Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Blaðsíða 55
DV Helgarblað föstudagur 19. október 2007 55
LakkhæLar
skófatnaðurinn er alltaf áhugaverður á sýningum og margir
hönnuðir komu á óvart þar sem þeir höfðu fallið fyrir lakkinu.
Lakkhælar voru áberandi hjá mörgum hönnuðum í hinum ýmsu
formum og litum. Hælarnir voru ýmist alveg lakk eða bara hæll-
inn eða táin en hvað um það, bara ef þeir voru í lakkbúningi.
LueLLa með Lovefoxxx „twist“
Lovefoxxx (Luísa Hanaê Matsushita) er söngkonan í indie-elektró-
bandinu Cansei de ser sexy. Lovefoxxx, sem er trúlofuð klaxons-
drengnum, simon taylor-davis, er að fara að vinna með hönnuð-
inum Luella bartley að sumar- og vorlínunni 2008. Það verður
spennandi að sjá hvernig sú útkoma verður því Lovefoxxx er með
mjög afgerandi stíl sem mun vonandi setja svip á hönnun Luella.
Persónan
sigga mæja DaviD DaviD
twenty8tweLve
david david eða réttu nafni david
saunders vinnur með línur og
stærðfræðileg form ef svo má
segja. formgerðin er ótrúlega
falleg, mjúk og hvöss í bland en
litirnir flæða á milli þess að vera
fölir yfir í að vera „neon“-skærir.
Þetta er fyrsta línan fyrir konur og
karla fyrir sumar og vor 2008.
fatnaðurinn er sportlegur í bland
við „street“ en ávallt með hans
einkennismerki sem eru grafíkin
og prentið. söngkonan M.I.a. er
heitur aðdáandi davids david sem
og aðrir en kíkið á heimasíðuna
http://www.daviddavid.co.uk/,
skoðið og njótið.
twenty8twelve er merki þeirra systra sienna og savannah Miller en
eins og flestir vita er sienna fyrirmynd margra hvað varðar tísku.
sienna lagði leiklistina fyrir sig þrátt fyrir mikinn áhuga á tísku en
savannah systir hennar fór í fatahönnun í Central saint Martin. Með
þetta að grunni ákváðu þær að búa til sína eigin hönnun undir
merkinu twenty8twelve. Þær eiga síðuna http://www.twenty8twel-
ve.com/
Megadíva
Nafn? „sigga Mæja.“
aldur? „22 ára.“
Starf? „stuðningsfulltrúi á frístundaheim-
ili, móttaka í borgarleikhúsi, barþjónn.“
Stíllinn þinn? „Núna er það mikið föt í
eighties- og nineties-anda – svartur og
sterkir litir, klossaðir skór og litríkar
leggings.“
allir ættu að? „fá sér góða skó svo þeir
blotni ekki í tærnar í vetur.“
hvað er möst að eiga? „Ég er voða hrifin
af öllu prjónuðu núna, kjólar, peysur,
sokkar – hvað sem er!“
hvað keyptir þú þér síðast? „fjólubláa,
támjóa skó.“
hverju færð þú ekki nóg af? „fallegum
kjólum og vixen-hælum.“
Næsta tilhlökkun? „að sjá barnið í
bumbunni.“
hvert fórstu síðast í ferðalag ? „Í sumar
skrapp ég til mömmu í köben.“
hvað langar þig í akkúrat núna? „Mig
langar í stóran skyrtukjól frá aftur
systrum.“
Perlur hér heima? „gamla sveitin mín,
Mýrdalurinn.“
hvenær fórstu að sofa í nótt?“ allt of
seint...“
hvenær hefur þú það best? „Í hugguleg-
heitum með góðum vinum.“
afrek vikunnar? „svaraði spurningum
fyrir dV.“
http://www.daviddavid.co.uk/
Chanel LoVefoXXX Luella bartley