Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Qupperneq 41

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Qupperneq 41
Starfsferill Dagur fæddist í Ósló á kvenrétt- indadaginn 19.6. 1972 en ólst upp í Árbæjarhverfinu. Hann var í Árbæj- arskóla, lauk stúdentsprófi frá MR 1992, embættisprófi í læknisfræði við HÍ 1999 og lauk meistaranámi í mannréttindum og alþjóðalögum við Háskólann í Lundi í Svíþjóð 2005. Dagur stundaði ýmis störf á ungl- ingsárunum, m.a. við dýrahald og húsaviðgerðir, starfaði við ættfræði- síðu DV sumarið 1993, var starfandi formaður Stúdentaráðs HÍ 1994-95, var framkvæmdastjóri Nýsköpunar- sjóðs námsmanna 1995-96, dagskrár- gerðarmaður á Ríkisútvarpinu, rás 1, 1995-98 þar sem hann sá um Víðsjá og á fimmta tug þátta um vísindi og vísindamenn, var aðstoðarlæknir á Landspítalanum - háskólasjúkra- húsi 2000-2001, heilsugæslulæknir á Ísafirði sumarið 2001, starfaði við sýkladeild Landspítalans-háskóla- sjúkrahúss sumarið 2002, var læknir á slysa- og bráðasviði Landspítalans - háskólasjúkrahúss 2003-2004, var kjörinn borgarfulltrúi fyrir R-listann vorið 2002 og var borgarstjóraefni R-listans í síðustu borgarstjórnar- kosningum 2006. Á þessu kjörtíma- bili hefur Dagur setið í borgarráði, hverfisráði Árbæjar, skipulagsráði, stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, stjórn- kerfisnefnd og verið varamaður í al- mannavarnanefnd. Dagur tók þátt í MORFÍS-keppn- inni, mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi, fyrir hönd MR á sínum tíma, var formaður Fé- lags framhaldsskólanema 1991-92, formaður Stúdentaráðs HÍ 1994-95, sat í stúdentaráði fyrir Röskvu, sam- tök félagshyggjufólks 1994-96, sat í nefnd um endurskoðun laga um LÍN 1995-97 og í stjórn Félagsstofnunar stúdenta 1997-99. Dagur er höfundur ævisögu Steingríms Hermannssonar, I-III, útg. 1998, 1999, 2000. Fjölskylda Kona Dags er Arna Dögg Einars- dóttir, f. 18.4. 1975, læknir á Land- spítalanum - háskólasjúkrahúsi. Hún er dóttir Einars Kristins Þórhallsson- ar, f. 1.7. 1952, læknis og sérfræðings í meltingarsjúkdómum, og Sigríðar Steinarsdóttur, f. 9.4. 1952, meina- tæknis. Börn Dags og Örnu Daggar eru Ragnheiður Hulda, f. 3.5. 2004 og Steinar Gauti, f. 26.9. 2005. Systkini Dags eru Gauti B. Egg- ertsson, f. 1.8. 1974, hagfræðingur við bandaríska seðlabankann í New York; Valgerður B. Eggertsdóttir, f. 13.10. 1981, lögfræðingur í Reykja- vík. Foreldrar Dags eru Eggert Gunn- arsson, f. 2.1. 1949, dýralæknir í Reykjavík, og Bergþóra Jónsdóttir, f. 21.5. 1950, lífefnafræðingur. Ætt Eggert er bróðir Gunnars dýra- læknis og Theodóru hjúkrunarkonu. Eggert er sonur Gunnars, loftskeyta- manns í Reykjavík Steingrímssonar, fasteignasala og bóksala í Reykjavík Stefánssonar. Móðir Gunnars loft- skeytamanns var Þuríður Eggerts- dóttir. Móðir Eggerts var Hulda, hjúkr- unarkona í Reykjavík, systir Guð- brands lögregluvarðstjóra, föð- ur Þorkels, yfirlæknis á Akureyri, og Friðriks Kristjáns, háls-, nef- og eyrnalæknis. Hulda var dóttir Þor- kels, verkamanns í Reykjavík, bróður Guðbröndu, móður Gunnars Guð- bjartssonar, fyrrv. framkvæmda- stjóra Framleiðsluráðs landbúnað- arins. Þorkell var sonur Guðbrands, verslunarmanns í Ólafsvík, bróður Einars, föður Bjargar rithöfundar, og Þorkels Jóhannessonar prófess- ors og afa Lúðvíks Kristjánssonar rit- höfundar. Annar bróðir Guðbrands var Jón, langafi Júlíusar Sólnes, verk- fræðings og fyrrv. alþm.. Þriðji bróðir Guðbrands var Jón yngri þjóðskjala- vörður, afi Loga Guðbrandssonar forstjóra. Systir Guðbrands var Guð- rún, amma Arnar og Hauks Clausen. Guðbrandur var sonur Þorkels, próf- asts á Staðarstað Eyjólfssonar. Móðir Þorkels var Guðrún Jónsdóttir, prests og skálds á Bægisá Þorlákssonar. Móðir Guðbrands var Ragnheið- ur Pálsdóttur, prófasts í Hörgsdal Pálssonar, langafa Guðrúnar, móð- ur Péturs Sigurgeirssonar biskups. Móðir Huldu var Theodóra, syst- ir Guðbjarts, föður Gunnars, fram- kvæmdastjóra Framleiðsluráðs land- búnaðarins. Annar bróðir Theodóru var Stefán, faðir Alexanders, fyrrv. ráðherra. Theodóra