Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Qupperneq 12
föstudagur 19. október 200712 Helgarblað DV
FER HAFSKIPSMÁLIÐ
AFTUR FYRIR DÓM?
Rannsóknarnefnd skipuð af þeim sem dæmdir voru í Hafskipsmálinu hefur verið að störfum allt þetta ár.
Um tíu manns vinna að rannsókninni og mikil leynd hvílir yfir hverjir það eru. Þáttur stjórnmálamanna,
athafnamanna og fleiri verður rannsakaður ofan í kjölinn. Björgólfur Guðmundsson sem hlaut þyngstan
dóm er sannfærður um að ekki hafi verið varpað fullu ljósi á málið. Jóhannes Jónsson kaupmaður í Bón-
us skilur Björgólf vel og segist ákveðinn í að láta rannsaka Baugsmálið.
Njósnari í Þýskalandi nasista?
Ráðgátan um Olgu Tsékovu
Hin unga og fagra Olga
Tsékova átti ekkert nema
demantshring þegar
hún fór frá Moskvu 1920.
Leið hennar lá til Þýska-
lands og þar hún sló hún
í gegn á hvíta tjaldinu
og varð uppáhalds-
leikkona Hitlers – en
um leið starfaði hún
fyrir leyniþjónustu
Sovétríkjanna.
Olga
Mögnuð bók eftir hinn
geysivinsæla
Antony Beevor
Rannsóknarnefndin sem þeir Björ-
gólfur Guðmundsson, Páll Bragi
Kristjónsson og Ragnar Kjartans-
son hafa sett á fót vegna Hafskips-
málsins mun mögulega fara fram á
endurupptöku í málinu.
Málið sem var gífurlega um-
fangsmikið fór á sínum tíma alla
leið fyrir Hæstarétt Íslands. Haf-
skip var tekið til gjaldþrotaskipta
og voru sautján menn ákærð-
ir vegna málsins. Árið 1991 var
Björgólfur Guðmundsson meðal
annars dæmdur í 12 mánaða skil-
orðsbundið fangelsi. Jafnvel þótt
honum hafi vegnað gífurlega vel
í viðskiptum eftir það hefur hann
alltaf lifað í skugga Hafskipsmáls-
ins sem hefur erfiðað honum fram-
gang í viðskiptum að hans sögn.
Björgólfur er nú kominn á þann
stað í lífinu að hann vill ganga frá
ákveðnum lausum endum og það
mun vera hvatinn að baki rann-
sókninni.
Þáttur Jóns Baldvins Hanni-
balssonar er meðal annars til rann-
sóknar í málinu en honum er gefið
að sök að hafa rofið bankaleynd
með því að veifa trúnaðarskjölum
í ræðustól á Alþingi þegar málið
var í hámæli. Samkvæmt heimild-
um DV kemur einnig til greina að
rannsóknarnefndin skrifi bók eða
skýrslu um málið. Öllum mögu-
leikum mun vera haldið opnum.
Sannleikurinn kom ekki fram
Rannsókn málsins hófst í byrj-
un þessa árs þegar tveir ónafn-
greindir fræðimenn voru ráðnir til
þess að vinna ítarlega rannsókn á
bakgrunni Hafskipsmálsins. Síðan
þá hefur fjölgað í hópnum og vinna
nú um og yfir tíu manns að málinu.
Ekki eru þó allir í fullri vinnu. Mun
rannsókn málsins fara þannig fram
að eldri og reyndari sagnfræðingar
og lögfræðingar hafa yfirsýn yfir
málið og stjórna gangi rannsókn-
arinnar en þeir yngri og reynslu-
minni vinna að ýmsum öðrum að-
skildum verkefnum. Mikil leynd
hvílir yfir því hverjir standa að
rannsókninni og hefur verið lögð
áhersla á að upplýsa ekki hverjir
þeir eru.
Enn liggur ekki fyrir hvenær
niðurstöðu rannsóknarnefndar-
innar er að vænta, en það gæti orð-
ið í lok þessa árs eða í byrjun þess
næsta.
