Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Blaðsíða 14

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Blaðsíða 14
SAMTALIÐ Mannvirki Skeiðsfossvirkjunar, stöðvarhúsið nær og stiflan íjær. Hanaan hennar sést Hamarshyrna, en lengra til hægri á myndinni Skeiðshyrna. Ljósm. Mats Wibe Lund. lokast í fyrstu snjóum á haustin, svo að samgöngur eru engar við Ólafsfjörð á vetrum." — Eru mikil snjóþvngsli í Fljótum? „Þau eru umtalsverð, sérstaklega í Holtshreppi, já. Þó er ekki alltaf snjóþungt á Almenningum utan við Hraun, en þar liggur þjóðvegurinn nú.“ — Varð ekki mikil breyting til batnaðar, er nýi vegurinn um Mánárskriður leysti af hólmi veginn yfír Sigluij arðarskarð? „Gjörbreyting varð á samgöngumálunum, er nýi vegurinn um Strákagöng og Mánárskriður opnaðist. Einnig varð mikil bót á, er vegurinn um skriðurnar var færður og vegurinn um Neðri skriðurnar komst í gagnið. Áður lá vegurinn um Mánárskriður um svokallaðar Efri skriður, og meðan þær voru farnar, var leiðin ákaflega erfið og hættuleg á vetrum. Vegurinn til Siglufjarðar er ruddur tvisvar í viku, ef á þarf að halda, og auðvitað njóta Fljótin góðs af gegnumakstrinum til og frá Siglufirði. Margt er líka orðið sameiginlegt, og almennt talað eru samgöngur við umheiminn, t.d. við Sauðárkrók, nokkuð góðar.“ — Bæjarnafnið Barð í Fljótum lætur kunnuglega í eyrum? „Þar er sameiginlegur kirkjustaður fyrir Fljótahreppana. Þar bjuggu kunnir prestar, svo sem séra Jónmundur Halldórsson, síðar prestur á Stað í Grunnavík, svo sem kunnugt er úr bók hans. Síðastur presta á Barði var séra Guðmundur Benediktsson, sem þjónaði þar til margra ára og var vinsæll mjög. Nú er prestur í sókninni séra Gunnar Gíslason, áður prófastur í Glaumbæ." 204 SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.