var dóttir Kristj- áns, b. á Hjarðarfelli, bróður Hall- dórs, langafa Ingólfs Margeirsson- ar, fyrrv. ritstjóra. Kristján var sonur Guðmundar, b. í Miðhrauni í Mikla- holtshreppi, bróður Guðnýjar, lang- ömmu Theodóru, ömmu Helga Ólafssonar stórmeistara. Systir Guð- mundar var Elín, langamma Helgu, móður Svavars Gests og ömmu Vil- borgar Harðardóttur blaðamanns, móður Marðar Árnasonar. Elín var einnig langamma Þórðar Kárason- ar fræðimanns. Bróðir Guðmundar var Jóhannes, langafi Guðmundar J. Guðmundssonar, formanns Dags- brúnar. Guðmundur var sonur Þórð- ar, ættföður Hjarðarfellsættar Jóns- sonar. Bergþóra er systir Gunnlaugs háskólaritara. Bergþóra er dótt- ir Jóns Hjaltalíns, læknis í Reykjavík Gunnlaugssonar, formanns í Súða- vík Einarssonar, b. í Hlíð í Álftafirði við Djúp Einarssonar. Móðir Gunn- laugs var Guðrún Ólafsdóttir. Móð- ir Jóns Hjaltalín var Samúela Sigrún Jónsdóttir, útvegsb. og kaupmanns í Súðavík Jónssonar, og Salóme Mál- fríðar Þórarinsdóttur. Móðir Bergþóru er Jóna Halldóra Bjarnadóttir, útvegsb. á Hóli í Bol- ungarvík Bárðarsonar, og Kristínar Salome Ingimundardóttur. DV Ættfræði föstudagur 19. október 2007 41 Merkir Íslendingar: MaÐUr VikUnnar Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Sigurbjörn Sveinsson f. 19. október 1878, d. 2. febrúar 1950 Sigurbjörn Sveinsson barnabóka- höfundur fæddist að Kóngsgarði í Ból- staðarhlíðarhreppi í Austur-Húna- vatnssýslu. Hann var ungur er hann missti föður sinn, Svein Sigvaldason skósmið, og ólst því upp hjá móður sinni eins og oft kemur fram í bókum hans. Sigurbjörn lærði skósmíði í Reykja- vík, var síðan búsettur á Akureyri um hríð, var kennari við Barnaskóla Reykjavíkur 1908–1919 sem þá var Miðbæjarskólinn, en kenndi í Vest- mannaeyjum á árunum 1919–1932 og bjó þá í húsinu Hnjúk á Brekastíg. Auk þess kenndi hann ensku og hljóðfæra- leik í einkatímum. Halldór Laxness var góðvinur Sig- urbjörns, þótti mikið til hans koma og hefur skrifað töluvert um hann, m.a. í endurminningum sínum um ferð austur á land þar sem Halldór tók að sér einkakennslu. Sigurbjörn er almennt talinn í hópi okkar merkustu barnabókahöf- unda og reyndar brautryðjandi í þeirri bókmenntagrein hér á landi. Hann er fyrsti rithöfundurinn sem skrifar gagngert fyrir börn og unglinga. Hann setur sig í spor þeirra, skrifar sögurn- ar frá þeirra sjónarhóli og reynslu og er blessunarlega laus við yfirborðs- kenndar siðapredikanir. Einlægni hans og kristaltær, einfaldur ritstíllinn gerir barnasögur hans sígildar, enda hafa helstu verk hans verið margend- urútgefin og hafa í heildina komið út í mörgum þúsundum eintaka. Þá voru margar sögur Sigurbjörns prentaðar í lesbókunum sem lesnar voru í barna- skólum landsins um áratuga skeið. Má þar t.d. nefna söguna Glókoll sem kenndi nokkrum kynslóðum Íslend- inga margföldunartöfluna. Marg- ir hafa því lesið ýmsar sögur hans án þess að gera sér grein fyrir því. Þekktustu ritverk Sigurbjörns eru Bernskan I. og II. og Geislar. Þá sendi hann frá sér ljóðabækur, samdi leikrit og gaf út skákdæmi enda ágætur skákmaður og prýðilegur skákdæmahöfundur. Leikrit hans, Glókollur, var sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1972. Hann þýddi auk þess töluvert úr öðrum tungumálum og ljóð hans urðu sum hver nokkuð þekkt, s.s. það ljóð um Vestmannaeyjar sem margir telja að komist næst því að vera þjóðsöngur Eyjamanna og hefst á ljóðlínunujm: Yndislega eyjan mín, en hvað þú ert morgunfögur Sigurbjörn var heiðursborgari Vest- mannaeyja og fyrsti heiðursfélagi Tafl- félagsins í Vestmannaeyjum. Dagur B. Eggertsson stendur uppi sem borgarstjóri og leið- togi nýs borgarstjórnarmeiri- hluta eftir ótrúlegar uppá- komur í hópi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og síðan flóknar, leynilegar þreifing- ar úr ýmsum áttum og í ýmsar áttir, um borgarstjórnarmeiri- hluta. Eftir sitja sjálfstæðis- menn með sárt ennið og óút- skýrða atburðarás sem gerði tólf ára baráttu þeirra gegn R- listanum að minna en engu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.