Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Page 16
SAMTALIÐ
Séð ytir Hópsvafn og inn Vestur-Fljót. Ef myndin prentast vel. má sjá eldiskviarnar á vatninu, en þær eru hluti hatbeitarstöðvarinnar. Myndin er
tekin við Sandós. Ljém. Guðmundur H. Jónsson.
— Eru bændur í sveitinni að fást við loðdýraeldi?
„Já, það er vísir að því. í Haganeshreppi er eitt
nokkuð stórt refabú. Ómar Ólafsson, bóndi að
Laugalandi, hefur byggt 500 m2 hús og sett í það um 70
læður, og tvö minni refabú eru í Fljótum, á Syðsta-Mói
og Minni-Reykjum, þar sem vera munu um 40 læður í
nýju húsi. Loðdýrabændur í Skagafirði reka
sameiginlega fóðurstöð á Sauðárkróki. Þeir fá fóðrið
heim til sín í sérstökum tankbíl oft í viku á sumrin, en
verða að sækja það sjálfir út á Sauðárkrók á vetrum
einu sinni í viku eða svo. í stærsta búinu, að Laugalandi,
drápust margir hvolpar sl. vor, og verð á refaskinnum er
ekki það hátt, að menn geri sér vonir um, að refarækt
komi í stað annarra búgreina, heldur sé hún góð viðbót,
ef vel tekst til.“
— Eru þessar tilraunir þó ekki merki um
Hfsbjargarviðleitni?
„Jú, það er svona í áttina, að verið er að reyna þetta.
Ég hefi þá trú, að framtíðin geti orðið nokkuð björt í
Fljótum með alla þá tækni, sem komin er í búskapinn,
og þau skilyrði, sem hér er upp á að bjóða. Ég tala nú
ekki um, eftir svona einmuna gott sumar, sem var í ár.“
— Stæðu Fljótamenn betur að vígi í atvinnumálum
sem ein heild heldur en í tveimur hreppum?
„Já, á því er enginn vafi.“
— Hvað stendur þá í vegi fyrir sameiningu
hreppanna?
„Ekkert nema gamall vani og íhaldssemi íbúanna,
blessaður vertu.“
Unnar Stefánsson.
206 SVEITARSTJÓRNARMÁL