Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Page 33
föstudagur 19. október 2007DV Sport 33 Alltaf stemning þegar þessi tvö nágrannalið mætast. Everton vann 3–0 síðast þegar þessi tvö lið mættust á Goodison Park, þar sem Jose Reina gaf Everton þriðja og síðasta markið. Hann gerir lítið af því þessa dagana. Everton getur komist upp að hlið Liverpool í deildinni með sigri. Liverpool er hins vegar enn taplaust í deildinni en hefur eilítið verið að dala í síðustu leikjum. Everton vinnur þennan leik 2–1. 1 á Lengjunni. Efsta liðið mætir hér næstneðsta liðinu. Arsenal er taplaust í deildinni og hefur unnið alla fimm heimaleiki sína til þessa, með markatöluna 14:4 á heimavelli. Bolton hefur aftur á móti ekki unnið útileik til þessa, gert eitt jafntefli og tapað þremur. Bolton verður engin fyrirstaða fyrir Arsenal í þessum leik og aðeins spurning hve stór sigur heimamanna verður. DV Sport spáir 4–0 sigri og setur 1 á Lengjuna. Blackburn virðist einhverra hluta vegna líða betur á útivöllum en á sínum eigin heimavelli. Reading er hins vegar að ganga í gegnum erfiða tíma og rétt marði sigur á Derby í síðustu umferð. Reading stóð sig vel á síðustu leiktíð en er nú að ganga í gegnum erfitt annað tímabil í úrvalsdeildinni, sem oft hefur reynst liðum erfitt. Blackburn er í vandræðum með meiðsli sóknarmanna sinna en fer með 1–0 sigur af hólmi. 1 á Lengjunni. Þetta verður sannkölluð flugeldasýning og mörkin láta ekki á sér standa. Hér mætast tvö lið sem munu berjast um fall í vetur og til að halda sæti sínu þurfa þau að vinna leiki gegn þeim liðum sem þau spila við. Fulham hefur verið óheppið það sem af er og Lawrie Sanchez er ósáttur við marga dóma sem hafa fallið. Hrútarnir í Derby mæta dýrvitlausir í þennan leik, vinna 3–2 og Ævar Ákason hoppar hæð sína af kæti. 2 á Lengjunni. Manchester City hefur komið skemmtilega á óvart og Sven Göran Eriksson byggir upp gott lið með blöndu af ungum og reyndum leikmönnum. Birmingham spilar hins vegar stífan varnarleik og getur staðið í hvaða liði sem er ef sá gállinn er á liðinu. Steve Bruce er undir pressu og þarf á sigri að halda til að ganga í augun á nýjum eiganda félagsins. Honum verður hins vegar ekki að ósk sinni og heimamenn vinna 3–1. 1 á Lengjunni. Middlesbrough hefur haft ágætis tak á Chelsea á heimavelli sínum og unnið tvær síðustu viðureignir liðanna á Riverside-vellinum. Chelsea á í vanda og óljóst er hvort John Terry verði með liðinu. Didier Drogba er í banni og verður því ekki með. Middlesbrough á einnig í vandræðum með að manna framherjastöður sínar, þar sem Mido á við meiðsli að stríða. Liðin fá jafnan hlut og leikurinn fer 0–0. X á Lengjunni. Wigan hóf leiktíðina af krafti en hefur gefið eftir að undanförnu. Portsmouth er aftur á móti á miklu skriði og tapaði síðast leik 2. september. Hermann Hreiðarsson hefur skorað í tveimur leikj- um í röð og heldur uppteknum hætti í þessum leik. Það dugir hins vegar ekki til sigurs því Wigan vinnur þennan leik 2–1. 1 á Lengjunni. Aston Villa hefur ekki náð að vinna Manchester United í síðustu nítján viðureignum liðanna. Síðasti sigur Aston Villa á Manchester United kom 13. október 1999. Manchester United hefur hrósað sigri í síðustu sjö viðureignum liðanna á Villa Park í Birmingham og er á góðu skriði þessa dagana. United hefur haldið hreinu í síðustu sex deildarleikjum sínum og sterkur varnarleikur er aðalsmerki liðsins. Þetta verður skemmtilegur leikur sem endar 3–1 fyrir United. 