Brennidepill - 01.03.1998, Side 8

Brennidepill - 01.03.1998, Side 8
Sveitarfélögin eflast viö stækkun Hólmfríður Sveinsdóttir. Deildarsérfræðingur á Vinnumálastofnun frá janúar 1995. BA í stjórnmálafræði frá H.í. (með fjölmiðla- fræði sem aukagrein) í júní 1994. Efni lokaritgerðar: Sameining sveitarfé- laga á íslandi og í sam- anburði við önnur Norðurlönd. Eitt mesta vandamál íslenska sveitar- stjórnarstigsins er misjafn íbúafjöldi sveit- arfélaga og hvað mörg þeirra eru fámenn. Þetta hefur verið þrándur í götu umbótatil- rauna í þá átt að flytja verkefni og tekju- stofna frá ríki til sveitarfélaga, en til þess að sveitarfélög geti sinnt auknum verkefn- um verða þau að stækka þannig að íbúa- Qöldinn fari yfir ákveðið mark. En hvers vegna þarf að efla sveitarfé- lögin? Ef litið er fram hjá allri hagkvæmni þá er mikil og skemmtileg rómantík yfir öllum þessum litlu og fámennu sveitarfé- lögum og um er að ræða séríslenskt fyrir- brigði. í minnstu sveitarfélögunum liggur við að allir íbúarnir þurfi að sitja í hrepps- nefndinni eða nefndum henni tengdum. Hvernig er hægt að sjá lýðræðið virka bet- ur en einmitt þannig? Væri ekki betra að skipta stóru sveitarfélögunum niður í litlar einingar þar sem íbúamir hafi mun meira vægi en þeir hafa í dag? Því miður gengur þessi draumsýn ekki upp í nútíma þjóðfélagi. Hvorki út frá hag- kvæmnisforsendum né út frá þörfum íbú- anna. Sveitarfélögin eru einfaldlega æski- legri rekstraraðili en ríkið í ýmsum mála- flokkum og þau eru betur til þess fallin að sinna staðbundnum verkefnum. Ríkisvald- ið annist aftur á móti verkefni sem hag- kvæmara er að leysa á landsvísu. Sveitar- stjórnarmenn eru í þeirri aðstöðu að þekkja best aðstæður, þarfir og viðhorf íbúanna til framkvæmda og þjónustu og því er rétt að nýta þá þekkingu með því að fela sveitarfélögum aukin verkefni og aukna ábyrgð. Til þess að koma í veg fyrir óþarfa spennu og togstreitu milli sveitarfé- laga og ríkis þá verður verkaskiptingin að vera skýr og hver málaflokkur heyri, eftir því sem kostur er, aðeins undir einn aðila. Tekjustofnar Með auknum verkefnum verða sveitarfé- lög óhjákvæmilega fyrir kostnaðarauka og því verður að tryggja þeim fullnægjandi tekjustofna til að sinna verkefnum sem þeim er falið með lögum. Tekjustofnakerfi sveitarfélaga verður að vera nægilega fjöl- þætt og sveigjanlegt til þess að geta mætt breytingum á kostnaði við framkvæmd verkefna og tekjur sveitarfélaganna ættu að byggjast sem mest á staðbundnum sköttum og þjónustugjöldum. Það er stað- reynd að tekjumöguleikar sveitarfélaga eru misjafnir og því verður möguleikinn á jöfnunarframlögum úr sameiginlegum sjóðum ríkis og sveitarfélaga áfram að vera fyrir hendi. Annars eiga fjárframlög ríkisins að vera almenn og í eins litlum mæli og mögulegt er eymamerkt til ákveð- inna verkefna. Árið 1990 var gerð úttekt á fjárhag þeirra sveitarfélaga er verst stóðu og nið- urstaðan var sú að fjárhagur litlu sveitarfé- laganna gæfi ekki sérstakt tilefni til sam- einingar en aftur á móti er það ljóst að vegna fámennis geta litlu hrepparnir ekki veitt þá þjónustu og þann samfélagslega styrk sem nútímasamfélag gerir kröfur um. Að fámennu sveitarfélögin ráði illa við þau verkefni sem nú þegar eru þeim lög- boðin, hvað þá að þau hafi bolmagn til að takast á við ný og aukin