Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Blaðsíða 48
föstudagur 19. október 200748 Helgarblað DV Segja Sögu Sína í Syndum feðranna „Í tímans rás hef ég jafnan reynt að þurrka úr minni mér þann tíma sem ég var á Breiðavík. Bæði voru þessi fjögur ár sem ég dvaldist þarna, það er frá 1958 til 1962, erfið og svo var þetta nokkuð sem ekki mátti segja frá. Á götunum hér í Reykjavík þótti allt í lagi að hafa verið á Litla- Hrauni en dvöl í Breiðavík var miklu verri stimpill,“ segir Georg Viðar Björnsson, einn úr hópi drengjanna sem voru vistaðir á vistheimili ríkisins að Breiðavík. Georg Viðar er einn af viðmælendunum í heimildakvikmyndinni Syndir feðranna þar sem rakin er saga vistheimilisins og rætt við menn sem dvöldu þar í æsku. Bárður Ragnar Jónsson er annar, en hann dvaldist á Breiðavík frá vori árið 1964 og fram til hausts 1965 auk þess að hafa verið þar sumarið 1966. Fautinn lúskraði á okkur „Þetta var ömurleg vist allan tímann og ég heyrði fljótlega eftir að ég kom vestur að maður gæti búist við því að eldri strákarnir nauðguðu manni. Það var einnig talað um það meðal okkar yngri drengja að Hallgrímur forstöðumaður væri smeykur við stóru strákana en það versta við vistina í tíð Hallgríms var þetta ofbeldi þeirra eldri á þeim yngri. Það breyttist þegar Þórhallur Hálfdánarson tók við, því hann losaði sig við eldri drengina eða þá að þeir voru farnir. En hann sjálfur var fauti og hikaði ekki við að lúskra á okkur þegar sá gállinn var á honum og hann má teljast heppinn að hafa ekki drepið neinn strákanna þarna,“ segir Bárður. Georg og Bárður segjast báðir hafa í æsku verið fyrirferðarmiklir og kannski sé skýringarinnar að leita í erfiðum fjölskylduaðstæðum þeirra. Ekki hafi það samt réttlætt að þeir skyldu sendir „á versta og vestasta stað landsins” eins og Georg orðar það og bætir við: „Satt að segja vissi maður ekki hvar í heiminum maður var og ef maður spurði hve lengi maður ætti að vera þarna var bara svarað í hálfkæringi og sagt að maður fengi að fara ef maður yrði góður.“ Gat ekki vikist undan Georg flutti frá Svíþjóð til Íslands árið 2004 en þá hafði hann búið þar og starfað í 25 ár. Þeir Bergsteinn Björgólfsson og Kristinn Hrafnsson höfðu samband við hann fljótlega eftir að hann kom heim en þeir unnu þá að gerð heimildamyndarinnar um Breiðavík og báðu hann um að segja frá reynslu sinni þaðan. „Eftir nokkra umhugsun ákvað ég að gera það. Fannst ég ekki geta vikist undan því. En þetta tók vissulega talsvert á mig. Þótt langt sé um liðið frá því ég var í óreglu og þrátt fyrir að ég hafi talið mig hafa náð að vinna sæmilega úr mínum málum tók þetta meira á mig en ég bjóst við,“ segir Georg. Hann telur umfjöllunina um mál Breiðavíkur og piltanna þar frá því í vetur sem leið vera þarfa og sýningu kvikmyndarinnar nú góða viðbót. Að ekki megi þagga niður í drengjunum frá Breiðavík sem nú séu fulltíða menn. Þá hefur Bárður Rúnar Jónsson að undanförnu aðstoðað Pál Rúnar Elísson við að ganga frá minningabrotum frá æskuárum sínum á Breiðavík og koma þau út á næstu dögum í bók sem fengið hefur titilinn Breiðavíkurdrengur en það er Mál og menning sem gefur út. Í heimildamyndinni Syndir feðranna er sögð örlagasaga þeirra drengja sem vistað- ir voru á Breiðavík á árunum 1953 til 1973. Í myndinni er rætt við nokkra sem vestra dvöld- ust á sínum tíma og varpað ljósi á líf þeirra og sögu. Örlagasaga Breiðavíkurdrengja er undir- titill myndarinnar sem vænta má að veki um- ræðu, samanber mikla umræðu um Breiða- víkurheimilið í fjölmiðlum fyrr á þessu ári Hetjur hver á sinn hátt Frá árinu 1953 til 1973 voru 128 drengir vistaðir að Breiðavík. Drengirnir voru að meðaltali ellefu ára en sá yngsti var sex ára við komu sína. Árið 1975 var svo á vegum Gísla Guðjónssonar réttarsálfræðings gerð skýrsla um afdrif sjötíu reykvískra