Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Síða 35
FRÆÐSLUMÁL
Ölvir Karlsson, oddviti:
Stöðlun íþróttahúsa
Þar til skólakostnaðarlög voru
sett árið 1967, hafði tiltölulega lítið
verið byggt af íþróttahúsum við
grunnskóla. Sérstaklega var þetta
áberandi í dreifbýlinu.
Skólahúsnæði, sem byggt var
fyrir setningu fyrrgreindra laga, var
talið vera 214.500 m2 að stærð, þar
af íþróttarými 31.600 m2 eða tæp
15%.
Það skólahúsnæði, sem búið var
að byggja 1981 samkvæmt skóla-
kostnaðarlögunum, var 154.700
m2, þar af voru 42.800 m2 íþrótta-
rými eða 28%.
Með endurskoðun á normum og
útgáfu reglugerðar nr. 345/1978 er
ákveðið, að grunnstærð kennsluein-
inga sé 202,5 m2 og að fjöldi eining-
anna ráðist af kennslustundafjölda
skólans. Einnig er minni salur fyrir
mjög fámenna skóla (fjölnýtisalur).
Þá var það nýjung í reglum þess-
um, að heimilað var rými fyrir áhorf-
endur.
Samhliða þessum reglum var
reglugerð um stofnkostnað gefin út
endurskoðuð, og var þá tekið upp
það nýmæli að heimila stækkun á
leikfimisal skóla um eina einingu,
þ.e. 202,5 m2 og áhorfendasvæði,
þar sem ætlað er að nota salinn til
almennra íþróttaiðkana og keppni
og þar sem íbúafjöldi í sveitarfélagi
eða sveitarfélögum, sem skólann
reka, er 500 og fleiri.
Þetta þýðir i reynd, að öll sveitar-
félög með 500 íbúa eða fleiri eða
þau sveitarfélög, sem reka saman
skóla og hafa samtals þann íbúa-
fjölda, eiga nú þess kost að byggja
sem skólamannvirki íþróttahús með
405 m2 gólffleti, þ.e. 15x27 m sal.
Þessi íþróttahús eru mjög dýr;
vinna arkitekta og verkfræðinga er
þar stórlega vanmetin í núgildandi
kostnaðarnormum auk þess sem
auknar kröfur eru gerðar til þessara
bygginga frá þvf sem áður var, þeg-
ar kostnaðarnormin, voru sett.
Á fundi, sem haldinn var í norma-
nefnd í septembermánuði árið
1975, lögðu fulltrúar Sambands fs-
lenzkra sveitarfélaga fram tillögu
um staðlaðar stærðir af íþróttahús-
um. Leitað var álits Gísla Halldórs-
sonar á þessari hugmynd, og taldi
hann, að með framkvæmd hennar
mætti spara um það bil 10-15% af
byggingarkostnaði. Þetta mætti þó
verulegri andstöðu, og var því aðal-
lega borið við, að leiðinlegt væri að
sjá sömu útgáfuna af öllum hlið-
stæðum húsum vítt og breitt um
landið. Þannig var séð fyrir þessari
hugmynd.
Ég hef átt þess kost að skoða
mörg íþróttahús í Danmörku, Nor-
egi og Svfþjóð. Þau hús eru byggð
með mun ódýrari hætti en hér tíðk-
ast. Yfir 90% af þessum húsum eru
byggð úr límtré; þau eru einföld í
byggingu og fljótgert að koma þeim
upp.
Með tilliti til þess, að það vantar
íþróttasali eða fjölnýtisali við marga
grunnskóla, sérstaklega í dreifbýli,
þá er það athugandi að fela sam-
bandinu að leita eftir samstarfi við
menntamálaráðuneytið um, að
gerðir verði uppdrættir að stöðluð-
um íþróttahúsum, t.d. tveimur
stærðum, þar sem kostnaðaráætl-
anir fylgdu.
Samband íslenzkra sveitarfélaga
og menntamálaráðuneytiö greiði
verðlaun fyrir beztu úrlausnir.
Sveitarstjóri
Hreppsnefnd Nesjahrepps, Hornafirði, A-Skaft. auglýsir
laust til umsóknar starf sveitarstjóra. Umsóknarfrestur er
til 25. nóvember 1984. Upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Nesjahrepps, Nesjaskóla, sími 97-8500.
F.h. hreppsnefndar Nesjahrepps,
Tryggvi Árnason.
SVEITARSTJÓRNARMÁL 225