Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Qupperneq 28
föstudagur 19. október 200728 Helgarblað DV Fyrsti kosningasigurinn Þótt hann saknaði vissulega Flat- eyrar og vinanna þar segist hann hafa verið heppinn að hefja nám við Álfta- mýrarskóla við komuna til Reykjavík- ur. „Ég man eiginlega ennþá dag- inn sem ég gekk inn í bekkinn minn í Álftamýrarskóla, sveitastrákur utan af landi. Forsjónin hagaði því þannig að ég gekk inn í ótrúlega heilsteypt- an bekk í litlum skóla miðað við reyk- vískt umhverfi og þar urðu til vináttu- bönd sem enginn skuggi hefur fallið á fram á þennan dag. Það var gæfa sem fylgdi því. Þótt við flyttum síðar í Vest- urbæinn tók ég bara strætó í skólann alla daga því Álftamýrarskóli var minn skóli, mitt umhverfi og mitt fólk.“ Að loknu stúdentsprófi frá MH hóf Björn Ingi nám í sagnfræði og stjórn- málafræði við Háskóla Íslands og þar hóf hann að taka þátt í pólitísku starfi með Röskvu. Þar segist hann líka hafa unnið sinn fyrsta kosningasigur. „Það var þegar ég sá konuna mína, Hólmfríði Rós Eyjólfsdóttur,“ segir hann kankvís. „Ég var í kosningabar- áttu í framboði fyrir Röskvu og hafði tekið eftir þessari ungu konu sem var við nám í hjúkrunarfræði. Leiðir okk- ar lágu svo saman endrum og eins þar til við gerðum okkur grein fyrir að sá neisti sem var til staðar var orð- inn að báli og síðan höfum við verið saman. Þess vegna segi ég alltaf að Hólmfríður sé minn fyrsti kosninga- sigur. Hólmfríður Rós er menntaður hjúkrunarfræðingur, en sneri sér að námi í verðbréfamiðlun sem hún lauk með miklum glæsibrag nýverið,“ segir hann, stoltur af sinni. Hér er fólk ekki skotið, bara svipt ærunni Í þeirri orrahríð sem staðið hefur yfir síðustu tvær vikurnar segir Björn Ingi að hann dáist að konu sinni og fjölskyldu. „Það er á svona stundum sem maður gerir sér grein fyrir hve miklu æðruleysi fólkið mitt býr yfir, því þetta hefur ábyggilega tekið meira á þau en mig,“ segir hann hugsi. „Á stundum sem þessum gerir maður sér grein fyrir hverjir eru raunverulegir vinir manns, því það er alltaf til nóg af fólki til að gleðjast með þér. Sannir vinir sýna sig þegar erfiðleikar steðja að. Það var svo sannarlega ekki tilhlökk- unarefni að taka þá ákvörðun sem ég tók og slíkt gerir maður ekki nema hafa þá grundvallarsannfæringu að maður sé að gera rétt. Ég hef lýst þess- ari reynslu síðustu vikna þannig að víða um heim eru menn skotnir ef þeir þjóna ekki valdsherrunum. Hér á Íslandi er bara reynt að taka af fólki æruna.“ Hann tekur mest nærri sér hvern- ig umrótið hefur náð til sona þeirra Hólmfríðar. Hrafn Ágúst átta ára spyr margs, en sá yngri, Eyjólfur Andri sem er að verða fjögurra ára, skynjar líka ólguna sem skapast hefur. „Það er ekki hægt að komast hjá því að þeir upplifi hvað er að gerast í samfélaginu. Myndir og viðtöl af pabba um allt.“ Sjálfur hefur hann auðvitað skiln- ing á því að fjölmiðlar fjalli um málin dag eftir dag. Björn Ingi hefur starfað á dagblöðum, vikuritum, í útvarpi og sjónvarpi en neitar því ekki að þessa dagana hugsi hann stundum með söknuði til þess tíma þegar hann var að skrifa bækur. „Það var öllu meiri ró í kringum mig þá!“ segir hann og brosir hlý- lega. „Ég var ópólitískur fram eft- ir árum, enda hef ég alltaf litið svo á að hlutverk blaðamannsins sé það að vera óháður. Ég var þingfréttaritari Morgunblaðsins og fannst það ynd- islegt starf. Á Alþingi öðlaðist ég vin- skap og sambönd við þingmenn úr öllum flokkum og gat þannig verið með mikið af fréttum úr þinginu. Ég ætlaði mér hins vegar aldrei að fara í stjórnmál og sá áhugi kom ekki fyrr en í stúdentapólitíkinni og með for- mennsku í félagi sagnfræðinema. Ég er einn af þessum mönnum sem geta ekki farið á húsfélagsfund öðruvísi en enda í trúnaðarstarfi. Svo vindur svona upp á sig.