Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Síða 6
föstudagur 19. október 20076 Fréttir DV
Sandkorn
n Frekar klaufaleg prentvilla
varð í Fréttablaðinu í gær þar
sem sagt var frá hugmyndum
Svövu Johansen kaupmanns
og tískudrottningar um end-
urbyggingu
húss sem
hún og sam-
býlismaður
hennar voru
að kaupa í
Fossvogin-
um. Sambýl-
ismaðurinn
er nefndur
ofurfyrirsætan Björn Frið-
björnsson, en unnusti Svövu er
ofurfyrirsætan Björn Svein-
björnsson. Björn Friðbjörnsson
er hins vegar oftast kallaður for-
nöfnum sínum tveimur, Björn
Jörundur, og er söngvari.
n Auðmenn Íslands sameinist!
Mikið hefur verið rætt og ritað
um gengi íslenska landsliðs-
ins í fótbolta. Fjölmargir vilja
þjálfarann
burt en þá er
spurt: Hver á
að taka við?
Heyrst hefur
að fólk vilji
að auðmenn
Íslands,
sem eru
fjölmargir,
leggi eitt hundrað milljónir hver
í púkk og ráðinn verður flottur,
góður og ekki „já, takk“ maður
í starfið. Ef tólf auðmenn leggja
hundrað milljónir á ári í fjögur
ár er hægt að fá þjálfara á borð
við Bora Milotinuvich sem hef-
ur komið fjölmörgum smálið-
um á HM, Fabio Capello myndi
ekki segja nei við milljarði á ári í
laun, ekki heldur Jose Mourin-
ho og þá er ónefndur Marcelo
Lippi sem gerði Ítalíu að heims-
meisturum. Auðmenn Íslands
hafa sýnt nokkurn áhuga á fót-
bolta og lagt miklar fjárhæðir í
íslenskan fótbolta, af hverju ekki
í íslenska landsliðið?
n Mikill drifkraftur er í íbú-
um austur á Höfn í Hornafirði.
Fyrir tveimur vikum var þar
frumsýndur söngleikurinn Eitís
eftir Felix
Bergsson
í leikstjórn
Kristínar
G. Gests-
dóttur og
mun hann
gjörsamlega
hafa slegið
í gegn. Þar
má heyra gömul og góð lög eins
og Wake me up og Material
girl, sem og gamla rokkslagara
á borð við Final Countdown.
Vandað er til uppsetningar-
innar og þykir sjarmerandi að í
sýningunni koma fram feðgar,
mæðgur, systur og feðgin. Ljóst
er að Hornfirska skemmtifé-
lagið ætlar ekkert að gefa eftir í
samkeppni við önnur leikfélög
landsins.
n Sú breyting á þættinum Allt
í drasli á SkjáEinum að skipta
Heiðari snyrti Jónssyni út fyr-
ir útvarpskonuna Evu Ásrúnu
Albertsdóttur þykir hafa mis-
tekist, enda byggðust vinsældir
þáttarins mikið á skemmtilegri
framkomu Heiðars. Hann virð-
ist þó ekkert sakna sjónvarps-
ins og hefur í nógu að snú-
ast. Heiðar er fastráðinn sem
flugfreyja hjá Iceland Express,
kynnir og selur snyrtivörur í
verslunum og í Fríhöfninni og
stjórnar vefsíðunni brudurin.
is. Þá hefur Heiðar nóg að gera
í fyrirlestrahaldi og að auki
mun hann í næsta mánuði
endurvekja vinsæl námskeið
frá fyrri tíð. Þau eru ætluð
starfsfólki stórfyrirtækja og
fjalla um útlit og framkomu.
Hilton-hótelið var fyrsta fyrir-
tækið sem réð Heiðar til slíks
námskeiðshalds.
Sveitarfélagið Vesturbyggð býður nú öllum börnum upp á heitan mat í skólanum. Börn-
in á leikskólanum Tjarnarborg á Bíldudal tóku hraustlega til matar síns. Veitingamað-
urinn segir eldamennskuna vera kærkomna kjölfestu.
Af hverju fórstu ekki í
pollAgAllAnn í morgun?
