Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Side 17

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Side 17
ALMENNINGSBÓKASÖFN Erla Jónsdóttir, bæjarbókavöröur, Garðabæ: Samsteypubókasöfn Samsteypubókasafn nefnist þaö bókasafn, þar sem skólasafn og al- menningsbókasafn er rekiö sem ein stofnun. Þaö er til húsa í skóla og gegnir tvíþættu hlutverki. í fyrsta lagi sem skólasafn fyrir þann skóla, sem þaö er í, og í öðru lagi sem almennings- bókasafn fyrir misstóran byggöar- kjarna eða sveitarfélag. Frá fræðilegu sjónarmiði hefur slík samsteypa tveggja bókasafna með ólfk markmið verið fordæmd, og henni hefur verið fundið flest til foráttu. En í reynd geta samsteypu- söfn verið mjög hentug lausn í fá- mennari byggðarlögum, ef skynsamlega er að þeim staðið. Undanfarna áratugi hefur mikið átak verið gert í uppbyggingu skólahúsa hér á landi, og með til- komu grunnskólalaganna fyrir tíu árum er skólasafnið viðurkennt sem eitt af meginhjálpartækjum skólans. Ríkið tekur þátt í að greiða kostnað af skólasafni af ákveðinni stærð við alla grunnskóla, þ. e. grunnbóka- eign allt að 10 bækur á hvern nem- anda, ákveðinn stundafjölda til bókavörzlu, sem reiknaður er út af kvóta skólans. Og við hönnun skólabygginga er gert ráð fyrir ákveðnu rými fyrir skólasafnið. Það kemur snemma í Ijós, þegar farið er að reka skólasafn sam- kvæmt lögunum, að fjöldi bóka, nýsigagna, tækja og vinnustunda nægir skammt, ef skólasafnið á að gegna hlutverki sínu. Skólamenn sækja því til sveitarfélaganna um aukið fjármagn til uppbyggingar og reksturs skólasafna. í flestum sveitum landsins hafa verið rekin almenningsbókasöfn um mislangan aldur, og afar misjafn- lega hefur verið staðið að uppbygg- ingu og rekstri þeirra. Á nokkrum stöðum á landinu hafa verið reistar bókhlöður eða safnahús, en víðast hvar hefur þeim verið skorinn of þröngur stakkur, einkum hvað varð- ar húsnæði. í lögum um almenningsbókasöfn frá árinu 1976 var sveitarfélögunum alfarið gert skylt að reka almenn- ingsbókasöfnin. 5. gr. þessara laga heimilar sveitarfélögunum að sam- eina almenningsbóka- og skólasafn og reka sameiginlega. Mörgum sveitarfélögum hefur þótt afar hent- ugt að notfæra sér þetta laga- ákvæði og sameina þannig smáar bókasafnaeiningar í eitt myndarlegt samsteypusafn og samnýta þannig bækur, starfskrafta og húsnæði. Fjórtán ára góð reynsla af elzta samsteypusafninu hér á landi, í Garðabæ, sannar, að slíkt er hægt, ef rétt er á málum haldið. Hér verður drepið á nokkur atriði, sem við, sem rekum það safn, telj- um mikilvægust: a. Að samsteypusafnið sé rekið sem ein stofnun. Forstöðumaður þess beri ábyrgð á rekstri þess gagnvart stjórn sveitarfélagsins annars vegar og skólastjórn hins vegar. Hann hefur yfirumsjón með öll- um innkaupum, ræður starfsfólk og stjórnar því. Einnig skipu- leggur hann daglegan rekstur og alla vinnu á safninu, svo sem þjónustu við almenning og skóla, í samráði við bókasafns- stjórn og skólastjórn. b. Húsnæði samsteypusafns þarf að hanna þannig, að almenning- ur hafi greiðan aðgang að bóka- safninu, eftir að skóla lýkur, og einnig, að nemendur hafi greið- an aðgang að því á skólatíma. Það þurfa að vera skýr ákvæði um stærð húsnæðis fyrir safnið, lesstofu, snyrtingar og fylgirým- is, og auk þess þarf að gera ráð fyrir stækkunarmöguleikum. c. Opnunartími samsteypusafns er mjög langur, eða frá því að skóli hefst að morgni og fram á kvöld. Utan skólatfma er opnunartími svipaður og hjá öðrum almenn- ingsbókasöfnum af sömu stærð. d. Samnýta þarf allan bókakost og safnefni, svo að samsteypan borgi sig og komizt verði hjá tvöföldum innkaupum. Af þessu má sjá, að frá rekstr- arlegu sjónarmiði kemur slík samsteypa mjög vel út fyrir sveitarfélögin, en á hinn bóginn er ekki hægt að neita því, að gera þarf miklar kröfur um góða samvinnu, gagnkvæma tillits- semi og góða stjórnun. Stjórnun samsteypusafns er tímafrek. Halda þarf reglulega fundi með bókasafnsstjórn, skólastjórn, fagkennurum, bekkjarkennurum, bókavörðum, og einnig þurfa bókaverðirnir að sitja alla almenna kennaráfundi, svo þeir geti fylgzt með skóla- starfinu. Að lokum má benda á, að hin mannlegu samskipti eru oftast brotalömin í rekstri samsteypu- bókasafna. SVEITARSTJÓRNARMÁL 207

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.