Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Síða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Síða 55
DV Helgarblað föstudagur 19. október 2007 55 LakkhæLar skófatnaðurinn er alltaf áhugaverður á sýningum og margir hönnuðir komu á óvart þar sem þeir höfðu fallið fyrir lakkinu. Lakkhælar voru áberandi hjá mörgum hönnuðum í hinum ýmsu formum og litum. Hælarnir voru ýmist alveg lakk eða bara hæll- inn eða táin en hvað um það, bara ef þeir voru í lakkbúningi. LueLLa með Lovefoxxx „twist“ Lovefoxxx (Luísa Hanaê Matsushita) er söngkonan í indie-elektró- bandinu Cansei de ser sexy. Lovefoxxx, sem er trúlofuð klaxons- drengnum, simon taylor-davis, er að fara að vinna með hönnuð- inum Luella bartley að sumar- og vorlínunni 2008. Það verður spennandi að sjá hvernig sú útkoma verður því Lovefoxxx er með mjög afgerandi stíl sem mun vonandi setja svip á hönnun Luella. Persónan sigga mæja DaviD DaviD twenty8tweLve david david eða réttu nafni david saunders vinnur með línur og stærðfræðileg form ef svo má segja. formgerðin er ótrúlega falleg, mjúk og hvöss í bland en litirnir flæða á milli þess að vera fölir yfir í að vera „neon“-skærir. Þetta er fyrsta línan fyrir konur og karla fyrir sumar og vor 2008. fatnaðurinn er sportlegur í bland við „street“ en ávallt með hans einkennismerki sem eru grafíkin og prentið. söngkonan M.I.a. er heitur aðdáandi davids david sem og aðrir en kíkið á heimasíðuna http://www.daviddavid.co.uk/, skoðið og njótið. twenty8twelve er merki þeirra systra sienna og savannah Miller en eins og flestir vita er sienna fyrirmynd margra hvað varðar tísku. sienna lagði leiklistina fyrir sig þrátt fyrir mikinn áhuga á tísku en savannah systir hennar fór í fatahönnun í Central saint Martin. Með þetta að grunni ákváðu þær að búa til sína eigin hönnun undir merkinu twenty8twelve. Þær eiga síðuna http://www.twenty8twel- ve.com/ Megadíva Nafn? „sigga Mæja.“ aldur? „22 ára.“ Starf? „stuðningsfulltrúi á frístundaheim- ili, móttaka í borgarleikhúsi, barþjónn.“ Stíllinn þinn? „Núna er það mikið föt í eighties- og nineties-anda – svartur og sterkir litir, klossaðir skór og litríkar leggings.“ allir ættu að? „fá sér góða skó svo þeir blotni ekki í tærnar í vetur.“ hvað er möst að eiga? „Ég er voða hrifin af öllu prjónuðu núna, kjólar, peysur, sokkar – hvað sem er!“ hvað keyptir þú þér síðast? „fjólubláa, támjóa skó.“ hverju færð þú ekki nóg af? „fallegum kjólum og vixen-hælum.“ Næsta tilhlökkun? „að sjá barnið í bumbunni.“ hvert fórstu síðast í ferðalag ? „Í sumar skrapp ég til mömmu í köben.“ hvað langar þig í akkúrat núna? „Mig langar í stóran skyrtukjól frá aftur systrum.“ Perlur hér heima? „gamla sveitin mín, Mýrdalurinn.“ hvenær fórstu að sofa í nótt?“ allt of seint...“ hvenær hefur þú það best? „Í hugguleg- heitum með góðum vinum.“ afrek vikunnar? „svaraði spurningum fyrir dV.“ http://www.daviddavid.co.uk/ Chanel LoVefoXXX Luella bartley

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.