Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Qupperneq 38
LANDSHLUT A5AMTOKUM
Atvinnumálm efst á baugi
hjá Sunniendingum
Frá adalfundi Sambands sunnlenzkra sveitarfélaga á
Hvolsvelli 16. og 17. apríl 1984
Sextándi aðalfundur Sambands
sunnlenzkra sveitarfélaga - SASS -
var haldinn á Hvolsvelli dagana 16.
og 17. apríl sl.
Jón Þorgilsson, fráfarandi for-
maður SASS, setti fundinn með
ræðu. Síðan bað hann Böðvar
Bragason, sýslumann Rangæinga
og oddvita Hvolhrepps, og Ingi-
björgu Þorgilsdóttur, hreppsnefnd-
arfulltrúa í Hvolhreppi, að stýra
fundi og þá Kristin Jónsson,
oddvita Fljótshlíðarhrepps, og
Steinþór Ingvarsson, oddvita Gnúp-
verjahrepps, að rita fundargerð.
Ávörp fluttu við fundarsetninguna
Björn Friðfinnsson, formaður Sam-
bands íslenzkra sveitarfélaga, og
Lárus Ág. Gíslason, fv. hreppstjóri
Hvolhrepps. Síðar á fundinum fluttu
einnig ávörp Þórarinn Sigurjóns-
son, alþingismaður, og Guðjón
Ingvi Stefánsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka sveitarfélaga á Vest-
urlandi.
Skýrslur og ársreikningar
Jón Þorgilsson flutti skýrslu fráfar-
andi stjórnar, og lá hún frammi á
fundinum fjölrituð. Hjörtur Þórarins-
son, framkvæmdastjóri samtak-
anna, gerði grein fyrir ársreikning-
um SASS seinasta starfsár, og voru
þeir síðar á fundinum samþykktir.
Niðurstöðutölur rekstrarreiknings
fyrir árið 1983 eru kr. 3.034 þús.
Einnig gerði hann grein fyrir tillögu
að fjárhagsáætlun SASS fyrir árið
1984, sem einnig var samþykkt.
Niðurstöðutölur hennar eru kr.
3.928 þús. kr., og nemur hækkunin
milli ára um 27%.
Jón R. Hjálmarsson, fræðslu-
stjóri, flutti skýrslu um störf fræðslu-
skrifstofu Suðurlands, Eggert Jó-
hannesson, formaður svæðisstjórn-
ar Suðurlands um málefni fatlaðra,
gerði grein fyrir starfi stjórnarinnar á
árinu, og Páll Björnsson, fulltrúi á
sýsluskrifstofunni á Selfossi, for-
maður Ferðamálasamtaka Suður-
lands, sagði frá starfi samtakanna.
Þorsteinn Garðarsson, iðnráð-
gjafi, sagði loks frá iðnaðarverkefn-
um, sem nýiðnaðarnefnd SASS og
hann hefðu unnið að á starftímabil-
inu.
Skýrslunum var vísað til starfs-
nefnda þingsins. Þær voru allsherj-
arnefnd, atvinnumálanefnd, heil-
brigðismálanefnd, menntamála-
nefnd, orkunefnd, samgöngunefnd
og kjörnefnd.
Verkaskipting ríkis og
sveitarfélaga
Alexander Stefánsson, félags-
málaráðherra, flutti á fundinum
framsöguerindi um verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga.
Að tillögu allsherjarnefndar sam-
þykkti fundurinn á síðari degi sínum
að mæla með áframhaldandi end-
urskoðun verkaskiptingar ríkis og
sveitarfélaga, en benti á, að ný
verkefni leggist misþungt á sveitar-
félögin eftir staðháttum og íbúa-
fjölda, og beri að gæta þess við
tilfærslu verkefna, að engu þeirra
verði ofboðið fjárhagslega og að
sveitarfélögunum verði ekki fengin
ný og aukin verkefni án þess að
fylgi nýir tekjustofnar til þess að
standa undir kostnaði við jaau.
Skólamál
Hörður Lárusson, deildarstjóri,
og Örlygur Geirsson, skrifstofustjóri
í menntamálaráðuneytinu, fluttu
framsöguerindi um skólamál, eink-
um framhaldsskólann.
Um það efni urðu miklar umræður
á fundinum og í menntamálanefnd,
og hér verða dregin fram helztu
atriði í ályktunum fundarins um
skóla- og menntamál.
Fundurinn minnti á, að margir
skólar, bæði á grunnskóla- og fram-
haldsskólastigi, búi við þröng
rekstrarskilyrði. Þeim sé mikil nauð-
Alexander Stefánsson, félagsmálaráðherra, flytur ræðu sina.
228 SVEITARSTJÓRNARMÁI