Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Page 42
föstudagur 19. október 200742 Helgarblað DV
Kjúklingur
í kornflögum
fátt gleður svangan maga meira en
góður matur sem tekur enga stund að
búa til. Hér er uppskrift að einum slíkum
rétti sem dugar fyrir fjóra.
4 kjúklingabringur án húðar
1/2 bolli „corn flakes“ morgunflögur
2 msk. raspaður parmesanostur
1/4 tsk. ítalskt krydd
2 msk. brætt smjör eða smjörlíki
Hitið ofninn í 200 gráður. Hrærið saman
í skál kornflögunum, parmesanosti og
ítölsku kryddi. dýfið kjúklingabringun-
um í brætt smjör eða smjörlíki og veltið
upp úr blöndunni. raðið í eldfast mót.
steikið við tæplega 200 gráðu hita í um
hálftíma eða þar til kjötið er gegnum-
steikt. borið fram með soðnum
hrísgrjónum og fersku salati.
U m s j ó n : K r i s t a H a l l . N e t f a n g k r i s t a @ d v . i s
&Matur vín
Fersk vínber í tvær vikur
einn helsti galli við kaup á vínberjum er hversu stutt þau
haldast fersk. Þau geymast vel í ísskáp í tvo til þrjá daga, en
ef þú vilt eiga vínberjaklasann þinn í hálfan mánuð er sagt
að ráðið sé þetta: settu vínberin í skál, kreistu ferskan
appelsínusafa yfir þau og settu loftþétt lok á. eftir tvær
vikur eiga berin enn að vera sem ný.
Þráinn Freyr Vigfússon, matreiðslumaður ársins 2007 Meistarinn
Brunalykt úr
örbylgjuofninum
Hver þekkir ekki brunalykt úr örbylgju-
ofninum? Poppkornið á það til að
gleymast... Mörg ráð hafa verið gefin
um hvernig best sé að losna við lyktina,
en hér er eitt sem við höfum ekki séð
fyrr: setjið tvær matskeiðar af nýmöluðu
kaffi í leirkrús og bætið við vatni þar til
bollinn er hálfur. setjið í örbylgjuofninn
í tvær mínútur, þannig að það sjóði upp
úr bollanum. opnið ofninn varlega,
takið bollann varlega út og þurrkið
innan úr ofninum með rökum klút eða
eldhúspappír. ef mikill vökvi er í botni
ofnsins, látið þá eldhúspappírinn sjúga
hann í sig.
Parmesan-
kjúklingur
fyrir fjóra
4 kjúklingabringur, úrbeinaðar og skinn-
lausar
2 egg
1 bolli af brauðteningum
2 msk. ólífuolía
1 dós af pastasósu
1/2 bolli af niðurskornum parmesanosti
1 bolli af rifnum mozzarella-osti.
forhitið ofninn í 200°C. dýfið
kjúklingnum í eggin og brauðtening-
ana. Hitið ólífuolíuna. eldið kjúklinginn í
olíunni á pönnu þar til hann er orðinn
vel brúnn á báðum hliðum. Hellið
pastasósunni í eldfast mót. setjið
kjúklinginn í mótið og stráið ostinum
yfir. bakið í fimmtán mínútur eða þar til
osturinn er bráðinn og brúnaður.
Hörpuskel með
blómkálsþrennu
uppskrift fyrir 6
l 18 stk. hörpuskel
l salt
Aðferð: Hörpuskelin er steikt á
mjög heitri pönnu í um það bil 1
mínútu eða þar til hún er vel brúnuð.
Henni er þá snúið við en einungis
rétt látin snerta á þeirri hlið. Passa að
ofelda hana ekki því þá verður hún
eins og gúmmí.
blómkál
l 1 stk. blómkálshöfuð
l 100 ml rjómi
l 20 g smjör
l 50-100 ml mjólk
l salt
l truffluolía
l sítróna
Aðferð: Vatnið sett í pott og látið
sjóða. Blómkálið hreinsað og valdir
flottar 3 greinar og skornar næfur-
þunnt. Afskurðurinn er svo settur út í
sjóðandi vatnið og látið sjóða þar þar
til það er meyrt (um það bil 4 mín-
útur). Sett í blender/matreiðsluvél
og maukað. Rjóminn soðinn niður
til helminga. Blandað við maukið og
smakkað til með truffluolíu , sítrónu
og salti. Helmingurinn af maukinu
er svo þynntur út með mjólkinni og
smjöri og gerð froða eða sósa. Blóm-
kálsþynnurnar eru svo eldaðar í 30
ml af vatni, 20 g smjör, salt og sykur.
Soðið niður þar til það er meyrt.
stökkt kex
l 2 stk. brik-deig (fæst í Hagkaupum
og Nóatúni)
l 10 ml olía
l ferskar kryddjurtir að eigin vali.
Aðferð: Brik-deigið lagt á smjör-
pappír og penslað með olíu og stráð
salti yfir. Bakað í 4 mínútur á 180°C
undir fargi (eitthvað sett ofan á).
Stráið söxuðum kryddjurtum yfir og
hvílið í nokkrar mínútur.
Hörpuskel
með blómkálsþrennu
Þráinn byrjaði að vaska upp 14 ára á Hótel Áningu á Sauðárkróki en fór svo að læra tvítugur á Café Óperu og kláraði samning-
inn á Hótel Sögu. Í desember árið 2005 útskrifaðist hann frá Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi. Eftir útskrift vann Þráinn
í 7 mánuði í Grillinu og lagðist svo í víking til Suður-Frakklands og vann á Domaine de Clairefontaine hjá Philippe Girardon. Í
lok síðasta árs fluttist hann svo aftur heim til Íslands og starfar nú sem aðstoðaryfirmatreiðslumaður á Grillinu á Hótel Sögu.