Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Qupperneq 6
Kristján Magnússon, fv. sveitarstjóri:
Vopnafjardarhreppur
Vopnafjarðarhreppur nær yfir
byggðina milli Sandvíkurheiðar í
norðri og Smjörfjalla að sunnan.
Byggðin í hreppnum er fólgin í þétt-
býliskjarna með um 700 íbúum og
blómlegri sveit, sem telur um 240
manns, þannig að íbúafjöldinn alls
er um 940 manns. íbúaþróun í
sveitarfélaginu hefur verið hægfara,
en tiltölulega jöfn uppávið und-
anfarna áratugi. Árið 1960 voru í
hreppnum 710 íbúar, þar af 345 í
sveitinni og 365 í kauptúninu. Sést
af þessu, að íbúafjölgun í kauptún-
inu hefur orðið veruleg á þessu
tímabili, en fækkun orðið í sveitinni,
eins og víðast hvar annars staðar
vegna breyttra búskaparhátta og
vegna þess að bújarðir hafa farið í
eyði, þótt lítið hafi verið um það hin
allra síðustu ár. Sambýli sveitar og
kauptúns í sama sveitarfélaginu
hefur alla tíð gengið vel og árekstra-
laust, enda hreppurinn landfræði-
leg og félagsleg heild.
Hér á eftir verður lauslega getið
um helztu verkefni sveitarfélagsins
á síðustu árum og gerð grein fyrir
atvinnulífi, samgöngumálum og
fleiru.
Atvinnumál
Vopnafjarðarsveit er frá náttúr-
unnar hendi blómlegt landbúnaðar-
hérað, þar sem ræktunarskilyrði eru
yfirleitt góð og afréttarland gott og
víðfeðmt. Bæði er um mjólkurfram-
leiðslu og sauðfjárbúskap að ræða
á þeim 45-50 bújörðum, sem í
byggð eru. Loðdýrarækt er ört vax-
andi búgrein, sem ætti að eiga
góða framtíð fyrir sér, þótt vöxtur
hennar takmarkist af árstíða-
bundnu framboði á fiskúrgangi til
fóðurframleiðslu. Margar bújarðir
hafa einhver hlunnindi af laxveiði i
Hofsá, Vesturdalsá og í Selá.
Sjávarútvegur og fiskvinnsla er
undirstaðan undir þróun þéttbýlis-
ins, þótt þjónustan við sveitina, svo
sem rekstur mjólkursamlags, slátur-
húss og verzlun með rekstrarvörur
landbúnaðarins, skapi þó nokkuð
mörg atvinnutækifæri. Tangi hf.,
sem er 85-90% í eigu sveitarfé-
lagsins, rekur frystihús, saltfiskverk-
un, skreiðarverkun, fiskimjölsverk-
smiðju, síldarsöltunarstöð og véla-
verkstæði, auk þess að gera út
skuttogarann Bretting. Kolbeins-
tangi hf., sem er að % í eigu Tanga
hf. og að Vfe í eigu Vopna-
fjarðarhrepps og Kaupfélags
Vopnfirðinga, á og gerir út tog-
skipið Eyvind vopna, sem er 200
brl. að stærð. Smábátaútgerð er
talsverð, og auk þess er 50 brl.
bátur í eigu einstaklinga gerður út
frá staðnum. Á síðastliðnum vetri
fundust hörpudiskmið í firðinum,
sem stefnt er að því að nýta þegar á
komandi vetri, og binda menn vonir
við, að skelfiskveiðar og vinnsla
verði f framtíðinni snar þáttur í at-
vinnulífi byggðarlagsins.
Framleiðsluiðnaður er lítill á
staðnum utan þess, að saumastof-
an Hrund hf. framleiðir útflutnings-
vörur úr prjónavoð og veitir 10-12
manns atvinnu. Þjónustuiðnaður og
byggingarstarfsemi er hins vegar
umtalsverður þáttur í atvinnulífinu
og veitir ásamt opinberri þjónustu,
196 sveitarstjórnarmAl