2 á Lengjunni. West Ham hefur tapað þremur síðustu deildar- leikjum sínum en fram að því hafði liðið ekki tapað leik. West Ham er með marga menn meidda og óvíst er með þátttöku nokkurra manna. Sunderland sýndi mikla seiglu í síðasta leik gegn Arsenal en varð að sætta sig við tap. Liðum í Norður-Englandi finnst fátt skemmtilegra en að fara til London og ná sigri og það verða óvænt úrslit í þessum leik. 1–0 fyrir Sunderland og 2 á Lengjunni. Leeds á sér marga aðdáendur á Íslandi sem liggja á bæn um að liðið komist aftur í hæstu hæðir. Leeds hefur enn ekki tapað leik en er samt sem áður aðeins í tólfta sæti deildinnar, þar sem liðið hóf leiktíðina með fimmtán stig í mínus. Leeds gerði jafntefli á heimavelli um síðustu helgi við Leyton Orient. Brighton verður engin fyrirstaða í þessum leik og Leeds vinnur góðan 2–0 útisigur. 2 á Lengjunni. Síðustu fimm viðureignir Liverpool 0–0 Everton Everton 3–0 Liverpool Liverpool 3–1 Everton Everton 1–3 Liverpool Liverpool 2–1 Everton 1. arsenal 8 7 1 0 19:6 22 2. Man. united 9 6 2 1 11:2 20 3. Man. City 9 6 1 2 14:7 19 4. Liverpool 8 4 4 0 14:4 16 5. Portsmouth 9 4 3 2 17:12 15 6. blackburn 8 4 3 1 9:6 15 7. Chelsea 9 4 3 2 8:8 15 8. aston Villa 8 4 2 2 12:8 14 9. Newcastle 8 4 2 2 13:10 14 10. everton 9 4 1 4 12:11 13 11. West Ham 8 3 1 4 9:8 10 12. reading 9 3 1 5 10:18 10 13. Wigan 9 2 2 5 8:12 8 14. birmingham 9 2 2 5 8:12 8 15. Middlesbrough 9 2 2 5 10:16 8 16. sunderland 9 2 2 5 10:16 8 17. tottenham 9 1 4 4 16:18 7 18. fulham 9 1 4 4 12:16 7 19. bolton 9 1 2 6 9:14 5 20. derby 9 1 2 6 5:22 5 Markahæstu leikmenn: emmanuel adebayor arsenal 6 benjani Mwaruwari Portsmouth 6 Nicolas anelka bolton 5 robin van Persie arsenal 5 Cesc fabregas arsenal 4 robbie keane tottenham 4 fernando torres Liverpool 4 Flestar stoðsendingar: Mikel arteta everton 5 elano Manchester City 5 Cesc fabregas arsenal 5 England – úrvalsdeild 1. Watford 10 7 2 1 18:12 23 2. Charlton 10 5 4 1 16:10 19 3. W.b.a. 10 5 2 3 21:11 17 4. bristol City 10 4 5 1 14:10 17 5. stoke 10 4 5 1 13:10 17 6. barnsley 10 4 4 2 16:14 16 7. Wolves 10 4 3 3 11:9 15 8. Coventry 10 4 3 3 14:14 15 9. Plymouth 10 3 5 2 14:12 14 10. Ipswich 9 4 2 3 15:15 14 11. scunthorpe 10 4 2 4 13:14 14 12. Cardiff 10 3 4 3 15:14 13 13. burnley 9 3 4 2 15:14 13 14. southampton 10 4 1 5 19:23 13 15. Hull 10 3 3 4 13:13 12 16. blackpool 10 2 6 2 13:14 12 17. Colchester 10 2 5 3 19:17 11 18. Leicester 9 2 5 2 10:8 11 19. Crystal Palace 10 2 4 4 12:12 10 20. sheff. united 10 2 3 5 16:19 9 21. Preston 10 2 3 5 11:14 9 22. Norwich 10 2 2 6 5:11 8 23. sheff. Wed. 10 2 0 8 7:18 6 24. Q.P.r. 9 1 3 5 8:20 6 Markahæstu leikmenn: James beattie sheffield united 8 darius Henderson Watford 7 kevin Phillips W.b.a. 6 brian Howard barnsley 6 Enska 1. deildin 1. swansea 11 6 2 3 20:11 20 2. tranmere 11 5 5 1 15:9 20 3. orient 11 6 2 3 16:18 20 4. Nott.forest 10 5 4 1 18:6 19 5. southend 11 6 1 4 19:15 19 6. Carlisle 11 5 3 3 17:10 18 7. Hartlepool 11 5 2 4 18:14 17 8. brighton 11 5 2 4 13:10 17 9. Yeovil 11 5 2 4 9:10 17 10. swindon 10 4 4 2 18:10 16 11. Walsall 11 4 3 4 13:13 15 12. Leeds 11 9 2 0 20:5 14 13. doncaster 11 4 2 5 15:14 14 14. Luton 11 4 2 5 15:14 14 15. Northampton 11 3 4 4 16:17 13 16. Huddersfield 11 4 1 6 9:18 13 17. bristol r. 11 2 6 3 11:14 12 18. gillingham 11 3 2 6 9:22 11 19. oldham 9 3 1 5 10:12 10 20. Crewe 11 2 4 5 10:18 10 21. Millwall 11 2 3 6 7:15 9 22. Cheltenham 11 2 3 6 8:17 9 23. Port Vale 11 2 2 7 8:13 8 24. bournemouth 11 2 2 7 10:19 8 Markahæstu leikmenn: danny graham Carlisle 7 andy kirk Northampton 7 kris Commons Nott. forest 7 Enska 2. deildin