Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Side 5
stórt skref
til lækkunar á
hítunarkostnaói
FYRIR ÞÁ HÚSEIGENDUR SEM NOTA OLÍU TIL UPPHITUNAR
Hf Raftækjaverksmiðjan í Hafnarfirði hefur um árabil framleitt rafhitara
og neyzluvatnshitara. Við bjóðum rafhitarana með eða án
neyzluvatnsspírals. Neyzluvatnshitarana bjóðum við nælonhúðaða í
stærðunum 30,60, 110, 200 og 300 lítra. Einnig er hægt að fá 200 og 300
lítra hitara með spíral. Er þá neyzluvatnið hitað upp með heitu vatni frá
rafhitara, sem fer í gegnum spíral í neyzluvatnshitaranum.
Við bjóðum því svofellda upphitunarmöguleika:
A: Rafhitari með spíral.
Kostir: Auðveldast og ódýrast í uppsetningu.
B: Rafhitari og neyzluvatnshitari með rafhitun.
Kostir: Tvö aðskilin hitakerfi.
C: Rafhitari og neyzluvatnshitari með spíral.
Kostir: Minna álag og rafhitarinn lengur inni. Meiri vatnsforði.
Öll tækin eru afhent með tvenns konar öryggi.
1. YCrhitavar: Ef hitinn fer yfir suðumark, þá slær hitarinn sjálfvirkt út.
2. Þrýstimælir: Ef þrýstingur fer yfir ákveðin mörk, fer vatnið af
hitaranum.
Öll tækin eru framleidd tilbúin til uppsetningar, og allur búnaður er
viðurkenndur af Öryggiseftirliti ríkisins.
Húsnæðislán:
Nú veitir Húsnæðisstofnun ríkisins mjög hagstæð lán til þess að skipta
úr olíu í rafhitun.
Hafðu samband við sölu- og tæknideild og fáðu
upplýsingar um stærð þess hitara, sem hentar þér.
Við gerum verðtilboð án skuldbindinga.
Góðir greiðsluskilmálar. Stuttur afgreiðslutími.
Stígðu skrefið til fulls, og þú sparar.
rm -fj h n
Rafha Hafnarfirði, símar 50022, 50023, 50322