Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Page 7

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Page 7
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps: Fremri röð frá vinstri: Alexander Árnason, Bragi Vagnsson, Emil Sigurjónsson og Hreinn Sveinsson, oddviti. Aftari röð frá vinstri: Aðalbjörn Björnsson, Hilmar Jósefsson, Sveinn Guðmundsson, sveitarstjóri, Kristján Magnússon, fyrrverandi sveitarstjóri, og Ásgeir Sigurðsson. Myndin er tekin við sveitarstjóraskiptin á sl. vori. verzlun og bankastarfsemi fjölda manns atvinnu. Kaupfélag Vopn- firðinga, sem er með meginhluta verzlunarinnar á sinni könnu, auk þess að sjá um þjónustuna við land- búnaðinn og annast byggingar- starfsemi, vélaviðgerðir og fleira, er næststærsti vinnuveitandi á staðn- um. Hafnarmál Eins og alls staðar, þar sem út- gerð og fiskvinnsla er undirstaða atvinnu- og mannlífs, skiptir miklu, að hafnaraðstaða sé góð. Höfnin í Vopnafirði er ekki góð frá náttúrunn- ar hendi, þar sem hún er fyrir opnu hafi. Dýpi og rými er þó nægilegt, og með byggingu brimvarnargarðs á árunum 1968-1969 og innri hafn- argarðs með stálþilsbryggju á árun- um 1977-1979 hefur verið sköpuð allgóð skjólhöfn. Mikið vantar á, að viðlegurými sé nægilegt, og bæta þarf aðstöðu smábáta. Þá er knýj- andi að styrkja brimvarnargarðinn og gera við skemmdir, sem urðu á honum í miklu óveðri í janúar árið 1975. Gatnagerd Eins og víðast hvar á þéttbýlis- stöðum á landsbyggðinni, hefur varanleg gatnagerð verið eitt meginviðfangsefni sveitarfélagsins á síðasta áratug. Um 70% af gatna- kerfi kauptúnsins er nú með olíu- malarslitlagi, og stefnt er að veru- legum áfanga á næsta ári. Fyrsta slitlagið var lagt sumarið 1973, en þá fluttu austfirzk sveitarfélög inn olíumöl frá Noregi, og þarlendir menn sáu um útlagninguna. í næstu áfanga var keypt olíumöl frá Olíumöl hf., en það slitlagsefni var blandað á Reyðarfirði og í Kópa- vogi, en flutt sjóleiðis til Vopnafjarð- ar. Árið 1982 réðst Vopnafjarðar- hreppur í að koma sér upp eigin blöndunarstöð, sem framleiddi á ár- unum 1982 og 1983 samtals um 5500 tn. af olíumöl til eigin nota og fyrir Vegagerð ríkisins, sem þá var að setja slitlag á þjóðveginn frá kauptúninu inn á flugvöll. Blöndun olíumalar á staðnum er mun hag- kvæmari kostur en flutningur á slit- lagsefni langar leiðir. Heilsugæzla og öldrunarþjón- usta - Leiguíbúöir aldraðra Vopnafjarðarhreppur hóf árið 1976 byggingu heilsugæzlustöðvar SVEITARSTJÓRNARMÁL 197

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.