“ Persónuárásir virka ekki Árið 2003 var Björn Ingi, tæplega þrítugur að aldri, orðinn aðstoðar- maður Halldórs Ásgrímssonar utan- ríkisráðherra og fylgdi honum svo yfir í forsætisráðuneytið. Hann segir hlut- ina hafa gengið hratt fyrir sig. „Þegar ég var þingfréttamaður bauðst mér óvænt fyrir orð Halldórs Ásgrímssonar og fleiri vina minna í Framsóknarflokknum að verða fram- kvæmdastjóri þingflokksins. Því starfi gegndi ég um skeið og fór svo í fram- boð árið 2003. Ég varð varaþingmað- ur og skömmu síðar aðstoðarmaður utanríkisráðherra, fylgdi svo Halldóri yfir í forsætisráðuneytið þar til ég fór í mína eigin pólitík. Það var ákaflega ánægjulegt að vinna með Halldóri en það gekk líka óskaplega mikið á. Það komu upp stór og átakamikil mál í þjóðfélaginu eins og fjölmiðlamálið og Íraksmálið. Einhvern tíma verður sú saga sögð, en ég hef rifjað svolítið upp þessa tíma með sjálfum mér að undanförnu. Í þeim málum held ég að þeir eiginleikar Halldórs hafi komið vel fram að hann er maður málamiðl- unar; sífellt að reyna að finna lausn- ir á málunum en er ekki að hugsa um pólitíska stundarhagsmuni, heldur reynir að miðla málum. Það er ekki alltaf þakklátt í pólitík sem meint er af góðum hug. Gott dæmi um þetta var hið umdeilda mál þegar lagt var fram frumvarp til fjölmiðlalaga. Halldór lýsti andstöðu við það strax á fyrstu skrefum, en lenti svo í þeirri stöðu að vinna að málamiðlunum í því máli vikum og jafnvel mánuðum saman. Hann hlaut ekki miklar þakkir fyrir, miklu fremur skammir. Aldrei hefur komið fram hversu ósáttur hann var við þann leiðangur strax í fyrstu. Þessi saga verður örugglega sögð með ítar- legum hætti síðar.“ Þótt Björn Ingi líti vel út fer ekki framhjá mér að hann er orðinn þreytt- ur, enda ennþá veikur. Segist ekki hafa fengið tíma til að ná sér af flensu sem hann veiktist af í Kína fyrir hálfum mánuði. Dagurinn sem er að baki var óvenju erfiður, jafnvel fyrir mann með harðan skráp. „Ég var búinn að búa mig und- ir þessar árásir í dag og jafnvel verri en þær urðu. Ég hef samt þá trú á ís- lensku samfélagi að fólk vilji ekki hafa stjórnmálin þannig að ráðist sé per- sónulega að mönnum og ég hef feng- ið ótal viðbrögð frá fólki sem segir mér að því líki ekki svona árásir.“ Sveið undan orðunum Hann viðurkennir að sig hafi sviðið undan mörgum þeirra orða sem féllu í sal borgarstjórnar á þriðjudaginn. „Ég viðurkenni það alveg að á svona stundum eins og í dag velti ég fyrir mér hvers vegna ég væri að taka þátt í stjórnmálum; hvort það sé þess virði. Maður veltir líka fyrir sér hvort það sé möguleiki til framtíðar að fá alvörufólk í stjórnmálin ef þetta á að vera svona. Ég velti fyrir mér hvort það sé rétt af mér að bjóða sjálfum mér og fjölskyldu minni upp á svona umræð- ur sem eru miður uppbyggilegar og eru í rauninni bara harðvítugar per- sónulegar árásir. En þessar hugsanir vörðu bara stutta stund og svo ein- blíndi ég á að finna innri frið og styrk í sálinni og vonast til að þessu fólki líði betur ef það lætur sér svona orð um munn fara. Ég hef tamið mér það að gagnrýna fólk ekki persónulega eða kalla það einhverjum nöfnum. Það hefur mér ekki fundist hugguleg pól- itík og reyni að beita henni sem allra minnst. Auðvitað verður mér stund- um á í þeim efnum eins og öðrum, en þetta er eitthvað sem ég vil ekki standa fyrir í stjórnmálum. Sá sem kastar skít lendir stundum í því að fá hann framan í sig aftur.