Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Page 8

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Page 8
g’yrr.'r, ■wrfs hreppurinn vinnur aö um þessar mundir. Þá rekur Vopnafjarðarhreppur leikskóla, og tónskóli hefur verið starfræktur undanfarin ár, þó með nokkrum hléum vegna skorts á kennslukröftum. Félagslegar íbúdabyggingar Auk hinna 14 leiguíbúða fyrir aldraða, sem getið var um hér að framan, hefur Vopnafjarðarhreppur staðið fyrir byggingu 13 leigu- og söluíbúða á árunum 1975-1980. Sex fbúðir voru á sama tíma teknar í notkun í verkamannabústöðum, og nú hefur verið sótt um lán til þess að byggja 12 íbúðir samkvæmt verkamannabústaðakerfinu á .næstu tveim til þrem árum. Flutningaskip, eitt „lellanna", við „Nýju bryggju". (Hi stöð), sem tekin var í notkun síðla árs 1979, en fram til þess tíma hafði starfsaðstaða læknis verið í læknisbústaðnum. Það rými er nú nýtt sem aðstaða fyrir tannlækni. Árið 1976 hófst einnig bygging fyrsta áfanga leiguíbúða fyrir aldr- aða. Var það sex íbúða hús með tveimur hjónaíbúðum og fjórum fyrir einstaklinga ásamt með tilheyrandi þjónusturými. Voru íbúðir þessar teknar í notkun snemma árs 1978. Árið 1981 hófst svo smíði annars áfanga, en í honum eru átta leigu- íbúðir, þ.e. tvær hjónaíbúðir og sex einstaklingsíbúðir, og langlegu- deild fyrir aldraða með 9-10 sjúkrarúmum. Var þessi bygging formlega tekin f notkun haustið 1983. Másegja, að þessi uppbygg- ing sé gífurlegt átak fyrir ekki stærra byggðarlag, en samstaða hefur verið mikil um verkefnið hér heima fyrir. Hefur fjöldi einstakl- inga, félaga og fyrirtækja styrkt þessar framkvæmdir á einn og ann- an hátt og kvenfélögin t.d. verið beinir aðilar að uppbyggingunni. Við rekstur heilsugæzlustöðvar og sjúkradeildarinnar starfa um 20 manns. Skólamál í Vopnafirði er enn ekki kostur á neinu framhaldsnámi heima fyrir, en boðið er upp á nám til loka grunnskólastigsins. Lengst af voru starfandi tveir skólar í hreppnum, þ.e. skólinn í kauptúninu og heima- vistarskólinn á Torfastöðum, sem var fyrir börnin úr sveitinni. Torfa- staðaskólinn er nú nær eingöngu notaður sem heimavistaraðstaða og er ekið með nemendur þaðan til kennslu í Vopnafjarðarskólann, en vegalengdin á milli er um 6 km. Daglegur heimanakstur er með þá nemendur úr sveitinni, sem ekki er rými fyrir í heimavistinni, og er vax- andi áhugi fyrir því að auka hann eftir því sem vegir batna. Vopna- fjarðarskóli býr nú við þröngt kennslurými og er knýjandi að byggja við skólann. íþróttahús er nú í smíðum við skólann, og er það stærsta einstök framkvæmd, sem Vatnsveitumál Á undanförnum árum hafa farið fram nokkrar endurbætur á aðveitu- æð vatnsveitunnar og tilraunir verið gerðar með frekari vatnsöflun. Þessar tilraunir hafa ekki borið þann árangur sem skyldi, og er fyrirsjáan- legt, að þörf er á stórframkvæmd- um til að bæta úr vatnsskortinum. Ástandið er sérstaklega ískyggilegt um þessar mundir, eftir þann langa hlýinda- og þurrkakafla, sem staðið hefur frá því snemma í vor, og liðinn vetur var lika einn hinn snjóléttasti um langt skeið. Hafa menn miklar áhyggjur af því, að vandræðaá- stand geti skapazt í haust, þegar sláturtíð og síldarsöltun hefst. Samgöngumál Vopnafjarðarhreppur er land- fræðilega afskekkt byggðarlag og býr við langa og ófullkomna tengi- vegi til næstu byggðarlaga. Einkum er knýjandi, að nú þegar verði hafizt handa við að koma Vopnafirði í betra vegasamband við Austur- landið, með uppbyggingu vegar til 198 SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.