
Sigmundur Ófeigsson, fram-
kvæmdastjóri Norðlenska, segir
að árið 2002 þegar Norðlenska var
stofnað hafi verið gert samkomu-
lag þess efnis að eftir fimm ár gæfist
Búsæld, sem samanstendur af um
530 bændum, kostur á að kaupa 40
prósenta hlut KEA í Norðlenska.
Hlutafé Norðlenska er um 550
milljónir króna og því er upphæð-
in sem um er að ræða 220 milljón-
ir króna. Stjórn Búsældar hefur tvo
mánuði til að ákveða hvort gengið
verði að samningum. Ef það bregst
verður gripið til annarra ráðstafana
um hlut KEA.
Fullt hús
„Ég veit að það er til nokkuð
mikils ætlast að gestaboðið standi
næstu fimmtíu
ár í viðbót [...] en
megi það samt
standa sem allra,
allra lengst,“
segir Jón Viðar
Jónsson leiklist-
argagnrýnandi í
blaðinu í dag um
einleik Guðrún-
ar Ásmundsdóttur, Ævintýri í Iðnó,
sem frumsýndur var um nýliðna
helgi. Sýningin fær fullt hús hjá Jóni
Viðari. Einleikur Guðrúnar er settur
upp í tilefni af 110 ára afmæli Iðnó
og 50 ára leikafmæli Guðrúnar og
segir Jón Viðar að leikkonan gæti
ekki fagnað leikafmæli sínu á betri
hátt. „Hún er sögumaður af Guðs
náð, hún er leikari af Guðs náð.“
Sjábls.22
Barði sama
mann tvisvar
Sindri Vestfjörð Gunnars-
son var í gær dæmd-
ur í Héraðsdómi
Vestfjarða
í tveggja
mánaða skil-
orðsbundið
fangelsi fyrir
líkamsárás.
Aðfara-
nótt sunnudags-
ins 15. apríl á þessu
ári skallaði hann annan mann
í andlitið í heimahúsi á Bol-
ungarvík og sló hann nokkur
hnefahögg í andlitið, höfuðið
og herðarnar. Rúmum mánuði
síðar réðst Sindri aftur að sama
manninum, þá í Súðavík, þar
sem hann sló hann í andlitið og
sparkaði í höfuð hans. Sindri var
auk þess dæmdur til að greiða
þolandanum 365.872 krónur í
bætur og gert að greiða 20 þús-
und krónur í málskostnað.
Sífellt fleiri Danir kjósa að gerast
grænmetisætur. Meðlimum samtaka
danskra grænmetisæta hefur fjölgað
um tvö hundruð og fimmtíu manns
síðastliðin þrjú ár og telja nú um sex
hundruð meðlimi. Að sögn vara-
formanns samtakanna Sune Borfelt
geta ástæðurnar fyrir þessum auknu
vinsældum verið samspil nokkurra
þátta; heilsusjónarmið geta ráðið
þar nokkru, en ekki má útiloka að
hneyksli tengd kjötframleiðslu og
flutningi dýra í sláturhús hafi sitt að
segja. Varaformaðurinn spáir því að
mikil vakning muni eiga sér stað í
framtíðinni í þessu máli.
Grænmetis-
ætum fjölgar
skíðasvæðið Formaður íþróttaráðs
segir ástæður fyrir framúrkeyrslu liggja í
erfiðu veðri. Framkvæmdir fóru 32
milljónir fram úr áætlun.
Við borgum
það sem þarf
„Við munum greiða það sem
virkjunin kostar. Ef til kemur auka-
kostnaður mun-
um við greiða
hann,“ segir Sig-
urður Arnalds,
kynningarstjóri
Kárahnjúkavirkj-
unar hjá Lands-
virkjun. Áætlaðir
sjóðir fyrirtæk-
isins vegna ófyr-
irsjáanlegs kostnaðar við virkjunina
eru nánast uppurnir vegna tafa á
framkvæmdinni af jarðfræðilegum
ástæðum. Sigurður segir að ef kostn-
aður fari fram úr áætlunum muni
það bitna á hagkvæmni verkefnisins.
Hann sjái þó ekki fram á það. Heild-
arkostnaður er áætlaður um 100
milljarðar króna.
Erla hlynsdóttIr
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
ólöf ósk Einn fimm sakborninga sem
eru ákærðir fyrir að brjótast inn hjá
manni, pynda hann og ræna.
dv mynd ásgEIr