Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Qupperneq 9

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Qupperneq 9
Unnið við Ásgarð, nýja stálþilsgarðinn. dal. Þá þarf að huga að ýmiss konar smáiðnaði og þjónustu við ibúa byggðarlagsins, sem hingað til hef- ur orðið að sækja út fyrir hreppa- mörkin. Einnig þarf að kanna til fulls, hvort einhverjir möguleikar eru á frekari úrvinnslu sjávarafla og eða landbúnaðarafurða. Efling atvinnu- lífsins er forsenda framþróunar byggðarlagsins, og ekki virðast miklir vaxtarmöguleikar I bili I hinum hefðbundnu greinum landbúnaðar og sjávarútvegs. Þó ætti framtið byggðarlagsins að vera björt, ef þessum atvinnugreinum verða sköpuð eðlileg rekstrarskilyrði. Stjórn sveitarfélagsins f núverandi hreppsnefnd Vopna- fjarðarhrepps eru: Kjörnir af B-lista Framsóknarflokks: Hreinn Sveins- son, oddviti; Bragi Vagnsson; Ás- geir H. Sigurðsson og Emil Sigur- jónsson. Kjörnir af D-lista Sjálfstæð- isflokks: Alexander Árnason, vara- oddviti, og Hilmar Jósefsson. Kjör- inn af G-lista Alþýðubandalags: Að- albjörn Björnsson. Núverandi sveitarstjóri er Sveinn Guðmundsson, en hann tók við starfinu hinn 1. júní sl. Sundabúð I og II - Ibúðir og legudeild lyrír aldraða Vopnfirðinga. Fljótsdalshéraðs, sem hægt væri að halda opnum allt árið. Slíkur veg- ur gæti líka stytt leiðina til Egils- staða úr 185 km, sem hún er nú um Möðrudalsöræfi, í um eða innan við 100 km. Myndi sú samgöngubót auðvelda öll samskipti íbúa norð- austurhornsins við Austurland og auka ferðamannastraum á sumrum og þar með bæta afkomumöguleika þeirrar ferðamannaþjónustu, sem haldið er uppi á Vopnafirði, svo sem með rekstri söluskála og hót- els, sem starfrækt er allt árið. Flugsamgöngur eru í góðu horfi, en Flugfélag Norðurlands heldur uppi 5 áætlunarferðum í viku frá Akureyri, og Flugfélag Austurlands er með 3 áætlunarferðir í viku frá Egilsstöðum, og eru þessar ferðir allar í tengslum við Reykjavíkurflug Flugleiða. Vöruflutningar fara að langstærst- um hluta fram sjóleiðis, en landflutn- ingar hafa þó verið frá Akureyri verulegan hluta úr árinu. Framtíöarhorfur Eitt meginviðfangsefni sveitar- stjórnar á næstu mánuðum og árum, auk hinna hefðbundnu verk- efna, er að hafa forustu um ráðstaf- anir til eflingar og aukningar fjöl- breytni I atvinnullfi. Auk þess, sem minnzt hefur verið á hér að framan varðandi skelfiskveiðar og vinnslu svo og loðdýrarækt, má nefna, að kanna þarf til fulls möguleika á byggingu laxeldisstöðvar við Lónin, norðan kauptúnsins, en forsenda þess virðist nýting jarðhitans í Selár- SVEITARSTJÓRNARMÁL 199

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.