Brennidepill - 01.03.1998, Page 5

Brennidepill - 01.03.1998, Page 5
Framboðslistar beggja fylkinga í borgarstjórn Reykjavíkur, Reykjavíkurlistans og Sjálfstæðisflokksins, liggja nú fyrir að Leiðtogar beggja borgarstjórnarfylkinga • _ i • loknu prófkjöri hjá þeim báðum. Lokaspretturinn fyrir teknir tali kosningarnar er hafinn. Utlit er fyrir harða baráttu um meirihlutann í stjórn höfuðborgarinnar, en að sjálfsögðu verða það kjósendurnir sem eiga lokaorðið og velja þá fulltrúa sem þeir treysta best til að stýra borginni. í því skyni að gera fólki kleift að glöggva sig á þeim áherslum sem fylkingarnar tvær standa fyrir fengu blaðamenn Brennidepils, Bryndís Hólm og fluðunn flrnórsson, leiðtoga þeirra beggja, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra og flrna Sigfússon, oddvita sjálfstæðismanna, til að greina frá því helsta sem einkenna mun kosningabaráttuna og meta það sem gerst hefur í borgarmálunum á því kjörtímabili sem senn er á enda. „ Okkar stærsta baráttumál verð- ur aö halda áfram því verki aö breyta Reykjavík- urborg úr stöön- uöu stjórnvaldi í þjónus tufyrirtæki sem rekiö er í þágu borgarbúa. “ „Ég held aö þaö væri bæöi höfuö- borgarbúum og landsbyggöarfólki til hagsbóta ef þaö væru víöar en hér sterkir byggðakjarnar.“ ir aldraða. Ríkið greiðir allan kostnað af rekstri hjúkrunarheimila og a.m.k. 40% af stofnkostnaði þeirra og því ekki hægt að fara út í framkvæmdir nema með þeirra sam- þykki. Því miður hefur höfuðborgin algerlega setið á hakanum á sama tíma og mikil upp- bygging hefur verið víða úti á landi. Á Suður- landi eru td. 24 stofnanarými fyrir aldraða á hverja 100 íbúa 70 ára og eldri, á móti 10 rým- um hér í borginni. Engu að síður er verið að byggja hjúkrunarheimili í Hveragerði. Þetta nær auðvitað ekki nokkurri átt nema menn vilji fara að taka upp hreppaflutninga aftur. Tæplega 40% landsmanna búa í Reykjavík og 47% þeirra sem eru 70 ára og eldri. Hér eru því hlutfallslega fleiri aldraðir en annars stað- ar á landinu þannig að brýnt er að hér verði frekari uppbygging á hjúkrunarrýmum, þar sem vandinn er einna stærstur á því sviði. Borgin getur og hefur boðist til þess, ásamt Rauða krossinum, að leggja sitt af mörkum til móts við ríkið hvað varðar stofnframlög. Það boð okkar er enn óafgreitt. Það þarf líka að samtvinna heimilishjálpina, sem borgin rek- ur, og heimahjúkrunina, sem er á vegum rík- isins, þannig að fólk geti búið sem lengst heima hjá sér. Umhverfis- og umferðarmálin eru mikil- vægir málaflokkar og það þarf að halda áfram þeirri uppbyggingu sem þar hefur átt sér stað. það þarf að aðskilja meira gangandi og ak- andi umferð með því að halda áfram uppbygg- ingu á göngubrúm, auk þess sem taka þarf á óæskilegum áhrifum umferðar, á borð við hljóðmengun og loftmengun. í orkumálum er mikið að gerast og stendur þar upp úr bygg- ing Nesjavallavirkjunar, sem er stærsta fram- kvæmd sem farið hefur verið út í í áratugi. Tekjur af virkjuninni munu stuðla að mun lægri orkugjöldum til almennings í framtíð- inni og skapa fyrirtækjum í Reykjavík ný sóknarfæri. Þá er sameining Hitaveitunnar og Rafmagnsveitunnar nú til sérstakrar skoð- unar en hún getur bæði skilað hagræðingu og aukið möguleika veitnanna til að taka þátt í alþjóðlegum samstarfsverkefnum. Með öllu þessu erverið að búa í haginn fyriratvinnulíf framtíðarinnar. Hvað atvinnumálin varðar að öðru leyti þá þarf að skapa hentugt umhverfi og aðstæður fyrir fyrirtækin í borginni. í því sambandi þarf sérstaklega að huga að hentugum lóðum fyrir atvinnustarfsemi en á þessu kjörtímabili hef- ur Reykjavíkurhöfn úthlutað og búið til meira land lyrir atvinnufyrirtæki en í marga áratugi þar á undan. Það er því mikið að gerast í at- vinnumálum í gegnum lóðaúthlutanir. Sam- gönguleiðir að og frá borginni þurfa náttúr- lega að vera í lagi og hugmyndin er sú að framtíðaratvinnusvæði rísi á hluta af Geld- inganesi. Það er því mikilvægt að Sunda- brautin komi sem fyrst og brú yfir Kleppsvík yfir á Kjalames. Þetta myndi þýða að hægt yrði að fara með þungaflutninga af ýmsu tagi framhjá hinni eiginlegu íbúðabyggð. Samein- ing Reykjavíkur og Kjalamess gerir það svo að verkum að hægt verður að reisa ný íbúða- svæði meðfram ströndinni áÁlfsnesinu. Hvað með straum fólks utan af landsbyggöinni, ætti borgin aöýta undir þann straum eöa ekki? Ég held að það sé ekki á valdi okkar að stjóma fiutningum fólks frá landsbyggðinni til borg- arinnar. Ég held aftur á móti að sú þróun sé í sjálfu sér ekki æskileg og að borgin eigi því ekki að ýta undir hana. Það hefur þær afleið- ingar að mannlíf í landinu verður ekki eins fjölskrúðugt. Að auki nýtist fjárfesting á landsbyggðinni illa en á sama tíma þarf að byggja upp hér í borginni fyrir þetta sama fólk. Sem dæmi má nefna að þrátt fyrir að engin fjölgun hafi orðið í aldurshópi gmnn- skólabarna á landinu í nokkur ár, þá hefur gmnnskólabömum fjölgað töluvert í Reykja- vík. Það segir okkur auðvitað það að þeim er að fækka annars staðar. Það fækkar e.tv. um 1 eða 2 í hveijum skóla úti á landi sem dregur hvorki úr rekstrarkostnaði þeirra skóla né breytir nokkm um þær fjárfestingar sem þar eru. I borginni þurfum við hins vegar að byggja til að geta tekið á móti þessum böm- um, plga bekkjum og kennumm sem hefur auðvitað heilmikil útgjöld í fdr með sér. Við fáum vitaskuld útsvarstekjur af foreldmm þessara bama en fyrir samfélagið í heild hlýst af þessu kostnaðarauki. Ég held að það væri bæði höfuðborgarbúum og landsbyggðarfólki til hagsbóta ef það væm víðar en hér sterkir byggðakjamar. Reykjavík er ekki og á ekki að vera andstæðingur landsbyggðarinnar. Reykja- vík er höfuðborg, og sem slík sameign okkar allra og á að þjóna landsmönnum öllum. Það á ekki að vera keppikefli hjá okkur að draga hingað fólk frá öðmm byggðarlögum. l.tbl. 1998 5

x

Brennidepill

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Brennidepill
https://timarit.is/publication/1061

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.