Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Qupperneq 39
IFRA LANDSHLUTASAMTOKUMI
Örlygur Geirsson, skrifstoíustjóri, ræðir skólamalin.
Birgir ísl. Gunnarsson, alþm. og formaður stóriðjunefndar.
syn á rýmri kennslukvóta, og átalinn
er seinagangur í uppgjörsmálum
hjá menntamálaráðuneytinu gagn-
vart sveitarfélögum, bæði hvað
varðar framhaldsskóla og ýmsa
þætti grunnskóla, s. s. skólaakstur.
Lögð er þung áherzla á, að mark-
visst sé unnið að því að koma á
langþráðri löggjöf um samræmdan
framhaldsskóla.
Aðalfundurinn hvatti til þess, að
ekki verði innheimt námsvistargjöld
við skóla á Suðurlandi vegna að-
komunemenda á rekstrarsvæði við-
komandi skóla. Á sama hátt hvatti
fundurinn sveitarfélög til þess að
greiða ekki slíka reikninga úr öðrum
kjördæmum, nema um löglega inn-
heimtu sé að ræða.
Fagnað er því samstarfi, sem
náðst hefur um rekstur fjölbrauta-
skóla á Suðurlandi og hvatt til þess,
að verknámsbrautir verði efldar,
svo nemendur geti lokið námi í
þeim við skólann.
Hvatt er til þess, að gerðir verði
samningar við menntamálaráðu-
neytið um allar þær skólabygging-
ar, sem unnið er að ósamnings-
bundið f kjördæminu. Talið er, að
aðstaða nemenda í kjördæminu sé
mjög misjöfn gagnvart námi.
Fundurinn mæltist til þess við
fræðsluráð Suðurlands, að það
héldi fundi með forráðamönnum
héraðsskólanna í Skógum og að
Laugarvatni og framhaldsskólanna
um vanda héraðsskólanna til þess
að hvetja menntamálaráðuneytið til
aðgerða í málefnum þeirra.
Sameiginleg útvarpsstöö
á vegum samtakanna
Fundurinn fagnaði framkomnu
frumvarpi til nýrra útvarpslaga, þar
sem gert er ráð fyrir landshlutaút-
varpsstöðvum. Hvatti fundurinn til
þess, að komið yrði upp einni sam-
eiginlegri útvarpsstöð á vegum
samtakanna, þegar löggjöf um það
efni hefur verið samþykkt. Fundin-
um barst erindi bæjarstjórnar
Vestmannaeyja um þetta efni, og
var samþykkt að vfsa því til stjórnar
og fulltrúaráðs sambandsins.
Stóriöja
Birgir ísl. Gunnarsson, formaður
ríkisskipaðrar nefndar um orkufrek-
an iðnað, ræddi um möguleika á
hagnýtingu hinnar miklu orku, sem
vannýtt er í landinu. Helztu nýt-
ingarmöguleika hennar kvað hann
vera orkufrekan iðnað. Hann ræddi
ýmsa möguleika á slíkum iðnaði á
Suðurlandi og skýrði frá undirbún-
ingi að kfsilmálmverksmiðju á
Reyðarfirði, stækkun álversins í
Straumsvík og að nýju álveri við
Eyjafjörð.
Orkunefnd og atvinnumálanefnd
fundarins ræddu báðar um orkuöfl-
un og iðnað tengdan aukinni orku-
framleiðslu.
Skorað var á Alþingi að auka
rannsóknir á háhitasvæðum Suður-
lands, og stjórn SASS var falið að
fylgja því eftir við Orkustofnun, að
lokið verði við þær tilraunaholur,
sem byrjað hefur verið á á Suður-
landi. Einnig verði stuðlað að frekari
rannsóknum Orkustofnunar á
svæðinu.
Fagnað er þeim árangri, sem
náðst hefur í iðnaðaruppbyggingu f
kjördæminu frá síðasta aðalfundi.
Er þar minnt á stofnun álsteypu á
Eyrarbakka, stofnun kertaverk-
smiðju. í vernduðum vinnustað f
Vestmannaeyjum og stofnun sölu-
sveitarstjórnarmál 229