verkefni, fylgir sú hætta að þýðing sveitarfélaganna fari minnkandi í þjóðfélaginu, umsvif ríkis á kostnað sveitarfélaga aukist og verkefni þeirra falli í annarra hendur. Grundvallar- forsenda þess að efla sveitarstjórnarstigið er að stækka minnstu sveitarfélögin og það gerist ekki öðruvísi en með samein- ingu þeirra. Sveitarfélög sem hafa innan við 1000 íbúa geta ekki tekið að sér aukin og fjölbreyttari verkefni ein og óstudd. Vissulega má benda á að fámennu sveitar- félögin geti leyst sín verkefni með stofnun byggðasamlaga en þá er um að ræða fram- sal á valdi sem er bæði óskilvirkt og ólýð- ræðislegt. Millistjórnsýslustig yrði of dýrt fyrir svo fámenna þjóð og því er sameining sveitarfélaga eitt brýnasta verkefni stjórn- sýslunnar. Þess ber að gæta að aukin verkaskipting og sameining sveitarfélaga fylgjast að. Varhugavert er að ganga of langt með annað á meðan ekkert er gert með hitt. Til þess að þetta viðamikla verkefni nái fram að ganga verður að nást um það góð pólitísk samstaða. í gegnum tíðina hafa ís- lensk stjórnvöld ýtt þessu máli á undan sér og menn hafa bent hver á annan þegar þau ber á góma. Lítið hefur borið á markvissri stefnumörkun, sérstaklega til lengri tíma litið. Árið 1991 skipaði Jóhanna Sigurðar- dóttir, þáverandi félagsmálaráðherra, nefnd sem hafði það hlutverk að vinna samræmdar tillögur um nýja skiptingu landsins í sveitarfélög og má segja að hjól- in hafi þá fýrst tekið að snúast varðandi sameiningarmál sveitarfélaga. Eitt mark- miða þeirrar vinnu sem félagsmálaráð- herra hrinti af stað var kosning um sam- einingu sveitarfélaga sem fram fór um allt land þann 20. nóvember 1993. Tillögurnar fólu í sér að sveitarfélögum yrði fækkað úr 196 í 43. Niðurstaðan var sú að ein tillaga af 32 var samþykkt. Þó svo að margir hafi orðið fyrir vonbrigðum með úrslitin þá segir það sem upp úr kjörkössunum kom ekki alla söguna. Reyndar voru 58,1% þeirra sem greiddu atkvæði fýlgjandi sam- einingu á móti 41,9% sem voru henni and- vígir. Sumir voru þeirrar skoðunar að í stað þeirrar lýðræðislegu leiðar sem farin var hefði átt að sameina sveitarfélög með lögboði. En eftir því sem frá líður má segja að almenn samstaða sé um að sú leið sem fýrir valinu varð eigi eftir að skila meiri og betri árangri til lengri tíma litið. Þó að ár- angur atkvæðagreiðslunnar hafi ekki verið mikill, í sameiningum talið, þá er mesti sigurinn í raun fólgin í þeirri almennu vakningu sem varð um nauðsyn þess að efla sveitarfélögin, á það jafnt við um for- ráðamenn sveitarfélaga sem og almenning í landinu. ítarleg umræða skapaðist um sveitarstjórnarmál og hlutverk sveitar- stjórna og stendur sú umræða enn og hef- ur skilað sér í að nokkur sveitarfélög hafa þegar sameinast, önnur hafa ákveðið kjör- dag vegna sameiningar og enn önnur eiga í alvarlegum sameiningarviðræðum. Reynsla Norðurlanda Sú umræða sem íslendingar hafa verið að fara í gegnum á síðustu árum varðandi sameiningu sveitarfélaga er mjög sam- bærileg við það sem hin Norðurlöndin fóru í gegnum fýrir þremur til fjórum ára- tugum. Á árunum eftir síðari heimsstyij- öldina urðu miklar og djúptækar breyting- |j|| l.tbl. 1998

x

Brennidepill

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Brennidepill
https://timarit.is/publication/1061

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.