Sveitarstjórnarmál - 28.12.1947, Side 20
i8
SVEITARSTJÓRNARMÁL
1915 og með öðrum nánara tilteknum skil-
yrðum. Fyrstur símstöðvarstjóri þar var
Pétur Sighvatsson. Nú er þar símstöðvar-
stjóri Þórður Sighvats sonur hans.
Með auglýsingu landshöfðingja um
póstmál, dags. 25. nóv. 1879, og sem gildi
tók 1. jan. 1880 er svo fyrir mælt að bréf-
hirðing skuli stofnuð á Sauðárkróki. Um
1890 er þar stofnuð póstafgreiðsla, og hef-
ur verið þar síðan. Um langt árabil voru
því tvær póstafgreiðslur í Skagafirði, hin
að Viðimýri, en er nú lögð niður. Fyrsta
árið var Jónas Jónsson póstafgreiðslumað-
ur á Sauðárkróki, en síðan Kristján Blön-
dal í 39 ár. Núverandi póstafgreiðslumað-
ur er Valgarð Blöndal sonur hans.
Helztu félög er stofnuð voru á Sauðár-
króki fyrir aldamót. og enn eru starfandi,
eru:
Leikfélag Sauðárkróks, stofnað 1888.
Hið Skagfirzka kvennfél., stofnað 1896.
I.O.G.T. st. Gleym mér ei stofnuð 1897.
U.M.F. Tindastóll var stofnað 1907.
SAUÐÁRKRÓKSHREPPUR
Árið 1907 er hinum forna Sauðárhreppi
skipt í tvö sveitarfélög, Sauðárkrókshrepp
og Skarðshrepp.
Bréf stjórnarráðsins, dags. 9. apríl 1907,
til sýslumannsins í Skagafjarðarsýslu, um
skiptingu Sauðárhrepps er svohljóðandi:
.,Með brjefi yðar, herra sýslumaður,
dags. 12. f. m., hefir stjórnarráðinu borizt
erindi frá hreppsnefndinni í Sauðárhreppi
í Skagafjarðarsýslu um skipting þessa
hrepps í tvö sveitarfjelög ásamt meðmæl-
um hlutaðeigandi sýslunefndar með því
að skiftingin verði leyfð.
Utaf þessu skal hjer með, samkvæmt
sveitarstjórnarlögum 10. nóv. 1903, skipað
svo fyrir sem hjer segir:
1. Sauðárhreppi í Skagafjarðarsýslu
skal skift i tvö sveitarfélög, þannig
að Sauðárkrókskauptún með jörðinni
Sauðá verði hreppur út af fyrir sig
og nefnist Sauðárkrókshreppur, og
hinn hluti hins forna Sauðárhrepps
verði hreppur út af fyrir sig .og nefn-
ist Skarðshreppur.
2. öllum eignum, skuldum og sveitar-
þyngslum hins núverandi Sauðár-
hrepps þeim er verða þegar skipþng
fer fram, skal skipt þannig milli
hinna nýju hreppa, að í hlut Sauðár-
krókshrepps komi 5/6 hlutar en í hlut
Skarðshrepps 1/6 hluti, og eftir sama
hlutfalli skal skifta sveitarþyngslum,
er síðar kunna til að koma og eiga
rót sína i félagsskap þeim, sem hing-
að til hefir átt sjer stað milli hinna
nýju hreppa.
Þó er gjörð sú undantekning frá
nýnefndri reglu um skifting eign-
anna, að styrktarsjóður fátækra í
Sauðárhreppi eða Gjafasjóður Sig-
urðar Guðmundssonar frá Heiði, skal
vera fyrst um sinn óskiftur og undir
stjórn beggja hreppanna, en hinir ár-
legu vextir af sjóðnum, sem til út-
hlutunar koma, skulu skiftast þann-
ig, að i hlut Sauðárkrókshrepps komi
2/3 hlutar, en í hlut Skarðshrepps
komi 1/3 hluti.
3. Aðskilnaður hreppanna skal fram
fara, þegar er hreppsnefndir hafa
verið kosnar í báðum hinum nýju
hreppum, og skulu vera 5 hrepps-
nefndarmenn í Sauðárkrókshreppi
en 3 í Skarðshreppi, en þær skulu
síðan framkvæma skiftingu á eign-
um og skuldum og sveitarþyngslum,
en verði ágreiningur útaf skifting-
unni, skal úr honum skorið af sýslu-
nefnd. sem einnig skal kveða á um
fjallskil og afrjetti.
Þetta er yður hjermeð til vitundar gefið
til leiðbeiningar og frekari aðgerða og birt-
ingar að bví viðbættu, að með framan-
greindri fyrirskipan er engin breyting
gjörð á hinum forna Sauðárhreppi sem
dómþinghá nie manntalsþinghá."
Árið 1927 kaupir Sauðárkrókur jörðina
Sauðá og er bar nú stórfelld ræktun. Þá
hefur ennfremur verið keypt stór spilda
af landi Sjávarborgar fyrir sumarbeiti-