Phil Jagielka Kom til Everton frá Sheffield United eftir að síðarnefnda liðið féll síðasta vor. Jagielka getur brugðið sér í allra kvikinda líki. Sem dæmi spilaði hann í markinu hjá Sheffield United gegn Arsenal á síðustu leiktíð með miklum ágætum. Jussi Jaaskelainen Það verður nóg að gera hjá honum og því ætti ekki að vera erfitt að fylgjast með honum í leiknum. Jaaskelainen hefur spilað í ensku úrvalsdeildinni frá 1997 og er einn allra besti markvörður deildarinnar. Morten Gamst Pedersen Norðmenn verða seint sakaðir um að spila skemmtilega knattspyrnu en Pedersen er fullfær um það. Fljótur, leikinn og sparkviss vinstri kantmaður sem skorar reglulega. Myndi sóma sér í hvaða liði sem er. Matt Oakley Oakley er þrítugur en Derby er samt sem áður aðeins annað liðið sem hann spilar með á ferlinum. Oakley var keyptur til Derby frá Southampton fyrir rúmu ári og er nú þegar orðinn fyrirliði liðsins. Dietmar Hamann Lengi lifir í gömlum glæðum. Flestir héldu að Hamann væri útbrunninn eftir að hann yfirgaf Liverpool. Hamann spilar hins vegar stóra rullu í liði Man. City og vinnur vanþakkláta vinnu. Salomon Kalou Kalou tók stöðu Didiers Drogba í síðasta leik, þar sem Drogba var í banni. Hann leysti það vel af hendi og skoraði sigurmarkið gegn Bolton. Flestir leikmenn sem Chelsea keypti fyrir ári hafa verið gagnrýndir en Kalou hefur þótt standa fyrir sínu. Marcus Bent Er ekki Darren Bent. Martin Laursen Gekk í raðir Aston Villa árið 2004. Hann átti erfitt uppdráttar til að byrja með og missti meðal annars af tímabilinu 2005–2006 vegna meiðsla. Fyrir þetta tímabil hafði Villa aldrei tapað leik með Laursen í liðinu. Það breyttist á fyrsta leikdegi þegar Laursen skoraði sjálfsmark og tryggði Liverpool 2–1 sigur. Robert Green Hefur farið á kostum í marki West Ham á leiktíðinni og margir vilja fá hann í byrjunarlið enska landsliðsins fyrir Paul Robinson. Green sló í gegn í úrvalsdeildinni með Norwich. Átti stóran þátt í að West Ham hélt sæti sínu í deildinni á síðustu leiktíð. Dean Hammond Hammond er 24 ára og hefur allan sinn feril spilað með Brighton. Hann virðist hins vegar ætla að blómstra á þessari leiktíð því hann hefur skorað fjögur mörk og er markahæstur leikmanna Brighton. Síðustu fimm viðureignir Arsenal 2–1 Bolton Bolton 1–3 Arsenal Arsenal 1–1 Bolton Bolton 3–1 Arsenal Arsenal 1–1 Bolton Síðustu fimm viðureignir Blackburn 3–3 Reading Reading 1–2 Blackburn Blackburn 1–1 Reading Reading 0–0 Blackburn Blackburn 0–0 Reading Síðustu fimm viðureignir Fulham 4–2 Derby Derby 1–1 Fulham Derby 0–1 Fulham Fulham 5–2 Derby Fulham 0–0 Derby Síðustu fimm viðureignir Man. City 4–1 Birmingham Birmingham 1–2 Man. City Man. City 3–0 Birmingham Birmingham 1–0 Man. City Man. City 0–0 Birmingham Síðustu fimm viðureignir Chelsea 3–0 Middlesb. Middlesb. 2–1 Chelsea Middlesb. 3–0 Chelsea Chelsea 1–0 Middlesb. Chelsea 2–0 Middlesb. Síðustu fimm viðureignir Wigan 1–0 Portsmouth Portsmouth 2–1 Wigan Portsmouth 1–0 Wigan Wigan 1–2 Portsmouth Portsmouth 0–2 Wigan Síðustu fimm viðureignir Man. United 3–1 Aston Villa Man. United 2–1 Aston Villa Aston Villa 0–3 Man. United Aston Villa 0–2 Man. United Man. United 1–0 Aston Villa Síðustu fimm viðureignir West Ham 2–0 Sunderland Sunderland 1–1 West Ham West Ham 1–2 Sunderland Sunderland 0–2 West Ham Sunderland 2–0 West Ham Síðustu fimm viðureignir Brighton 2–1 Leeds Leeds 3–3 Brighton Leeds 1–1 Brighton Brighton 1–0 Leeds Brighton 2–2 Leeds SÍÐUSTU LEIKIR SPÁ DV STAÐANFYLGSTU MEÐ ÞESSUM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.