Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Qupperneq 24
ARIÐ 2004
Sturla Böövarsson,
sveitarstjóri:
Stykkishótmur áriö 2004
Ritstjóri Sveitarstjórnarmála fór
þess á leit við mig, að ég legði til
efni i greinaflokk, þar sem fjallað
væri um þá framtíðarsýn, er sveitar-
stjórnarmenn hafa um sveitarfélag
sitt að liðnum tuttugu árum.
í minn hlut kom að skrifa um
Stykkishólm árið 2004.
Jafnan er það svo, aö þá, er líta á
til framtíðar, er horft til liðins tíma.
Sagan kennir okkur íslendingum
það, að náttúrufar lands okkar hefur
afgerandi áhrif á alla þróun og að
fátt verður fyrirséð um áhrif þess á
mannlíf og þjóðfélagsþróun alla.
Framtíðarspár um þróun byggða
eru því ótraustar.
í Eyrbyggjasögu segir frá því, er
Þórólfur Mostrarskegg flúði und-
an ofríki Haralds konungs til ís-
lands. Hann fól það guði sínum Þór
á vald, hvar á íslandi skyldi bú
byggja. Það nes við Breiðafjörð, þar
sem Þór setti á land súlur Þórólfs,
var síðan kallað Þórsnes, og þar bjó
Þórólfur rausnarbúi. Segja má, að
fyrsta viðleitni til þess að koma
skipulagi á hina ungu þjóð hafi ver-
ið gerð við Breiðafjörð, þá er
Þórsnesþing var sett.
Yzt á Þórsnesi er Stykkishólmur.
Þar hefur byggð verið að þróast allt
frá því að Brimarkaupmenn hófu
verzlun þar árið 1596 samkvæmt
leyfi Friðriks konungs II. Árið 2004
verða því liðin rúm 400 ár frá því
fyrst hófust verzlunarumsvif í Stykk-
ishólmi. Stykkishólmur varð svo sér-
stakt sveitarfélag 1892, er Helga-
fellssveit var skipt í tvö sveitarfélög.
Árið 1932 skrifar Helgi Hjörvar í Ár-
bók Ferðafélags Islands um Stykk-
ishólm og segir þá m. a.: „Stykkis-
hólmur er hefðarbær mikill, og þar
hafa haldizt lengur en víðast annars
staðar höfðinglegir hættir á forna
vísu í umgengni manna og kurteisi
allri."
Þessi skemmtilega lýsing Helga
Hjörvar á Hólminum hefur vafalaust
átt við nokkur rök að styðjast. Er
það vonandi, að einkenni staðar-
menningar verði ekki að liðnum 20
árum með öllu út máð af fjölmiðlum
og stöðlunarmætti skólanna.
Þrátt fyrir allt, sem liðið er og oft-
ast birtist í blámóðu liðins tíma, þá
verður hver kynslóð að bera sinn
svip, móta og mótast af því um-
hverfi, sem lifað er í.
214 SVEITARSTJÓRNARMÁL