“ Fannst ég hafa verið blekktur Hann er vel meðvitaður um að fyrstu dagana var hann kallaður svik- arinn í hópnum og könnun síðdegis- þáttarins Reykjavík síðdegis sem gerð var um helgina og birt á mánudaginn sýndi að 72% hlustenda töldu Björn Inga Hrafnsson vera skúrk, 28% hetju. „Áróðurinn virkaði fyrstu dagana,“ segir hann hreint og beint. „Núna eru hins vegar sífellt fleiri að átta sig á hvernig staðan var innan Sjálfstæðis- flokksins þar sem hver höndin er upp á móti annarri eins og komið hefur fram í fréttum. Í þessu tilfelli held ég að rykið þurfi að setjast og þá dæm- ir sagan svona ákvarðanir. Ef ég væri að hugsa um mína hagsmuni eða þægindi í mínu lífi hefði ég aldrei tek- ið þessa ákvörðun. Á tveimur vikum umturnaðist allt. Við héldum stjórn- ar- og eigendafund hjá Orkuveitunni á miðvikudegi fyrir hálfum mánuði og þá um kvöldið hélt ég til Kína í opinberum erindagjörðum sem for- maður Faxaflóahafna í fylgdarliði for- setans. Þegar ég var kominn þangað eftir mjög langt ferðalag er þetta mál greinilega orðið mjög heitt og mikil misklíð innan raða Sjálfstæðisflokks- ins. Umræðan varð sífellt sérkenni- legri, vantraust á borgarstjórann myndaðist í hans eigin baklandi og blasti við öllum. Það varð mikil gagn- rýni á kaup einstakra starfsmanna og við viðurkenndum mistök í þeim efn- um og ákváðum að fella þau úr gildi. Ég flýtti för minni heim og kom heim á sunnudagskvöldi því ég mat það sem svo að það væri mikil og viðkvæm umræða í gangi. Þegar ég kom heim höfðu sjálfstæðismenn haldið nokkra fundi án borgarstjóra – meira að segja með formanni flokksins – kynntu sína niðurstöðu í fjölmiðlum um að þeir hafi orðið ásáttir um málið, borgar- stjóri hafi beðið sinn hóp afsökunar. Það væri niðurstaða þeirra að selja strax; opinber fyrirtæki eigi ekki að vera í svona rekstri.Síðar sama dag hélt ég sambærilegan fund með mínu fólki þar sem ég fékk fullt umboð til að halda áfram með þetta mál. Það sem hjálpaði ekki til í þessu máli var að sjálfstæðismenn skyldu vera jafn- innbyrðis ósammála um þessi mál og raun ber vitni. Auðvitað var mér orð- ið ljóst að þetta var mjög umdeilt mál innan þeirra raða en ég hafði unnið að þessu máli í rúmlega eitt og hálft ár þar sem sjálfstæðismenn höfðu haft forystu innan Orkuveitunnar. Skyndi- lega voru þeir orðinir svona ósáttir við eigin stefnu í málinu og það flækti málið. Gerendur voru nánir trúnað- armenn borgarstjóra, heilbrigðis- ráðherra og aðrir, þannig að staðan varð mjög flókin og greinilega mikl- ar innbyrðis deilur. Ég lýsti því strax yfir að ég teldi ekki skynsamlegt að selja hlut Orkuveitunnar í fyrirtæk- inu strax því það yrði arðbærara síð- ar. Það má segja að margt hafi verið miður heppilegt í þessari atburðarás. Þannig hafði ég um nokkurra daga skeið reynt að ná sambandi við borg- arstjóra án árangurs. Það gekk mik- ið á og þegar meirihlutinn náði loks að hittast á þriðjudag í síðustu viku funduðum við í fjóra klukkutíma án beinnar niðurstöðu. Við lýstum auð- vitað öll yfir vilja til að leysa málin, en það varð engin niðurstaða. Í fram- haldinu var mér orðið ljóst að þarna var komin gjá sem snerist ekki ein- vörðungu um þetta mál heldur fannst mér líka ég hálfpartinn hafa verið blekktur. Ég hafði tekið þátt í þessum leiðangri innan Orkuveitunnar og REI undir forystu Sjálfstæðisflokksins, sem hafði greinilega aldrei haft um- boð inn á við til að keyra það áfram. Skyndilega fannst mér eins og ég sæti uppi með mál sem mitt einkamál. Þegar síðan var farið að fórna