„Við erum að fara að borða,“ segir
Magnús Hringur, fimm ára nem-
andi á leikskólanum Tjarnarborg á
Bíldudal.
Frá því í haust hefur verið boð-
ið upp á heitan mat í öllum skólum
í sveitarfélaginu Vesturbyggð. Til
Vesturbyggðar tilheyra sveitir og
bæir á sunnanverðum Vestfjörð-
um, að Tálknafirði undanskildum.
Veitingamaðurinn á Tálknafirði
segir fjörðinn nú vera kallaðan
Smuguna, vegna þess að hann sé
utan sameinaða sveitarfélagsins.
Það er Hannes Friðriksson, veit-
ingamaður á Bíldudal, sem sér um
matseldina fyrir grunn- og leik-
skólana á Bíldudal. „Þetta er ágætis
kjölfesta fyrir okkur hérna. Nú selj-
um við frá okkur rúmlega þrjátíu
skammta á hverjum virkjum degi
yfir veturinn,“ segir hann.
„Við vinnum þetta saman, Helga
Sveinbjörnsdóttir, konan mín, og
dóttir okkar, Birna Friðbjörg,“ seg-
ir Hannes.
Börnin ánægð
„Þau virðast vera hæstánægð
með þetta, börnin,“ segir Lára Þor-
kelsdóttir, fóstra á Tjarnarborg.
Þau virðast heldur ekki vera sér-
lega matvönd, börnin á Tjarnar-
borg. Þau fá sér öll kartöflur, sósu
og annað meðlæti með ofnbakaðri
ýsunni. „Ætlar þú ekki að borða
líka?“ spyr Tómas Henrý blaða-
manninn. „Af hverju fórst þú ekki í
pollagallann í morgun?“ spyr Jóna
Krista, undrandi á svip. Úrhellis-
rigning var utandyra og í stað þess
að eyða miklum tíma úti að leika
sér um morguninn höfðu börnin
farið í leiki og æfingar í íþróttahús-
inu.
Á Tjarnarborg eru nú níu börn,
en aðeins fimm þeirra eru allan
daginn og borða í skólanum. „Svo
eru þau 23 í grunnskólanum, sem
er aukning frá því í fyrra, en þá
voru þau átján,“ segir Lára.
Hátækniiðnað til Vestfjarða
Hannes, sem einnig rekur bens-
ínstöðina á Bíldudal og veitinga-
söluna Vegamót, segir að mikil
breyting hafi orðið á samfélaginu
á Bíldudal á síðustu árum. Þar hafi
búið yfir fjögur hundruð manns.
Nú séu Bílddælingar aðeins um
250.
„Það hillir engu að síður undir
betri tíð hjá okkur,“ segir hann. Þar
er hann að tala um olíuhreinsistöð
sem áætlað er að reisa í nágrenni
við Bíldudal. „Það er ekki endan-
lega búið að velja stöðinni stað, en
umhverfismatið er tilbúið og nú er
verið að semja við landeigendur,“
segir Hannes.
Hann bendir á að við það að fá
olíuhreinsistöð á sunanverða Vest-
ifirði geti skapast þar hátt í 2500 ný
störf. „Það eru hálaunastörf sem
krefjast þjálfunar. Það er það sem
við þurfum.“
Sigtryggur Ari jóHAnnSSon
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
„Það hillir engu að
síður undir betri tíð
hjá okkur.“
Í eldhúsinu Mæðgurnar Helga sveinbjörnsdóttir og birna friðbjörg Hannes-
dóttir undirbúa skólamatinn fyir börnin á bíldudal. ofnbökuð ýsa með kartöflum
og salati var á boðstólum þennan fimmtudaginn.
Á Vegamótum Hannes friðriksson
bindur miklar vonir við að olíuhreinsi-
stöð verði reist í nágrenni við bíldudal.
Hún geti skapað störf fyrir 2500
manns. Á bíldudal búa nú um 250
manns.
Börnin á tjarnarborg Þau
Magnús Hringur, tómas Henrý,
aníta sól, Jóna krista og svanur Þór
tóku hraustlega til matar síns. Með
þeim á myndinni er Lára Þorkels-
dóttir sem gætir þess að borðhaldið
fari ekki úr skorðum.