Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Side 37
mikla sannfæringu fyrir því að þetta væri gott að ég velti ekki öllum hliðum fyrir mér. Í þeim efnum er gott að vera vitur eftir á en það þýðir óskaplega lítið. Ég hef áður sagt það að ég tel að sagan muni dæma að þess- ar ákvarðanir hafi verið rétt- ar. Þegar frá líður muni menn átta sig á að þessi útrásarfyrir- tæki í orkumálum hefðu getað orðið óskabörn þjóðarinnar. Þá verður kannski gaman að rifja upp ummæli einstakra aðila sem telja að þetta sé ekki hlut- verk opinberra aðila. Ef opin- ber fyrirtæki eins og Orkuveit- an standa ekki í þessu munu þessir svokölluðu auðmenn gera það sjálfir og almenning- ur á Íslandi fær engan ávinning af því. Það er þá bara ákvörð- un sem við verðum að taka en alls staðar í kringum okkur eru orkufyrirtæki að standa fyrir útrás og af hverju má almenningur ekki njóta ávinnings af því með beinum hætti hér á landi eins og annars staðar? Ég hafði eins og aðrir fylgst með meintri sátt sjálfstæðismanna á fundi þeirra í beinni útsendingu. Á lokuðum meiri- hlutafundi með mér kom hins vegar í ljós að málið var langt í frá uppgert af þeirra hálfu innbyrðis. Enn var hver höndin uppi á móti annarri. Ég fór yfir málin í löngu máli og sagðist vera mjög ósáttur við framgöngu flokks- ins; hvernig hann hefði vikist undan eigin ábyrgð, leitað að blórabögglum í starfsfólki Orkuveitunnar og grafið undan eigin borgarstjóra. Fundinum lauk án nokkurrar niðurstöðu og við fórum yfir á borgarstjórnarfund þar sem við einir fluttum mál meirihlut- ans, við Vilhjálmur. Allir sem hlýddu á ræðu mína á fundinum vita að þar staðfestist verulegur skoðana- og áherslumunur um alger grundvallar- atriði. Oddvitar minnihlutaflokkanna höfðu auðvitað fylgst með þessu máli eins og aðrir og fóru morguninn eftir fram á að hitta mig. Þeir höfðu þá rætt saman daginn áður og eftir borgar- stjórnarfundinn um kvöldið og sjálf- sagt við fleiri. Ég held að menn hafi skynjað að svona gæti farið, en ég ræddi ekki eitt einasta orð við oddvit- ana þrjá fyrr en fyrst þennan morgun. Ég hafði hins vegar margvíslegar vís- bendingar um að þá þegar hefðu fyrir löngu hafist þreifingar milli manna og af hálfu samstarfsflokksins á bak við mig og Vilhjálm.“ Gætti hagsmuna almennings Gísli Marteinn Baldursson ásakaði þig um að færa vinum þínum í Fram- sóknarflokknum milljarða. „Já, það er auðvitað mjög alvarleg ásökun en eins og ég hef áður sagt halda þær ásakanir ekki vatni. Sjálf- stæðismenn vildu selja strax. Ég vildi það ekki. Ef ég hefði verið að ganga er- inda auðmanna hefði ég að sjálfsögðu selt þetta fyrirtæki strax ódýrt og fært auðmönnunum fyrirtækið á silfurfati. Með því að gæta hagsmuna almenn- ings og neita að selja strax og verða þar með ekki við skilyrðum Sjálf- stæðisflokksins taldi ég mig vera að gæta hagsmuna almennings og gæta þess að þetta fyrirtæki yrði verðmeira. Þessar röksemdir halda ekki enda eru þær settar fram í mikilli bræði og van- stillingu sem er ekki neinum til sóma. Ég held að allir sem vita eitthvað um íslenskt viðskiptalíf viti að stærstur hluti viðskiptamanna er stuðnings- menn Sjálfstæðisflokksins og það er gömul saga og ný að það mega helst ekki aðrir en sjálfstæðismenn stunda viðskipti. Það, að einhverjir aðilar sem tengjast Framsóknarflokknum, ekki einu sinni með beinum hætti, eigi eitthvert brotabrot í sameinuðu fyrirtæki ráði úrslitum um mína fram- göngu í svona stóru máli er algjörlega fráleitt. Og veltu því fyrir þér hvort ég hefði nú virkilega tekið þennan slag bæði gegn Sjálfstæðisflokknum og sé nú tilbúinn til að fara í leiðangur undir foryrstu Svandísar Svavars- dóttur til að opna þetta mál, læra af því og velta fyrir okkur hvort það eigi að gera á því breytingar ef ég teldi mig ekki hafa hreinan skjöld. Annars hefði ég reynt að þagga málið niður og sópa því undir tepp- ið. Það hefur bara aldrei staðið til af minni hálfu.