Hópurinn sem stendur að baki
rannsókninni er viss um að ekki
hafi allur sannleikur í málinu kom-
ið í ljós. Hann mun rannsaka með
ítarlegum hætti þátt bæði stjórn-
málamanna og lykilmanna úr at-
vinnulífinu í málinu. Ef ástæða
þykir til verður farið fram á að
málið verði tekið upp að nýju fyr-
ir dómstólum en slíkt getur verið
afar erfitt nema ný afgerandi sönn-
unargögn komi fram í málinu.
DV leitaði til landsþekktra
og virtra sagnfræðinga til þess að fá
þeirra álit á málinu. Enginn þeirra
sem DV ræddi við hafði heyrt af því
fyrr en nýlega að rannsókn máls-
ins hefði staðið yfir síðustu mán-
uði. Ásgeir Friðgeirsson, talsmað-
ur Björgólfs, sagðist í samtali við
DV ekki vilja tjá sig sérstaklega um
málið.
Málið hverfur aldrei
Í viðtali við breska blaðið Gu-
ardian í ágúst sagði Björgólfur
Guðmundsson að eftir dóminn í
Hæstarétti hefði hann lagt mikla
áherslu á að endurreisa nafn sitt
og fjölskyldu sinnar ásamt því að
ná aftur miklum styrk í viðskipt-
um. Um Hafskipsmálið sagði Björ-
gólfur í viðtalinu: „Þetta mál mun
aldrei hverfa. Aldrei. Fólk segir að
pólitísk átök hafi legið að baki mál-
inu en sjálfur vil ég ekki tjá mig um
það. Hins vegar myndi svona mál
aldrei geta endurtekið sig á Íslandi
í dag.“
Gífurlegt fjölmiðlafár varð í
kringum Hafskipsmálið þegar það
náði hámarki. Helgarpósturinn
sálugi var einn þeirra fjölmiðla
sem fjallaði með mjög afgerandi
hætti um málið. Á þeim tíma var
Halldór Halldórsson rit-
stjóri blaðsins. Þegar DV
leitaði álits hans á mál-
inu hafði hann ekki
heyrt af rann-
sókninni. Hann undraðist þó mjög
þessa aðgerð og hló við eftir að
hafa kynnt sér málið. „Já, er núna
hægt að kaupa hlutlæga rannsókn?
Það er búið að dæma þesa menn í
Hæstarétti. Geta þeir ekki gleymt?
Er æra fólks þá skyndilega til sölu?
En annars kemur mér þetta mál
ekkert sérstaklega við,“ segir hann.
Halldór segist heldur ekki óttast
að þáttur fjölmiðla í málinu verði
gerður tortryggilegur. „Nei, þetta
skiptir engu máli í dag.“
Ætlar að gera kvikmynd
Jóhannes Jónsson kaupmaður í
Bónus segist vel skilja að Björgólf-
ur Guðmundsson hafi farið út í það
að láta rannsaka Hafskipsmálið til
hlítar. „Hvort ég skil hann. Það er
nauðsynlegt að ráðast út í þessa
aðgerð svo sannleikurinn komi í
ljós og til þess að völd séu ekki mis-
notuð.“ Jóhannes er ákveðinn í að
láta rannsaka Baugsmálið til fulln-
ustu, en ekki sér ekki fyrir endann
á því. „Málinu er ekki lokið en um
leið og því verður lokið verður farið
á fullt með það.“ Þegar Baugsmál-
ið komst í hámæli var mikið fjallað
um að feðgarnir Jóhannes og Jón
Ásgeir vildu láta gera bíómynd um
málið. Jóhannes segir það enn vera
á döfinni. „Ég vona að bókarskrif
um málið muni væntanlega verða
að handriti bíómyndar. Við stönd-
um fastir á því.“
ValGeir Örn raGnarSSon
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Björgólfur Guðmundsson Vill að Hafskipsmálið verði rannsakað að fullu.
Jóhannes Jónsson Ætlar að láta rannsaka upphaf baugsmálsins og vill gera
kvikmynd um málið.
alþingi Þáttur stjórnmálamanna
og meðal annars Jóns baldvins
Hannibalssonar verður rannaskaður.
„Já, er núna Hægt að kaupa Hlutlæga rannsókn?“