Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Qupperneq 19
Fyrir nokkrum dögum var út-
varpsviðtal við Ástu Dís Óladóttur,
forstöðukonu nýrrar deildar háskól-
ans að Bifröst, sem mun sérhæfa sig í
stjórnun innan heilbrigðisþjónustu.
Hvers vegna skyldi þetta nám eiga
að freista fólks? Jú, umhverfið í heil-
brigðismálum er að breytast, sagði
forstöðukonan, og á eftir að breyt-
ast miklu meira. Enginn þurfti að
velkjast í vafa um að þar átti hún við
að einkavæðingin væri nú að hefja
innreið sína í heilbrigðisþjónustuna
fyrir alvöru: „Heilsan er orðin meiri
markaðsvara... yngra fólk er byrjað
að fjárfesta í heilsu...“
Fólk er farið að hugsa meira um
þessi mál en áður, líkt og gerst hef-
ur með öryggismálin, sagði Ásta Dís
ennfremur: „Öryggismál eru orðin
neysluvara.“ Sitthvað fleira í þessa
veru var sagt í þessu viðtali í morgun-
útvarpi RÚV 11. október síðastliðinn.
Þar var til dæmis staðhæft að einka-
rekstur myndi stuðla að nýsköpun í
heilbrigðisþjónustunni.
Vafasamar fullyrðingar
Hér er heldur betur talað tungu
markaðshyggjunnar. Ég leyfi mér
að efast stórlega um staðhæfingar
Ástu Dísar Óladóttur. Þannig er ljóst
að þótt hún sé vongóð um að heil-
brigðisþjónustan verði öll meira og
minna einkarekin innan skamms,
þá má hún vita að meirihluti þjóð-
arinnar er því andvígur samkvæmt
skoðanakönnunum, þannig að við
skulum ekkert gefa okkur í þessu
efni. Í annan stað eru það rannsókn-
ir í læknavísindum – yfirleitt á vegum
hins opnbera eða studdar af skatt-
fé, sem tryggt hafa framfarir á þessu
sviði. Það er einnig véfengjanlegt að
fólk hugsi meira um þessi mál nú en
áður. Baráttufólk fyrir velferðarrík-
inu á tuttugustu öldinni hugsaði um
fátt meira en leiðir til að tryggja góð-
ar almannatryggingar og heilbrigð-
isþjónustu – ekki fyrir sig sjálft sem
„fjárfestingu“ heldur sem ávinning
og lífsgæði fyrir samfélagið allt.
Fjármálaþjónusta fyrir konur?
Það er ekki bara Háskólinn að
Bifröst sem veðjar á einkavædda
heilbrigðisþjónustu. Þannig sló
Viðskiptablaðið því upp í stórfrétt
þriðjudaginn 16. október, að stofnað
hefði verið fjármálafyrirtækið Auð-
ur, sem muni bjóða upp á fjármála-
þjónustu „þar sem konur verða í fyr-
irrúmi“. Forsvarskonur fyrirtækisins,
Halla Tómasdóttir og Kristín Péturs-
dóttir, sögðust ætla að „bjóða upp á
fjárfestingarþjónustu með annars
konar áherslum og gildum. Það má
segja að við sjáum í aðra röndina
vaxandi fjár- og mannauð kvenna og
í hina röndina fjármálaumhverfi sem
ekki beinir sjónum mikið í þessa átt.
Auður ætlar að brúa þetta bil.“ Fyr-
irtækinu er ætlað að fjárfesta „góðri
langtímaarðsemi“. En hvar skyldu
nú tækifærin fyrir langtímagróða
helst vera að finna? Þau eru, sam-
kvæmt eigendum Auðar, ekki síst „á
sviði heilbrigðisþjónustu og mennta.
Þetta eru ört vaxandi þjónustugrein-
ar sem að mestu leyti hafa verið í
höndum hins opinbera, en fyrirsjá-
anlegt er að einkarekstur muni auk-
ast til að mæta auknum kröfum og
þörfum nútímasamfélags.“
Óþarfa milliliðir
Ég spyr, er það krafa og þörf nú-
túmasamfélags að fjárfestar geri sér
menntun ungviðisins og bágbor-
ið heilsufar fólks að féþúfu? Endur-
speglar þetta einhver sérstök kven-
leg gildi?
Hvers vegna reynir þetta fólk ekki
sjálft að finna upp eitthvað nýtt í stað
þess að troða sér inn í starfsemi sem
samfélagið hefur komið sér upp og
hefur gengið ágætlega að þróa svo
fremi sem fjármunir eru fyrir hendi?
