Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Side 25
ÁRIÐ 2004
A tvinnugreinar
í Stykkishólmi mun á næstu 20
árum veröa byggt á þeim megin-
stoðum atvinnulífs, sem fyrir hendi
eru nú, þ. e. a. s. sjávarútvegi, iðn-
aði, verzlun og ferðamannaþjón-
ustu. Breiðafjörður er mikið forða-
búr, og er ekki að efa, að þær auð-
lindir, sem þar er að finna, eiga eftir
að standa undir jafnri og vaxandi
fólksfjölgun.
Ef þau hagstæðu ytri skilyrði,
sem sköpuð hafa verið, nýtast, má
reikna með því, að árið 2004 verði
íbúatalan orðin 1800. Til þess að
svo megi verða, þarf atvinnulíf að
blómgast jafnhliða því, að sveitarfé-
lagið leiði þá þróun með mann-
virkjagerð og uppbyggingu hinnar
opinberu þjónustu, auk þess, sem
einstaklingar og félög taka sér fyrir
hendur við uppbyggingu atvinnu-
fyrirtækja og þjónustu.
Atvinnulífið mun tæplega taka
miklum breytingum næstu 20 árin.
Þó má reikna með, að vinnsla sjáv-
arafurða verði fjölbreyttari. Skipting
vinnuafls eftir atvinnugreinum er
núna svo sem hér segir:
síðasta áratugar, þá má sjá, að
fjölgun hefur orðið nokkuð jöfn og
vaxandi. Með bjartsýni má áætla,
að fjölgun næstu 20 ára geti orðið
að meðaltali 2% á ári. Er rétt að
ítreka, að sú spá er byggð á nokk-
urri bjartsýni. Út frá þessari spá er
síðan hægt að áætla þróun atvinnu-
Iffs, atvinnutækifæra, íbúðabygg-
inga, þjónustustofnana, sam-
gangna o. fl. Á línuritinu á bls. 214
er sett upp spá næstu 20 ára. Sam-
kvæmt því geta íbúar Stykkishólms
orðið a. m. k. 1800, ef ekki er reikn-
að með stækkun eða sameiningu
sveitarfélaganna í landnámi Þórólfs
Mostrarskeggs, sem ekki er vert að
útiloka, enda svæðið ein atvinnu-
og þjónustuleg heild.
Spá um fjölgun
atvinnutækifæra
Standist sú spá, að íbúatala verði
um 1800 árið 2004, mun þurfa að
fjölga atvinnutækifærum í hverri at-
vinnugrein. Ef spáð er um fjölgun
ársverka í 800, gæti skipting orðið
eftirfarandi:
Eftirtaldar atvinnugreinar munu
geta bætzt við það, sem fyrir er, á
næstu 20 árum, verði máttur ein-
staklinga og félaga nýttur til átaka I
atvinnulífinu:
a) Kúfiskveiðar og vinnsla.
b) Veiðar og vinnsla ýmiss konar
krabbadýra.
c) Fullvinnsla fiskafurða.
d) Fiskeldi og starfsemi því
tengd.
e) Æðarrækt og vinnsla úr dúni.
f) Ferðamannaþjónusta tengd
ferju yfir Breiðafjörð.
g) Erlend viðskipti og verzlun
vegna afurðasölu.
h) Vinnsla kjötafurða í tengslum
við sláturhúsið.
i) Flefðbundin landbúnaðarstörf
vegna stækkunar sveitarfé-
lagsins.
j) Vinnsla byggingarefna úr
gjalli.
k) Vinnsla úr þeirri skel, er fellur
til við skelveiðarnar.
l) Gerð byggingarhluta tengd
einingahúsaframleiðslu.
m) Aukin starfsemi verzlunarfyr-
irtækja.
Fjöldi Árs- Hlutf. skipting
Atvinnuvegur startandi verk ársverka
Landbúnaður 5 3,5 0,6%
Fiskveiðar 98 85,0 15,3%
Fiskvinnsla 115 89,2 16,1%
Iðnaður 83 74,7 13,4%
Veitur 15 15,4 2,8%
Byggingar 67 55,7 10,0%
Verzlun 72 57,0 10,3%
Samgöngur 39 37,2 6,7%
Bankar o. fl. 22 18,1 3,3%
Þjónusta 143 120,0 21,6%
Samtals 659 555,8 100,0%
Þróun mannfjölda
Svo sem víða á landsbyggðinni,
hefur íbúafjölgun gengið í bylgjum
á liðnum áratugum. Þegar litið er til
Atvinnugreinar Hlutf. skipting ársverka árið 2004 1984 Ársverk 2004 Aukning
Landbúnaður 1,0% 3,5 8,0 4,5
Fiskveiðar 15,0% 85,0 120,0 35,0
Fiskvinnsla 16,0% 89,2 128,0 38,8
Iðnaður 13,5% 74,7 108,0 33,3
Veitur 2,8% 15,4 22,4 7,0
Byggingar 10,0% 55,7 80,0 24,3
Verzlun 10,3% 57,0 82,4 25,4
Samgöngur 7,0% 37,2 56,0 18,8
Bankar o. fl. 3,3% 18,1 26,4 8,3
Þjónusta 21,1% 120,0 168,8 48,8
100,0% 555,8 800,0 244,2
Ekki er ástæða til þess að spá um
miklar breytingar á þessari skipt-
ingu. Þó gæti matvælaiðnaður í
tengslum við landbúnað og sjávar-
útveg aukizt.
Þau 244 ársverk, sem bætast við,
ættu þessar atvinnugreinar að geta
skapað, auk þess sem aukning
verður í þeim greinum, sem fyrir
eru.
SVEITARSTJÓRNARMÁL 215