Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Qupperneq 14
föstudagur 19. október 200714 Helgarblað DV
ÚTSALAN HJÁ SPORTLAND ER HAFIN Í ÁRMÚLA 17
Sími 581-1212
mán-fös 11-18 / lau 11-14
afslát
tur af
líkam
srækt
arfatn
aði
frá Be
tter B
odies
50% Troðfullar slár af vörum á 500, 1.000 og 2.000 kr.
Topphlaupavörur frá Mizuno,
Fótboltaskór og æfingafatnaður frá Umbro
Handboltavörurnar frá Kempa
„Þetta tók á. Fólk verður að borða
vel eftir að hafa leikið sér svona
fram eftir nóttu,“ segir Master Cos-
mic þar sem hann bíður eftir mat
sínum á Nings. Hann kom hing-
að til lands til að sýna bindilistir á
„fetish“ eða blætis-ballinu Freak-
out sem haldið var í Reykjavík um
síðustu helgi.
Þetta var í annað sinn sem ballið
er haldið og er stefnt á að það verði
árlegur viðburður. Um hundrað
manns mættu í sínu fínasta pússi;
leðri, latexi og hjúkkubúningum.
Áhugasamir gátu farið í hlutverka-
leiki og flengt náungann á sérstöku
leiksvæði. Master Cosmic var með
sérstakt skemmtiatriði.
Hann kemur vel fyrir, kurteis og
vinalegur. Það er öllum ljóst sem
einblína ekki á síðan leðurfrakkann
og svartar leðurbuxurnar. Hann er
með tvo stóra sérsmíðaða hringi,
hvorn á sinni hendi. Annan hring-
inn prýðir dreki en á hinum er höf-
uð úlfs. Hann segir hringina þunga
en finnist hann nakinn án þeirra.
Loks kemur maturinn og Mast-
er Cosmic tekur feginn til við asíska
kjúklingaréttinn sinn á Nings.
„Ég er löngu hættur að drekka
áfengi,“ segir hann. Þynnkan sem
hann þjáist af er ekki vegna áfeng-
isneyslu á ballinu kvöldið áður
heldur orkutaps.
Sex ára sadisti
Þetta er fyrsta heimsókn Mast-
er Cosmic til Íslands en yfirleitt fer
hann tvisvar til þrisvar á ári til út-
landa og sýnir á blætis-samkom-
um. „Lundúnir hafa verið kallaðar
BDSM-höfuðborg heimsins,“ segir
hann stoltur um heimaborg sína og
bendir á að þar séu um sextíu blæt-
is-klúbbar og tólf virk BDSM-félög.
Klúbbarnir eru allt frá því að vera
samkomustaðir fólks sem hefur
gaman af því að klæða sig létt upp í
leður og latex og upp í að vera full-
búnar dýflyssur með tilheyrandi
leiktækjum og búrum. „Við erum
heppin,“ segir hann, ánægður yfir
því að búa á stað þar sem úrvalið er
nánast endalaust.
Aðspurður hvenær hann vissi
að hann hefði þessar hneigðir segir
hann að þetta hafi blundað í hon-
um alla tíð. „Sadískar hugsanir
mínar eiga rætur sínar að rekja til
þess þegar ég var sex ára gamall.
Þetta er nokkuð sem ég byrgði þó
innra með mér. Síðan kom þó að
því að ég fann að ég varð að sýna
heiminum hver ég er,“ segir hann.
Fyrir sjö árum var Master Cos-
mic ungur athafnamaður á uppleið
og fylgdi ráðandi tísku. „Ég ætlaði
alltaf að verða vísindamaður,“ segir
hann. Tuttugu og átta ára fór hann
að lesa sér til um BDSM á netinu
og vissi að þetta var það sem hann
hafði alltaf leitað að. „Ég byrjaði að
klæða mig öðruvísi og svartur varð
ráðandi litur. Í dag á ég engar buxur
sem ekki eru úr svörtu leðri,“ seg-
ir hann og bendir á buxurnar sem
hann klæðist, máli sínu til staðfest-
ingar.