„Frumkvöðlarnir“ segja að áfram
eigi skattborgarinn að borga – þeir
ætli hins vegar að tryggja fjárfestum
hlutdeild í framlagi hins opinbera í
„góðri langtímarðsemi“ eins og það
heitir. Í mínum huga er einfaldlega
verið að búa til óþarfa milliliði.
Pistill birtist fyrst á vefsíðunni og-
mundur.is.
Sandkassinn
Það væri að bera í bakkafull-
an lækinn að rita hér um ófarir
íslenska lands-
liðsins í knatt-
spyrnu. Um
það gæti ég
skrifað í löngu
og ljótu máli.
Ég gæti jafnvel
skrifað bók um
óánægju mína
með landsliðs-
þjálfarann, einstaka leikmenn,
landsliðsvalið og stjórn KSÍ. Það
ætla ég hins vegar ekki að gera.
Ég gæti auðveldlega kreist fram
enn eina vangaveltu um klúðrið
sem varð til þess að borgarstjórn-
armeirihlutinn féll.
Ég gæti skrifað um Björn Inga,
Gísla Martein, Alfreð Þorsteins,
Dag og jafnvel heila opnu um Villa
Vill. Þá gæti ég skrifað um óbeit
mína á umferðinni í Reykjavík og
ég sæi mér jafnvel fært að bölsótast
út í þau skrilljón hringtorg sem
liggja líkt og spælegg úti um alla
borg. Það ætla
ég þó heldur
ekki að gera.
Hugsanlega
gæti ég slegið
á létta strengi
og sagt frá því
þegar ég 14 ára
féll kylliflatur á
hálkubletti fyrir
framan fegurstu stúlku sem ég hef
á ævinni mætt gangandi. Líklega er
það tilviljun en það var í fyrsta og
eina skiptið sem ég sá hana.
Ég gæti sagt ykkur fjölmargar
hrakfallasögur af frænda mínum
en þær myndu aldrei rúmast í
þessum dálki. Ekki einu sinni sag-
an af því þegar hann tók hurðina af
bílnum sínum tveimur sekúndum
eftir að hann sat fastur í aftaka-
veðri í snjóskafli. Bíllinn losnaði
mjög óvænt en hurðin varð eftir á
nálægum ljósastaur. Þegar frændi
ætlaði að huga að viðgerðum dag-
inn eftir var bíllinn sléttfullur af
snjó. En það skiptir litlu máli, sú
saga myndi aldrei rúmast hér. Ekki
frekar en sagan af því þegar ég var
10 ára og vantaði veiðarfæri. Ég
klippti glænýjar, rándýrar flugulín-
ur karls föður míns í frumeindir, til
að ná einum spúni. Þann dag lærði
ég mörg ný og framandi orð sem
þó var ekki vel séð að ég tileinkaði
mér. Ég kæmi þó aldrei nema broti
af þeirri skammarræðu föður míns
í þennan dálk. Um hvað ætti ég að
skrifa?
Baldur Guðmundsson
Einkavæðingin freistar
ÖGmundur
JÓnasson
alþingismaður skrifar:
„Það er ekki bara
Háskólinn að Bifröst
sem veðjar á einka-
vædda heilbrigðis-
þjónustu.“
DV Umræða föstudagur 19. októbEr 2007 19
akureyri Hér sést akureyrarbær á fallegum haustdegi. Myndin er tekin ofan af toppi fjallsins Ytri-súlur
en ná 1213 metra hæð yfir sjávarmáli. DV-MYND EINARmyndin
P
lús
eð
a m
ínu
s
DV fyrir
25 árum
Spurningin
„Á hann eitthvert annað val, segja ekki
úrslitin allt?“ segir Þorvaldur
örlygsson, nýráðinn þjálfari fram í
Landsbankadeildinni í knattspyrnu,
um Eyjólf sverrisson.
Er kominn tími á
nýjan landsliðs-
þjálfara?
Mínusinn að þessu sinni fær
Eyjólfur Sverrisson, lands-
liðsþjálfari í knattspyrnu.
Náðarhögg hans var niðurlægj-
andi tap gegn Liechtenstein á
miðvikudag.
Blaða·maður KK • starfsmaður blaðs, sá sem hefur atvinnu
af að skrifa í blöð - Íslensk orðabók
„Ég heiti Sigurjón M. Egilsson og er ritstjóri DV.
Mér er ekki sama hvernig fjölmiðlum er stjórnað
eða hvernig fréttir þeirra eru unnar. Sjálfstæði,
kjarkur og sanngirni skiptir öllu hjá fjölmiðli eins
og DV. Fólk á skilið dagblað sem talar þeirra máli.
Ég tala þínu máli.“
Talar þínu máli
F
í
t
o
n
/
S
Í
A