Ég hef áður sagt að í þessu máli hafi verið gerð ákveð- in mistök. En ég er ekki tilbúinn að standa fyrir einhverjum aftökum án dóms og laga. Ég vinn ekki þannig að einstakir embættismenn eigi að fjúka þegar þeir hafa aðeins unn- ið í samræmi við þær fyrirskipanir sem þeir hafa fengið. Sjálfstæðis- menn vildu gera mannabreytingar hjá Orkuveitunni, en ég óskaði eft- ir því að starfsfólk OR fengi hreina traustsyfirlýsingu. Við því gátu þeir ekki orðið af einhverjum ástæð- um. Kannski er orðin svo rótgró- in andúð sumra sjálfstæðismanna á Orkuveitunni, að þeir eiga erfitt með að dæma hana að verðleikum. Þetta frábæra fyrirtæki og starfsfólk þess eru þannig leiksoppar í pólit- ískum hrunadansi. Það er ekki glæsi- legt, en engu að síður líklega stað- reynd.“ Mikil tilfinningavera Það hefur líka verið mikið talað um þegar þú felldir tár á fundi með þínu fólki. Voru þetta ekta tár eða fundin upp af spunameisturum? „Ég þarf enga spunameistara til að tárast. Tár og tilfinningar koma ekki eftir pöntun. Ég er mjög viðkvæm manneskja eins og kom bæði fram á þessum fundi með framsóknarmönn- um og í Silfri Egils, sem mér sýnist mikið umtalaður þáttur. Allavega hef ég fengið ótrúleg viðbrögð við við- talinu við mig í þeim þætti um síðustu helgi. Sumir segja að þetta sé eins og eftir handriti en þeir sem halda slíku fram vita ekki hvernig lífið gengur fyrir sig. Það er ekkert í þessari atburðarás síðustu daga sem hægt var að sjá fyr- ir og í rauninni komu fram einlæg og næsta ósjálfráð viðbrögð við öllu. Þá reynir maður bara að vera einlægur og gera það sem maður telur vera rétt. Á þessum fundi með framsóknarmönn- um bættist ofan á mikla þreytu og álag hlýhugur frá fullum sal af fólki sem ég fann að var á mínu bandi og studdi mig og það sem ég var að gera. Ég komst við. Ég er mjög viðkvæmur og er ekkert feiminn við að viðurkenna það. Ég tárast í bíó. En ég get líka ver- ið harður eins og þegar ég þarf að taka erfiðar ákvarðanir eins og þær sem ég hef nýverið tekið. Mér er sagt að þetta sé ekki oft gert og þurfi mikið pólitískt hugrekki til, en þá verður maður líka að vera tilbúinn til að eiga þá sannfær- ingu. Mér finnst ekkert að því að við- urkenna að maður sé viðkvæmur og hafi tilfinningar. Við þurfum ekki til- finningalaust fólk í stjórnmálin. Það endurspeglar ekki mannlífið. Ég hef alltaf verið mikil tilfinningavera. Okk- ur systkinunum var innprentað að það væri eðlilegt að sýna tilfinningar sínar, bæði gleði og sorg. Ég kem frá mjög trúuðu heimili og rækta mína trú. Við hjónin förum með strákana í sunnudagaskóla og biðjum með þeim bænirnar; það er hluti af okkar heim- ilislífi. Ég er mjög opinn maður og það sést algjörlega á mér hvort ég er í góðu eða vondu skapi. Ég er yfirleitt mjög léttur og reyni að sjá spaugilegar hlið- ar mála. Hins vegar get ég tekið hluti mjög inn á mig ef mér er misboðið eða finnst ég verða fyrir ómaklegum árásum. Það er mannlegt held ég.“ Missirðu aldrei stjórn á skapi þínu? „Nei, ekki oft. Það er helst þegar ég er að spila fótbolta með vinum mín- um því ég er mjög tapsár.“ Eins og hjónaskilnaður Var einhver manneskja sem kom þér mest á óvart í þessu ferli? „Já, en ég ætla ekki að nafngreina það fólk. Það veit nákvæmlega hvern- ig málin liggja og hvernig þetta þró- aðist. Þetta fólk veit best sjálft hvern- ig það undirbjó jarðveginn fyrir þetta mál í langan tíma og þá er ég ekki að tala um fyrirtækið heldur samskiptin við félagana í borgarstjórn. Þegar allt var komið í óefni var reynt að plástra á sárin og láta líta út fyrir að það væri mikil samstaða. Það var bara orðið of seint fyrir slíkan leik. Fólk sýndi á sér hliðar sem ég hefði aldrei trúað að það ætti til. Í þessum hópi var mikil eining og mikill vinskapur og ég tek þetta nærri mér. Þetta er svolítið eins og að ganga í gegnum hjónaskiln- að. Þetta eru nánustu samstarfsaðil- ar sem maður á samskipti við í starfi og leik og svo allt í einu er öllu lokið. Þetta er meiriháttar áfall fyrir alla við- komandi, hluti af sorgarferli.