Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Qupperneq 20
föstudagur 19. október 200720 Umræða DV
Daufur og dapur
„Það sem hefur vakið mesta athygli
mína er valdabreytingin í borgarstjórn
Reykjavíkur, þar sem orð stendur gegn
orði. Það er alveg ljóst að einhver lýgur,
hver það er veit ég ekki en einhver lýgur og
það þykir mönnum miður. Þetta er fólkið
sem var kosið til að stjórna borginni okkar
og tekst því greinilega ekki betur til en raun
ber vitni. Ég er vissulega mjög daufur og
dapur yfir úrslitum íslenska landsliðsins
á móti Liechtenstein. Ég get líklega tekið
undir með flestum þeim sem hafa tjáð sig
um málið, að þetta er eitt það daprasta sem
íslenskt knattspyrnulið hefur sýnt. Það er
mjög leiðinlegt að þetta skyldi enda svona.
Sem fyrrverandi landsliðsþjálfari tel ég að
knattspyrnuforystan þurfi ekki bara að fara
í naflaskoðun heldur heilan uppskurð. Það
þarf að endurskoða allt frá grunni og gefa
þjálfurum og leikmönnum betra svigrúm.
Af jákvæðari málum er ég mjög ánægð-
ur með að hafa skrifað undir samstarfs-
samning við KR og hlakka mikið til að
starfa með þeim.“
Logi Ólafsson, þjálfari KR
Móðursýki í Reykjavík
„Helsta frétt vikunnar að mínu mati er
sú að Grímseyjarferjan skuli enn vera á
floti. Ég tel bara að Grímseyingar eigi að fá
nýtt skip því ég tel að þetta skip muni ekki
duga sem þarf.
Það er svo vissulega komið upp mjög
sérstakt móðursýkiskast varðandi málefni
Reykjavíkur. Það er auðvitað stórfrétt. Í öll-
um svona málum, sem ganga svona hratt,
hvort sem er í umræðu eða afgreiðslu, fer
mjög margt úrskeiðis. Það skiptir miklu
máli þegar svona staða kemur upp í þjóð-
félaginu að menn sýni ró. Það fer allt úr
böndunum í svona látum, allir andskotast
í öllum og vilja helst bara ganga hver frá
öðrum.“
Árni Johnsen, alþingismaður
Sárt að tapa á sjálfsmörkum
„Það hefur verið eftirminnilegast í þess-
ari viku að horfa upp á sjálfstæðismenn í
Reykjavík hafa átt mjög erfitt með að taka
ósigrinum. Á hinn bóginn er það mjög skilj-
anlegt að þeir séu tapsárir, því þeir töpuðu
fyrir sjálfum sér. Menn eru misgóðir taparar,
sumir tapa með mikilli reisn, en sjálfstæð-
ismenn hafa vaðið út í alla forarpytti hinna
sigruðu. Skýringin er sú að þeir töpuðu á
sjálfsmörkum og það er mikið sárara en að
tapa fyrir einhverjum utanaðkomandi. Ég
vona hins vegar bara að þeir jafni sig fljótt
af því að þetta er gott og indælt fólk og vel
meinandi í bland.
Annars held ég að Dagur B. Eggertsson
verði flottur borgarstjóri. Um fótboltann
vil ég sem minnst segja enda er Jolli vinur
minn og ég veit að hann á eftir að reka af sér
slyðruorðið.“
“ Einar Kárason, rithöfundur
HVAÐ BAR HÆST í Vikunni?
Verbúð 8 við Geirsgötu, 101 Reykjavík, Sími 553 1500Opið 7-21 alla daga vikunnar
G S æ g r e i f a n s
Humarsúpa
r i l l ve is l a
Fiskur á grillið
Hin fullkomna
humarsúpa
samkvæmt New York Times
Skilið við vinstri græna
„Að mínu mati standa borgarstjórn-
armálin upp úr og þessi miklu umskipti í
borgarpólitíkinni. Mér finnst allur fram-
gangsmáti í þessu máli rangur. Fráfarandi
meirihluti sýndi að mínu mati ótrúlegt
getuleysi og vanhæfni í alla staði. Ég var
einnig ósátt með hver niðurstaðan var í
því hvernig við var brugðist því mér fannst
andrúmsloftið í borginni vera þannig að
það bæri að knýja fram nýjar kosning-
ar og leyfa kjósendum einu sinni að tjá
vilja sinn. Ég var líka ósátt við það hvern-
ig hlaupið var í nýtt samstarf án þess að
nokkur grunnur væri fyrir hendi. Það var
til dæmis ekki til neinn málefnasamning-
ur heldur einungis rætt um útdeilingu á
stólum. Þetta varð til þess að ég sagði skilið
við Vinstrihreyfinguna - grænt framboð,
þar sem ég kann ekki nýmál í orwellskum
skilningi.
Af erlendum vettvangi er það helst þessi
síðbúna yfirlýsing frá fyrrverandi yfir-
manni Bandaríkjahers í Írak um að innrás-
in hafi verið í alla staði röng.“
Birna Þórðardóttir, framkvæmdastjóri