Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Síða 21

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Síða 21
ÆSKULÝÐS- OC3 TÓMSTUNDAMÁL i 1 1 (n ',.f ' W ll * :l ■ h - Bingó - Leiksýningar - Félagsvist Jólaföndur Jólaskemmtanir Helgarhátíöir Tómstundastarf (Námskeiö u.þ.b. 8 kennslustundir): Leirmótun Leiklist Tölvukennsla Leðurvinna Trésmíði Hnýtingar Heimilisfræði Tauþrykk Borðtennis Fluguhnýtingar Nýjungar í tómstundastaríi Æ.R. Á síðustu tímum, þegar segja má, að ekkert sé nýtt undir sólinni, getur verið erfitt að koma auga á ný viðfangsefni, sem höfða til ungl- inga. Tækninni fleygir fram, og á því sviði eiga eftir að koma ótalmargir nýir möguleikar. Mikilvægt er, að tækninýjungar verði til þess að örva sköpunar- og athafnaþörf unglinga, en geri þá ekki að óvirkum neytend- um á öllum sviðum. Ein þeirra nýjunga, sem vakið hafa hvað mestan áhuga meðal unglinga, er tölvur. Tölvuspilasalir hafa sprottið upp eins og gorkúlur á haugi, og börn og unglingar drag- ast að spilakössunum. „Andrúms- loftið" f spilasölum er oft á tíðum miður gott og vekur upp ýmis fé- lagsleg vandamál. Árið 1981 hóf Æ.R. skipulagða tölvukennslu meðal unglinga í grunnskólum Reykjavíkur, og síðan þá hafa u.þ.b. 1500 unglingar sótt námskeið í meðferð tölvu. Á vorönn 1984 var í gangi, auk hefðbundinna námskeiða, tölvukennsla f opnu fé- lags- og tómstundastarfi meðal for- eldra og barna. Mikilvægt er að Op/'ð síarf. Foreldrar og búrn I heimilisfræði. nota tæknina rétt bæði í leik og starfi. Einn vágesturinn á tæknisviðinu enn er myndbandið, að minnsta kosti eins og það er notað nú - eingöngu sem afþreyingartæki. Forstöðumenn æskulýðsmála þurfa að leiða notkun myndbandsins inn á þroskavænlegar brautir. Ein leiðin í því sambandi er að virkja unglinga í gerð eigin myndefnis, en á sviði myndbandsins eru gífurlegir mögu- leikar, bæði á sviði fræðslu og skemmtunar. Fyrsta námskeiðið í gerð mynda á myndbönd var haldið sl. vetur í samvinnu Námsgagnastofnunar og Æ.R. og hét „Myndbandið í skóla- og félagsstarfi". Hinar ýmsu nýjungar og tækni- undur, sem við ætlum okkur að nýta í æskulýðsstarfi, leysa þó aldrei af hólmi hin mannlegu samskipti og það viðmót, sem barnið og ungling- urinn fá hjá kennara eða leið- sveitarstjórnarmál 211

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.