Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Side 31
SKJALAVA RZLA
ekki á valdi sveitarfélaga aö ákveða
um ónýtingu skjala í skjalasöfnum
sínum, og eru þau þar á sama báti
og aðrir afhendingarskyldir aðilar.
Lög og reglugerð um héraðsskjala-
söfn virðast engu breyta um þetta
atriði. Setning reglugerðar um ónýt-
ingu skjala er í verkahring mennta-
málaráðuneytisins.
Það er brýnt, að tekið verið á
þessum málum með samræmdum
hætti og að mótuð verði heildar-
stefna með því að settar verði regl-
ur um grisjun og annað, sem snertir
skipulag skjalvörzlu. Hvað varðar
grisjunina, geta ekki aðrir aðilar en
hinar sérhæfðu skjalasafnsstofnanir
samið reglur um hana, og hlýtur þá
fyrst og fremst að koma til kasta
Þjóðskjalasafns, sem er sett yfir hér-
aðsskjalasöfnin. Því lengur sem
þetta dregst á langinn, í þeim mun
meira óefni og öngþveiti stefnir. Því
það er alveg Ijóst, að mikið af
skjölum fer, hefur farið og mun fara
forgörðum, þó svo að menn vilji
beygja hjá vandanum og veigri sér
við að ákveða ónýtingu ákveðinna
skjala eða skjalaflokka. Oft er það
svo, að þegar ekkert viðunandi
geymsluhúsnæði er fyrir hendi, ýt-
ast eldri skjöl, sem hafa verið lögð
til hliðar, upp á háaloft eða niður í
kjallara eða í útihús og hlaðast þar
upp í hauga, sem enginn hefur yfir-
sýn yfir né hirðir um. Náttúruöfl-
unum er svo látið eftir að sjá um
eyðinguna eða þá, þegar allt er orð-
ið sneisafullt, er mokað út, og þá er
ekki reynt að skilja sauðina frá
höfrunum. Það er þetta, sem þarf að
koma í veg fyrir, og verður að búa
svo um hnútana, að skjöl verði
metin með tilliti til heimildagildis og
valin úr þau, sem minnst eftirsjá
viröist að.
Eftir að þetta var samið, hefur
menntamálaráðuneytið samþykkt
fyrir sitt leyti drög að reglum um
ónýtingu skjala hjá Reykjavíkurborg
og stofnunum hennar og borgarráð
samþykkt þær. Voru þær birtar und-
ir dálkinum Skjalavarzla í 1. tbl.
Sveitarstjórnarmála 1984.
Samkeppni um merki
Búðahreppur, Fáskrúðsfirði,
efnir til samkeppni um merki
fyrir sveitarfélagið.
Samkeppnin er öllum opin
Merkið má höfða til megineinkenna byggðar-
lagsins t.a.m. landslagseinkenna, dýralífs,
menningar, sögu- og atvinnulífs. Einnig væri
æskilegt, að nafn sveitarfélagsins, þ.e. Búða-
kauptún, komi fram í tillögunni.
Veitt verða þrenn verðlaun: 25.000 kr., 10.000
kr. og 5.000 kr. Tillögur sendist hreppsnefnd
Búðahrepps eigi síðar en 15. desember merkt:
„Samkeppni um merki“.
Sveitarstjóri.
PLÖSTUN
PLÖSTUM VINNUTEIKNINGAR, ^
VERKLÝSINGAR, VOTTORÐ,
MATSEÐLA, VERÐLISTA,
KENNSLULEIÐBEININGAR,
TILBOÐ, BLAÐAORKLIPPUR,
VIÐURKENNINGARSKJÖL, UÓSRITUNAR-
FRUMRIT OG MARGT FLEIRA.
STÆRÐ: BREIDD ALLT AÐ 63 CM.
LENGD ÓTAKMÖRKUÐ.
OPIÐ KL. 9-12 OG 13-18.
HJARÐARHAGA 27 ©22680
SVEITARSTJÓRNARMÁL 221