drengja sem sendir höfðu verið í vistun til Breiðavíkur. Kom þá í ljós að þrír af hverjum fjórum drengjanna höfðu komst í kast við lögin eftir dvöl þeirra á Breiðavík. Í myndinni er leitast, segir í kynningu, við að gera óhlutdræga úttekt á heimilinu Breiðavík, hugarfari og tíðaranda frá 1953 til dagsins í dag, en höfundar komust að þeirri niðurstöðu að eina leiðin við gerð myndarinnar væri að hafa kærleika að leiðarljósi í nálguninni, sérstaklega með tilliti til þess að málið var blásið upp og haft að fréttaefni viku eftir viku. Þar hafi vantað nærgætni í umfjöllun. Hér sé viðmælendum á hinn bóginn leyft að segja sínar sögur á eigin forsendum og endurheimta eftir föngum líf sitt, persónu og mannlega reisn. Þá sé varpað ljósi á hverjar hafi orðið afleiðingarnar fyrir Breiðavíkurdrengina og aðstandendur þeirra. Hvernig er hægt að lifa af eftir slíka lífsreynslu og standa uppréttur? Sumir Breiðavíkurdrengjanna hafi náð að vinna úr sinni reynslu en aðrir látið bugast og jafnvel fyrirfarið sér. Frétti af fangaklefa En hvað réð því að ráðist var í gerð kvikmyndar um vistheimilið í Breiðavík og sögu drengjanna sem þar dvöldust? „Upphafið var að árið 1991 sagði félagi minn, Ingi Gunnar Jóhannsson leiðsögumaður, sem hafði verið á ferð vestra, mér að í Breiðavík væru til leifar af fangaklefa,” segir Bergsteinn Björgólfsson. „Ég varð því mjög forvitinn og vildi kynna mér þetta betur, vissi að í Breiðavík hefði verið vistheimili fyrir unga drengi en trúði varla að þeir hefðu verið í fangavist. Þetta varð til þess að ég fór vestur til að kynna mér málið og fékk þá að vita að þetta átti allt við rök að styðjast. Í samtölum við bændur í Breiðavík fékk ég að vita að margir drengjanna sem þarna dvöldust á sínum tíma hefðu komið vestur til að gera upp við þessa fortíð og ég fékk nöfn nokkurra þeirra gefin upp. Þegar ég svo hafði samband við þá með viðtöl í kvikmynd í huga vildu þeir fæstir við mig tala. Sumir skelltu á og aðrir neituðu því staðfastlega að hafa nokkru sinni dvalist vestra. Þetta gerði mig hins vegar bara enn forvitnari og á endanum sagðist einn Breiðvíkingur tilbúinn að ræða við mig. Í framhaldinu fóru svo hinir að gefa sig fram, þótt það væru afar þung skref fyrir suma.” Umfjöllun gjörbreytti myndinni Umfjöllun DV fyrr á þessu ári um Breiða- víkurheimilið og aðstæður drengjanna þar var sem sprengja inn í íslenskt samfélag. „Ég bjóst svo sem alltaf við að málið kæmi fram í um- ræðuna með þessum hætti,” segir Bergsteinn og bætir við að umfjöllun fjölmiðla hafi í raun gjörbreytt allri gerð myndarinnar. „Framan af vann ég að gerð myndarinn- ar með þeim Margréti Jónasdóttur og Kristni Hrafnssyni. Þegar fjölmiðlaumfjöllunin mikla í fyrravetur hófst fannst mér hins veg- ar nauðsynlegt að fá nýjan vinkil á þetta og fleiri í lið með mér enda var ég orðinn svo- lítið samdauna verkefninu,” segir Bergsteinn sem kveðst í þessum tilgangi hafa leitað til þeirra Ara Alexanders Ergils Magnússonar um leikstjórn og Hrannar Kristinsdóttur um framleiðsluþáttinn. Ari Alexander segir að sér hafi þótt afar þroskandi og í raun mannbætandi að koma að gerð þessarar myndar. Það sem er kannski átakanlegast er að í Breiðavík virðist starfs- fólk hreinlega hafa haft byssuleyfi á drengina – heimild til að pína þá á alla kanta. Það er átakanlegt.” Örlagasagan syndir feðranna frumsýnd í Háskólabíói í kvÖld: Byssuleyfi á Breiðavíkurdrengi Þau standa að gerð myndarinnar Leikstjórarnir bergsteinn björgólfsson, til vinstri, og ari alexander Magnússon. Milli þeirra stendur Hrönn kristinsdóttir framleiðandi. Georg og Bárður voru vistmenn á Breiðavík „Þetta var ömurleg vist allan tímann,“ segir bárður rúnar Jónsson sem dvaldist ungur í breiðavík. Með honum, til vinstri á myndinni, er georg Viðar björnsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.