einstök- um mönnum eins og Hauki Leós- syni stjórnarformanni, sem ég tel að hafi ekki gert neitt í þessu máli annað en vinna í samræmi við það umboð sem hann hafði og undir handleiðslu þeirra sem hann starfaði fyrir, var það kornið sem fyllti mælinn, auk þess sem háværar kröfur voru uppi um að fleiri stjórnendur Orkuveitunnar þyrftu að taka pokann sinn. Mér lík- aði þetta auðvitað alls ekki, það gekk eitthvað óskaplega mikið á, ekki síst í samskiptum við aðra flokka og aðrir verða að gera hreint fyrir sínum dyr- um í þeim efnum.“ Björn Ingi bendir á að umræðan innan raða Sjálfstæðisflokksins síð- ustu daga sýni að þar á bæ viti menn að eitthvað hafi farið verulega úr- skeiðis innandyra. „Ég efndi til opins stjórnmála- fundar í mínum flokki á Hverfisgöt- unni, hann var auglýstur í blöðunum og fór fram í beinni útsendingu. Í Val- höll hafa verið haldnir margir lokað- ir fundir, stofnaður sérstakur rann- sóknarréttur og hvaðeina. Á hvorum staðnum skyldu menn hafa eitthvað að fela?“ Ekki skúrkurinn í málinu Þannig að þú sprengdir ekki borg- arstjórnina? „Það er ekki rétt sem haldið hef- ur verið fram að ég hafi verið búinn að mynda nýjan meirihluta mörgum dögum fyrr. Það er fjarri lagi. Ég kom til landsins frá Kína og hóf þegar að taka til varna í málinu og skýra þau sjónarmið sem voru uppi. Mér fannst skrítið að vera einn í því hlutverki að verja mál sem unnið hafði verið að undir forystu Sjálfstæðisflokksins, en taldi og tel enn að það sé alltaf betra að svara fjölmiðlum og útskýra málin í stað þess að hörfa, víkjast undan erf- iðum spurningum eða koma sökinni yfir á aðra. Ég lýsti því auðvitað yfir að forsendur samstarfsins væru brostn- ar, en ég tel mig ekki vera skúrkinn í þessu máli. Það er miklu flóknara en svo. Ég hef haldið mig við staðreyndir málsins og ekki reynt að víkjast und- an minni ábyrgð á nokkrum stig- um þess. Ég hef verið varaformaður Orkuveitunnar, tekið þátt í stjórnun REI og verið stoltur af þessum útrás- arverkefnum. Síðan voru gerð mistök eins og með kaupréttarsamningana og ég hef beðist afsökunar á þeim og þeir hafa verið dregnir til baka. Aðal- atriðið er að maður hlaupist ekki frá máli sem maður hefur sjálfur tekið þátt í. Mér hefur þótt mjög óþægilegt að sjá Sjálfstæðisflokkinn hlaupast á brott frá máli sem hann sjálfur lagði til. Annaðhvort hefur maður stefnu og framtíðarsýn eða ekki. Ég tel að það geti verið eitt af bestu tækifær- um Íslands til framtíðar að virkja ork- una og vera í þessari útrás og hef alltaf haft mjög góða sannfæringu fyrir því. Auðvitað líður mér mjög illa vegna þeirra þungu orða sem hafa fallið í minn garð. Ég tek þetta mjög nærri mér, velti fyrir mér hvað ég gerði rétt og hvort ég hafi gert mistök. Aðalat- riði málsins er þó það, að allt var gert í mjög góðri trú og af góðum hug Það er kannski eftir á að hyggja mjög við- kvæmt svæði þegar opinber fyrirtæki eru að semja við einkafyrirtæki því nálgunin er svo mismunandi. Ann- að fyrirtækið er á markaði, þarf að gæta að trúnaði og vinna hratt; opin- beri aðilinn þarf að fylgja öðrum regl- um og þegar hraðinn er mikill gera menn mistök sem er slæmt. Þá verða aukaatriði aðalatriði og öfugt. Þessi góðu mál, þessi samruni, hafa fallið algjörlega í skuggann af minni mál- um sem lukkuðust ekki nægilega vel. Ég hef aldrei reynt að draga úr minni ábyrgð þar. Mín mistök voru kannski þau helst að hafa ekki velt nægilega fyrir mér málinu í heild sinni, hvort það væri nægilega þroskað og hver viðbrögðin yrðu, en ég hafði bara það
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.