Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Page 52
Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi Tiger-
leikjanna og eru þeir í hópi þeirra allra
bestu þegar kemur að fjölspilun með vin-
um og félögum. Þó svo að meginatriði
Tiger-leikjanna hafi í gegnum tíðina verið
þau sömu breytast ýmis smáatriði ár frá
ári og hefur það tekist misvel.
Munurinn á Tiger Woods PGA Tour 08 á
Nintendo Wii og svo á öðrum leikjavélum
er auðvitað helst möguleikinn sem Wii-
stýripinninn býður upp á. Það er að segja
að beita honum eins og golfkylfu með til-
heyrandi sveiflu. Þessi tækni heppnast
nokkuð vel og er ótrúlega skemmtilegur
möguleiki. Hins vegar kemur þú ekki til
með að nýta þér hana nema í góðra vina
hópi eða ef þú ert forfallinn golfari. Það
verður þreytt að standa einn úti á gólfi og
taka 36 holurnar. Þá er hægt að bregða á
það ráð að breyta stýrikerfinu og notast
við „nunchuck“-ið og það er sú leið sem
ég hef mest notast við. Það sem mér finnst
gerast í kjölfarið er að leikurinn verður of
auðveldur. Ég hef spilað Tiger mikið eins
og áður segir en ég held að ég sé búinn að
setja heimsmet í að fá sem flesta erni eða
„Eagles“ á sem skemmstum tíma. Það má
eiginlega segja að örninn sé nýi fuglinn.
Þetta stafar að miklu leyti af því að alltaf
er verið að breyta púttkerfinu í Tiger. Nú
er það orðið þannig að þú hefur vissan
prufumæli þar sem þú hefur visst mikinn
tíma yfir allan hringinn. Þá getur þú sleg-
ið prufupútt og horft á kúluna fara ofan
í. Reynt svo að leika sömu sveiflu eftir.
Þetta virkar betur þegar þú ert sjálfur að
sveifla kylfunni en leið og „nunchuck“-ið
er komið í notkun verður bara of létt að
pútta.
Að þessu undanskildu er þetta bara klass-
ískur Tiger sem er alltaf hágæðavara sem
endist lengi. Ég vona samt að þeir finni
nýtt púttkerfi fyrir næsta leik.
Ásgeir Jónsson
dóri dna segir:
&
U m s j ó n : D ó r i D N A N e t f a n g : d o r i @ d v . i s
föstudagur 19. október 200752 Helgarblað DV
leikirtölvu
tiger Woods 08 – Wii
Nba Jam 08 – PS3
Halo 3 – XboX 360
trauma Center – Wii
Victorious boxers: Ippo’s road
to glory – PS2
Kíktu á þessa
leiKjatölvur
178% sölu-
aukning á Ps3
Eftir að ný 40 gb útgáfa af PS3 kom
út í bretlandi ásamt sérstökum
bónuspakka með 60 gb tölvunni
hefur sala á tölvunni aukist um
178%. Síðasta vika var söluhæsta
vika Playstation 3 í bretlandi frá því
hún kom út 23.
mars á þessu ári.
Hins vegar vekur
það athygli manna
að PS3 var ekki
söluhæsta tölva
bretlands þessa
vikuna, heldur DS
Lite frá Nintendo og Wii í öðru sæti.
bragð Sony-manna virðist þó vera að
virka, en ljóst er að nóg af PS3 verður
í jólapökkunum í ár.
16 manna net-
sPilun á gta 4
Nú ganga þær sögur í heimi tölvuleikj-
anna að netspilun við leikinn gta 4 verði
rosaleg. Á föstudaginn greindi kanadíska
leikjasíðan gamingexcellence frá því að
rockstar, framleiðandi leiksins, ynni nú
hörðum höndum að því að búa til
netspilun við leikinn sem gæti gert
sextán leikmönnum kleift að spila í einu.
