Sveitarstjórnarmál - 01.12.1983, Blaðsíða 9
jörðinni, sem sést frá tunglinu, flaug ósjálfrátt í °S cnn berast okkur boð víða að úr heiminum.
huga minn: Hvcrn skyldi hafa grunað, hvað Kór Hvað nr vcrður, skal ósagt látið. Það er hins vegar
Öldutúnsskóla átti í vændum 22. nóvember árið ljóst, að ekki mun skorta vcrkefnin í framtíðinni.
1965, þegar 12 litlar, en áhugasamar stúlkur
mynduðu fyrsta vísinn að kórnum?
Og hvað nú?
Varla vorum við komin heim úr Asíureisunni
miklu, er okkur barst boð frá borgaryfirvöldum í
Komlo í Ungverjalandi um að taka þátt í kóramóti,
sem kennt var við það merka tónskáld Zoldán
Kodálý, og þangað fórum við í vclheppnaða tón-
leikaferð sl. sumar, cftir að hafa tckið þátt í 75 ára
afmæli Hafnarfjarðarkaupstaðar.
„Látum sönginn vera fyrir alla“, einkunnarorð Kódálýs.
Kórinn syngur á tröppum ráðhússins í Komlo í Ungverja-
landi.
Staða skólakóra
Þegar staða skólakóra er skoðuð, kemur í ljós, að
þeir standa fremur völtum fótum. Ekki er gert ráð
fyrir starfi kóranna í rekstrarkostnaði skólanna.
Kórþjálfun og kórstjórn hefur ekki fengizt viður-
kennd sem kcnnsla heldur fallið undir félagsstörf.
Tilraunir Tónmenntakcnnarafélags íslands til að fá
þessu breytt hafa ekki borið árangur til þessa. Starf
kóranna er því alfarið háð velvild og skilningi skóla-
og sveitarstjórna á hverjum stað. Hvað varðar Kór
Öldutúnsskóla sérstaklega, er engin þörf að kvarta.
Bæjaryfirvöld hafa jafnan sýnt kórnum mikla vel-
vild, einkum hin síðustu ár. Eins og fram kemur í
þessari grcin, hcfur kórinn nú farið níu sinnum utan
og hcimsótt fjölda landa í fjórum heimsálfum auk
annarra verkcfna. Ejórum sinnum hefur kórinn
leitað til bæjaryíirvalda sérstaklega og í öll skiptin
hafa þau brugðizt vel við. Fyrir það erum við
þakklát.
Að lokum
Hér að framan hefur aðeins verið drepið á það
allra helzta í sögu Kórs Öldutúnsskóla. Mörgu
verður að slcppa, og mörgum ber að þakka margt á
liðnum árum. Og þá fyrst og fremst þeim fjölmörgu
áhugasömu, velsyngjandi, jákvæðu ungmennum,
sem jafnan hafa skipað raðir kórsins, sömulciðis
gott samstarf við skólastjórn og foreldra. Að gefa
ungmennum kost á að þjálfa hug og hönd við
þroskandi viðfangsefni ætti að vera kcppikefli
hverju sveitarfélagi. Að efla með æskunni dug og
dáð, hcilbrigðan mctnað, sjálfsaga og félagsanda er
sennilega það bczta, sem við forcldrar og uppal-
cndur gctum gert, þegar allt kemur til alls. 327
SVEITARSTJÓRNARMÁL