Nýtur þess að binda fólk
„Þetta áhugamál var orðið svo
stór hluti af lífi mínu að ég vildi ekki
fela það lengur.“ Í kjölfarið sagði
hann upp í vinnunni og starfaði
stuttlega sem meindýraeyðir. Í dag
rekur hann eigið fyrirtæki og talar
opinskátt um áhuga sinn á BDSM
við flesta sem heyra vilja. Fyrstu
viðbrögð fólks sem þekkti hann
voru öll á sama veg. „Allir sögðu að
það sæist langar leiðir hvað ég væri
ánægður. Það var eins og ég væri að
lifa lífinu í fyrsta skipti. Loksins gat
ég verið ég sjálfur,“ segir hann.
Master Cosmic segist vera mik-
ið fyrir súrrealíska leiki. „Ég nýt
þess að gera óhefðbundna hluti.
Ég fæ mikið út úr því að binda fólk
og finnst gaman að vefja fólk með
plastfilmu og hengja það upp í loft-
ið,“ segir hann glottandi.
„Valdaleikir og hlutverkaleik-
ir höfða mjög til mín,“ segir hann.
„Mér finnst mjög ánægjulegt þegar
einhver sýnir mér undirgefni. Það
er ákaflega gott að koma heim eft-
ir langan vinnudag og heyra: „Má
ég taka jakkann þinn, herra. Má ég
taka þig úr skónum og nudda á þér
fæturna?““
Ekki prenthæft
Á Freakout-ballinu var Master
Cosmic með nokkur sýningarat-
riði. „Ég nýt lífsins sjaldan jafn vel
og þegar ég er uppi á sviði,“ segir
hann. Hann er tregur til að fara út
í smáatriði.
„Síðasta atriðið var mjög langt.
Ég held að nákvæm lýsing á því
fengist ekki birt á prenti. Við skul-
um bara segja að þar átti margt
afar dónalegt sér stað og ung stúlka
skemmti sér konunglega,“ segir
hann og hlær.„Ég var mjög heppinn
að fá fallega konu mér til aðstoðar,“
segir hann dreyminn á svip.
Master Cosmic er með ráð fyr-
ir þá sem vilja vita hvað fer fram
á svona böllum: „Komdu á ball!
Farðu á blætis-klúbb! Ef ég lýsi því
sem þarna fór fram er það aðeins út
frá mínu sjónarhorni, byggt á minni
reynslu og mínum tilfinningum.
Þeir sem ekki voru á staðnum gera
sér ekki grein fyrir andrúmsloftinu
sem ríkti. Hljóðin, lyktin, spennan
og orkan sem fólk gefur frá sér á allt
sinn þátt í að skapa stemninguna.“
Hann hvetur áhugasama til að
svala forvitninni: „Það er allt í lagi
að vera óvirkur áhorfandi. Gægju-
hneigð er fullkomlega viðurkennt
blæti.“
Master Cosmic vonar að enn
meira líf fari að færast í tuskurnar
á Klakanum. „Ég vil gjarnan hafa
fleiri afsakanir til að koma aftur
til Íslands,“ segir hann og þýtur á
vit ungrar stúlku sem hann lék sér
með kvöldið áður og hafði auð-
mjúklega óskað eftir framhaldi.
Erla hlyNSdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
„Ég byrjaði að klæða mig öðruvísi og svartur
varð ráðandi litur. Í dag á ég engar buxur sem
ekki eru úr svörtu leðri.“
Master Cosmic sýndi
bindilistir á blætis-ball-
inu Freakout sem haldið
var í Reykjavík um síð-
ustu helgi. Sadískar
langanir hafa blundað
með honum frá því hann
var sex ára. Hann kom út
úr skápnum með þessar
langanir sínar fyrir sjö
árum. Í dag er hann
þekktur innan bresku
BDSM-senunnar. Hann
nýtur þess að binda fólk
og hefur sérstaklega
gaman af því að vefja
fólk með plastfilmu.
BDSM Í BORGINNI
BdSM-leikir Leðurfatnaður, latex og bindileikir
eru meðal þess sem falla undir bdsM.
(Myndin er ekki af viðMæLanda bLaðsins.)