Hefur það ekki verið möguleiki í neinum
gta-leik hingað til, en rockstar-menn
hafa ekki viljað tjá sig um hvort saga
kanadamannanna sé sönn.
soF bannaður
í ástralíu
Leikurinn Soldier of Fortune Pay back
hefur verið bannaður í Ástralíu vegna
þess hversu mikið ofbeldi hann
inniheldur. Leikurinn er framleiddur
af Actavision og kemur út víða um
heim á næstu misserum á bæði Xbox
360 og PS3. Ástralíumenn er þekktir
fyrir að sýna enga linkind í
tölvuleikjamálum en þeir hafa
bannað leiki á borð við bMX XXX,
Manhunt, Grand Theft Auto iii, Grand
Theft Auto: San Andreas, Leisure Suit
Larry: Magna Cum Laude, Postal og
Postal 2.
Leikurinn Victorious Boxer Revolut-
ion er senn væntanlegur á Nintendo
Wii. Eftir að hneflaleikafídus leiksins
Wii Sports leit fyrst dagsins ljós hafa
Wii-menn beðið eftir almennilegum
boxleik í ofvæni. Victorious Boxer
Revolution er hnefaleikaleikur frá
framleiðandanum Xseed Games.
Leikurinn er frábrugðinn boxleikjum
á borð við Fight Night og Knockout
Kings, en helstu persónur leiksins
eru skáldaðar en ekki þekktir
hnefaleikakappar frá ýmsum skeiðum
íþróttasögunnar. Leikmenn fara í
hlutverk Ippo Makunouchi sem er
hálfrengulegur og undirgefinn strákur
á menntaskólaaldri í Japan. Dag einn
verður Ippo fyrir árás pörupilta en sem
betur fer bjargar honum tignarlegur og
þróttmikill maður, Mamoru Takamura.
Takamura þessi reynist vera þjálfari í
hnefaleikastöð í hverfinu og ákveður
Ippo að fylgja honum til æfinga og
freista gæfunnar í heimi hnefaleikanna.
Stýringar leiksins eru sagðar vera
einstakar en með Wii-fjarstýringunum
er það næstum því eins og að vera að
boxa sjálfur. Leikmenn geta þó valið um
nokkur mismunandi snið stýringa, en
munurinn á þeim felst í hversu stórar
hreyfingarnar með fjarstýringunni
þurfa að vera. Þá er saga leiksins löng
og ítarleg, en leikmenn þurfa að kljást
við tæplega 25 hnefaleikakappa á leið
sinni að meistaratitlinum og hann
fæst ekki nema eftir miklar æfingar
í tækjasalnum og löng „sparring
session“ við æfingafélaga þína. Þá
er hægt að keppa í flestum frægustu
boxhöllum heimsins, meðal annars í
höfuðborg hnefaleikanna, Las Vegas.
Grafíkin í leiknum minnir einna helst
á hasarmyndablað, en virðist virka
nokkuð vel við spilun hans ef marka
má myndbönd á heimasíðu leiksins.
VBR er nú þegar kominn út erlendis og
ætti að lenda á klakanum fyrir jól.
Dóri DNA
loks
alVöruboX
á Wii!
Eftir að Wii Sports kom
út hafa Wii-notendur
beðið eftir almennileg-
um boxleik á gripinn.
Nú er leikurinn kom-
inn út, hann heitir
Victorious boxer Re-
volution og er sagður
munu uppfylla allar
væntingar.
Victorious boxer
Revolution fyrsti alvöru
boxleikurinn á Nintendo Wii.
Alvöruhreyfingar Þú
stjórnar boxurunum með því
að líkja eftir hreyfingum þeirra.
Væntanlegur til landsins
kom út í bandaríkjunum í gær.
Tiger Woods
PGA Tour 08
Íþróttaleikur
Nintendo Wii
tölvuleiKur
H H H H H
Örninn er nýi fuglinn
Tiger Woods PGA Tour 08
Leikurinn lítur vel út að vanda
en er of auðveldur sé notast
við hefðbundnar stýringar.