Fréttatíminn - 25.04.2014, Page 53
Barnamenning
Barnamenningarhátíð í Reykjavík dagana 29. apríl til 4. maí
B arnamenningarhátíð í Reykjavík hefst í næstu viku, þriðjudaginn 29. apríl og stendur til sunnudagsins 4. maí. Þar verða í boði fjöldi spenn-
andi viðburða fyrir unga sem aldna um alla
borg og er aðgangur ókeypis. Markmiðið
með Barnamenningarhátíð er að efla menn-
ingarstarf barna í borginni og er hátíðin nú
haldin í fjórða sinn. Hátíðin er haldin í sam-
vinnu við skóla- og frístundasvið borgarinnar
og eru bæði leik- og grunnskólanemendur
virkir þátttakendur. „Hugmyndin er að bjóða
upp á menningu barna, menningu fyrir börn,
og menningu með börnum. Viðburðirnir
eru á þeirra forsendum og fyrir þau. Lögð er
áhersla á að viðburðirnir séu víða um borgina
og að fjölbreytileikinn sé í fyrirrúmi,“ segir
Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, kynningar-
stjóri Barnamenningarhátíðar.
Í ár verður lögð sérstök áhersla á að hvetja
börn og barnafjölskyldur utan af landi til
að sækja viðburði Barnamenningarhátíðar.
„Markmiðið er að gera Reykjavík sem að-
gengilegasta og skemmtilegasta fyrir börn,“
segir Sigríður Dögg. Hjá Flugfélagi Íslands
er sérstakt tilboð á flugi til Reykjavíkur fyrir
börn og kostar það aðeins einn vildarpunkt
og fá börnin sem nýta sér það gefins Gesta-
kort Reykjavíkur sem veitir aðgang að strætó,
sundlaugum, ferjunni til Viðeyjar og fleiru.
Iðnó verður breytt í barnamenningarhús
frá 30. apríl til 3. maí undir nafninu Ævintýra-
höllin. Þar geta börn nýtt skapandi hæfileika
sína og verður boðið upp á fjöldann allan af
spennandi viðburðum, eins og barnaball
með Valdimar Guðmundssyni, danssýningu,
bardagadans og hljóðfæra- og grímusmiðju
svo fátt eitt sé nefnt.
Sviðslistahátíð ASSITEJ verður haldin 29.
apríl til 3. maí samhliða Barnamenningarhá-
tíðinni. ASSITEJ eru samtök um leikhús
fyrir unga áhorfendur. Á dagskránni eru
leik- og danssýningar fyrir alla fjölskylduna
og eins og með aðra viðburði Barnamenn-
ingarhátíðar er frítt inn. Miðar verða afhentir
á sýningarstað klukkustund áður en hver við-
burður hefst. Meðal dagskrárliða hjá ASSI-
TEJ er leikritið Litli prinsinn sem sýnt verður
í Þjóðleikhúsinu miðvikudaginn 30. apríl.
Það þykir henta einkar vel fyrir áhorfendur á
aldrinum 6 til 12 ára. Sýningin var frumsýnd
nú nýlega í Þjóðleikhúsinu og hefur fengið
góða dóma.
Á Þjóðminjasafninu verða ýmsir skemmti-
legir viðburðir í tilefni af Barnamenning-
arhátíð. Sunnudaginn 4. maí býður Þjóð-
minjasafnið börnum á öllum aldri að hlusta
á álfasögur í silfurhelli sýningarinnar Silfur
Íslands. Börnin fá höfuðljós og slökkt verður
á ljósum í Bogasal þar sem lesnar verða álfa-
og huldufólkssögur í myrkrinu.
Allar nánari upplýsingar um hátíðina má
nálgast á vefnum www.barnamenningarha-
tid.is. Þar er sérstakur flipi undir heitinu
ungir blaðamenn þar sem lesa má fréttir sem
börn skrifa um hátíðina. Á dögunum fékk
hópurinn grunnþjálfun í blaðamennsku hjá
Morgunblaðinu.
Frítt inn á alla viðburði
Barnamenningarhátíðar
Á Barnamenningarhátíð í Reykjavík er boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn á öllum aldri. Sérstök áhersla er lögð á að bjóða börnum og barnafjölskyldum utan af landi
að sækja hátíðina í ár. Iðnó verður breytt í Ævintýrahöll þar sem meðal annars verður haldið barnaball með Valdimar Guðmundssyni og vinum.