Sveitarstjórnarmál - 28.12.1947, Page 7
SVEITARSTJÓRNARMÁL
5
Jónas Guðmundsson:
Magnús Sigurðsson
bankastjóri
látinn
Hinn 27. október s. 1. varð Magnús Sig-
urðsson, bankastjóri Landsbankans, bráð-
hvaddur í Genúa á Italíu. Magnús Sigurðs-
son hafði tekið sér frí frá störfum stuttan
tíma og ætlaði að hvíla sig suður við Mið-
jarðarhaf og í Sviss fram eftir vetrinum
og var dóttir hans í för með honum. Er
þau komu á gistihús það, sem þeim hafði
verið útvegað í Genúa, hneig Magnús
Sigurðsson niður í lyftunni á leið til her-
bergis síns og var þegar örendur.
Magnús Sigurðsson var Reykvíkingur.
Hann var fæddur í Reykjavík 14. júní
1880 og upp alinn þar. Að honum stóðu
traustar ættir af Suðurlandi. Hann varð
stúdent 1901 og lauk lögfræðiprófi 1906.
Aðalstarf M. S. varð við Landsbanka fs-
lands. Þvi starfi tók hann við 1917 og
gengdi því óshtið til dauðadags, í nákvæm-
lega 30 ár.
Þegar hlutlaus saga dæmir verk M. S.
kæmi mér það ekki á óvart að hann yrði
talinn í beim hópi manna, sem taldir verða
hafa fórnað sér fyrir hugsjón sína. M. S.
átti þá hugsjón,að Landsbankinn yrði sterk
og öflug stofnun, sem borið gæti með sæmd
allar bær byrðar, sem á hann yrðu lagðar
með nokkuru viti og sanngirni. Hann átti
þá ósk heitasta að geta skilað Landsbank-
anum af sér til þeirra, sem við áttu að
taka, sem vel stæðri stofnun og án þeirra
skuldbindinga, sem síðar gætu orðið bank-
anum og þjóðinni fjötur um fót. Þetta
tókst honum. Við Landsbankann mun
nafn M. S. ávallt verða tengt meðan sú
stofnun stendur.
★
Eins og nærri má geta, átti M. S. marg-
vísleg afskipti af fjármálum hinna ís-
lenzku sveitarfélaga er þau þurftu á láns-
fé að halda til margvíslegra framkvæmda
sinna og starfsemi. Þykir því hlýða að
minnast hans nú hér fáum orðum er hann
er látinn. Og einmitt hér ber að minnast
þeirrar starfsemi Magnúsar Sigurðssonar,
sem nú sér merki i hverjmn kaupstað og
öllum stærri kauptúnum þessa lands, en
það er þáttur hans í byggingu verka-
mannabústaðanna. M. S. var frá öndverðu
formaður í stjórn Byggingasjóðs verka-