Brennidepill - 01.03.1998, Side 13
Reynslusveitarfélög -
tilraunir
í stjórnsýslu
Árið 1994 voru sett lög á Alþingi um
reynslusveitarfélög. Með lögunum var
sveitarfélögum gert kleift að taka að sér í
tilraunaskyni til fjögurra ára ný verkefni
eða verkefni sem áður voru á hendi ríkis-
ins. Jafnframt því að viðkomandi sveitarfé-
lög geta reynt nýtt rekstrar- og fjármögnun-
arfyrirkomulag geta þau þróað nýjungar í
stjórnsýslu og fengið til þess undanþágur
frá núgildandi lögum ef þörf krefur. Mark-
miðin með þessum tilraunum eru göfug; að
auka sjálfsstjórn sveitarfélaganna, laga
stjórnsýslu þeirra betur að staðbundnum
aðstæðum, bæta þjónustu við íbúa og nýta
betur fjármagn hins opinbera. Það er skýrt
tekið fram í lögunum að tilraunirnar mega
ekki hafa í fór með sérskerðingu á réttind-
um íbúanna né fela í sér auknar fjárhags-
legarbyrðar fýrirþá.
Það var strax áhugi fyrir því að Akureyri
yrði reynslusveitarfélag. Skipuð var fram-
kvæmdanefnd sem annast skyldi umsóknir
og framkvæmd verkefna. Nefndin auglýsti
eftir tillögum frá bæjarbúum, nefndum og
starfsmönnum bæjarins og upp úr því varð
til hugmyndabanki sem innihélt á milli 60
og 70 hugmyndir. Upp úr þessum hug-
myndabanka urðu til átta umsóknir um til-
raunaverkefni. Þessar umsóknirvoru send-
ar verkefnisstjóm reynslusveitarfélaga sem
starfar á vegum félagsmálaráðuneytisins.
Sótt var um að gera tilraunir með nýbreytni
í eftirtöldum málaflokkum: í þjónustu við
aldraða, í þjónustu við fatlaða, á sviði
menningarmála, félagslegra húsnæðis-
mála, starfsemi byggingafulltrúa, starfsemi
skipulagsdeildar og þjónustu við atvinnu-
lausa. Loks voru skipulögð svonefnd heima-
verkefni: Bætt skilvirkni bæjarkerfisins og
bætt samskipti við bæjarbúa. Þessi verkefni
snúast ekki öll um verkefnatilflutning,
heldur einnig um breytta og bætta starfs-
hætti. Fljótlega var horfið frá verkefninu
um skiplagsmál vegna dræmra undirtekta
umhverfisráðuneytis, en ráðuneytið var þá
að undirbúa breytingar á lögum um bygg-
ingar- og skipulagsmál. Akureyrarbær hef-
ur ákveðið að falla frá verkefninu um fé-
lagsleg húsnæðismál.
Stærstu verkefnin á landinu
Yfirtaka á málefnum fatlaðra er stærsta
reynsluverkefnið á landinu. Svæðisskrif-
stofa um málefni fatlaðra á Norðurlandi
eystra hafði áður með málaflokkinn að
gera. Samkvæmt samningi við félagsmála-
ráðuneytið fær Akureyrarbær um 280 millj-
ónir á ári til að annast þjónustuna á Eyja-
fjarðarsvæðinu. Verkefni sem svæðisskrifs-
Þórgnýr Dýrfjörð
Verkefnisstjóri
reynsluverkefna hjá
Akueyrarbæ.
BA í heimspeki H.í.
1993 auk náms í gæða-
og verkefnastjórnun.
Áður birtar greinar um
sama efni:
„Stærsta verkefnið á
landinu44 Sveitar-
stjórnarmál, 57. árg.,
l.tbl. 1997.
„Reynslusveitarfélagið
Akureyri4* (viðtal)
Þroskahjálp, 19. árg.
3. tbl. 1997.
HéRMA, VIMUlR,
'PGTTf] rVjATTO .