“ Þú segist vera trúaður. Leitarðu oft til Guðs eftir svörum? „Já, ég geri það. Fyrst og fremst reyni ég að fá vísbendingar um að ég sé ekki að gera tóma vitleysu en hef alltaf að leiðarljósi að maður ber fyrst og fremst alltaf sjálfur ábyrgð á eigin gjörðum. Það er aldrei hægt að varpa þeirri ábyrgð á aðra.“ Hvað gerirðu til að ná sálarró á erf- iðum stundum? „Ég ver tíma með konunni minni og sonunum. Við eigum margar gæðastundir. Við förum oft til foreldra minna sem búa á yndislegri sjávarlóð við Akranes, eða dveljum hjá mínum frábæru tengdaforeldrum, ég hlusta á góða tónlist og leita ráða hjá syst- kinum mínum og vinum. Ég á marga góða ráðgjafa og stuðningsmenn og geri mér grein fyrir mikilvægi þess að leita ráða hjá þeim sem eldri og þroskaðri eru.“ Ber engan kala til neins Hvernig myndirðu lýsa sjálfum þér í fáum orðum? „Ég er fastur fyrir, viðkvæmur, kraftmikill, ákveðinn og orkumikill. Ég vinn mikið, vinn meira að segja í svefni og vakna oft að morgni með lausnir á málum sem ég hef verið að velta fyrir mér. Þá er eins og undir- meðvitundin sé að verki. Ég er líka bjartsýnn maður. Ég er alltaf bjart- sýnn þótt það sé misjafnlega mik- il innstæða fyrir því. Ég fór í gegnum kosningabaráttu fyrir einu og hálfu ári þar sem ég mældist eiginlega aldrei inni og fann fyrir miklum and- byr, gafst ekki upp og komst í gegnum það. Þá hélt ég að það væri mín mesta eldskírn og eftir það kæmist ég gegn- um allt, en svo lenti ég í þessu máli og finnst það ennþá meira, en það er sagt að það sem ekki drepur mann styrki mann. Mér finnst ég hafa lært óskap- lega mikið af þessu öllu saman og er miklu þroskaðri stjórnmálamaður en ég hef verið nokkru sinni áður. Ég átta mig miklu meira á því hvernig landið liggur og finnst ég skilja fólkið í land- inu og borginni og flokknum mínum miklu betur en áður. Það er kannski til- gangur með þessu öllu saman. Ég hef mikinn metnað fyrir hönd Framsókn- arflokksins og er tilbúinn að berjast fyrir því af fullum krafti að rífa gamla, góða flokkinn upp úr þeirri lægð sem hann hefur verið í og hefja hann aftur til vegs og virðingar í íslensku samfé- lagi. Eitt af því sem hefur satt að segja glatt mig hvað mest síðustu daga eru símtöl og stuðningskveðjur frá göml- um framsóknarmönnum um allt land sem hafa aftur öðlast trúna á flokkinn sinn og eru tilbúinir að berjast nú fyrir raunverulegri endurreisn hans.“ Það er farið að halla í miðnætti. Björns Inga bíða fundir með borg- arstjóra og fleiri samstarfsmönnum snemma næsta morgun. „Á morgun er nýr dagur og ég á eftir að vinna í mikilli nánd með þessu fólki sem í dag fékk útrás fyrir tilfinningar sínar,“ segir hann þegar ég spyr hvernig leggist í hann að starfa í nýrri borgarstjórn. „Sveitarstjórn- armál eru þannig að þau eru unn- in í mikilli samvinnu og fólk er sam- mála um langflest mál. Það er aðeins í nokkrum atriðum sem verður grund- vallarágreiningur. Ég ber engan kala til þessa fólks þrátt fyrir þessar ásak- anir í minn garð. Ég ætla ekki að erfa þetta við nokkurn mann og ætla bara að vona að Sjálfstæðisflokknum og borgarfulltrúum hans vegni sem best. Ég er tilbúinn að fyrirgefa allar þessar ásakanir og ummæli. Ef maður byrgir innra með sér hatur eða reiði fer mað- ur að stjórnast af þeirri líðan og fer að taka vondar ákvarðanir. Í þeim spor- um ætla ég ekki að lenda.“ annakristine@dv.is DV Helgarblað föstudagur 19. október 2007 37 Blaðaúrklippa úr MorGun- Blaðinu árið 1985 björn Ingi var yngsti nemandinn sem mætti til starfskynningar á Morgunblaðið, 11 ára. Í viðtali við blaðið sagðist hann ætla að verða blaðamaður. VEl Giftur Með eiginkonunni, Hólmfríði rós eyjólfsdóttur, sem björn Ingi segir vera sinn fyrsta kosningasigur. Þau eiga tvo syni. „Ég hef alltaf verið mikil tilfinningavera. Okkur systkinunum var innprentað að það væri eðlilegt að sýna tilfinningar sín- ar, bæði gleði og sorg. Ég kem frá mjög trúuðu heimili og rækta mína trú. Við hjónin förum með strákana í sunnudaga- skóla og biðjum með þeim bænirnar.“ DV MynD karl oG úr Einkasafni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.