Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Síða 40

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Síða 40
FRA LANDSHLUTASAMTOKUM Medan á fundinum stóð, aihenti Jón Porgiisson, formaður SASS, Alexander Stefánssyni, félagsmálarádherra, og Birni Fridfinnssyni, formanni Sambands ísienzkra sveitarféiaga, borð- fána samtakanna. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Hjörtur Pórarinsson, Björn Friðfinnsson, Jón Porgilsson og Ingibjörg Þorgilsdóttir. skrifstofu sunnlenzkra iðnfyrirtækja, er framleiða byggingarefni og ve'ita þjónustu í byggingariðnaði. Fundurinn telur, segir í einni ályktun fundarins, að vinna beri markvisst að iðnaðaruppbyggingu í kjördæminu, og að haldið verði áfram með þau verkefni, sem eru á vinnslustigi, svo sem kísilkarbíð, C- vítamín, hitaþolin efni, iðnaðarverk- efni í Vík og fiskeldi. Jafnframt taldi fundurinn, að leita þurfi nýrra verk- efna, sem stuðli að aukinni fjöl- breytni í atvinnulífi í kjördæminu, og að þeim fyrirtækjum, sem fyrir eru, sé gert kleift að starfa. Fundurinn beindi því til iðnaðar- ráðherra, að felldur verði niður sölu- skattur af raforku til iðnaðar. Jafn- framt var bent á nauðsyn þess, að raforkuverð til nýrra iðnfyrirtækja, sem keppa á erlendum mörkuðum, verði ekki hærra en hjá samkeppn- isaðilum þeirra. 1% af heildsöluverði raf- orku til iðnþróunarsjóðs landshlutans Aðalfundurinn beindi því til iðnað- arráðherra, að hann beiti sér fyrir löggjöf um, að orkuframleiðslufyrir- tæki greiði 1% af heildsöluverði framleiðslunnar iðnþróunarsjóði við- komandi landshluta. Benti fundur- inn á, að orkuframleiðslufyrirtæki í nágrannalöndum okkar hafi um langan aldur greitt mun hærri fjár- hæðir til sveitarfélaga eða samtaka þeirra. Fram kom í annarri ályktun at- vinnumálanefndar, að 88% af raf- orku landsins væru framleidd á fé- lagssvæði SASS, og var gerð krafa um, að á hverjum tíma væri til stað- ar nægileg raforka til nýrra fyrir- tækja. Þá var bent á hagkvæmni þess að nýta jarðgufu við framleiðslu á iðnaðarvörum, og var skorað á þingmenn kjördæmisins að útvega nauðsynlegt fjármagn, sem geri kleift að hefja nú þegar nauðsyn- legar undirbúningsrannsóknir. Rafmagn sé ekki niður- greitt til húshitunar á hita- veitusvæðum Á fundinum var fjallað um nið- urgreiðslu á rafmagni til hitunar húsa, þar sem unnt væri að tengja hús hitaveitu. Um það var gerð samhljóða svofelld ályktun: „Aðalfundur SASS 1984 lýsir yfir þeirri skoðun sinni, að varast beri að raska gjaldskrám rafmagns- veitna með niðurgreiðslu á raforku til húshitunar á þeim stöðum, sem hafa hitaveitu og jarðhiti er nægur." Fjárfestingarféiag Suðurlands Fundurinn samþykkti, að unnið yrði að stofnun Fjárfestingarfélags Suðurlands með þeim hætti, að inn- an tveggja mánaða yrði undirbún- ingi lokið, málið kynnt og boðað til stofnfundar eigi síðar en 1. október í ár. Samþykkt var að fela iðnráð- gjafa að vinna að málinu í samráði við stjórn SASS. Þá taldi fundurinn, að halda beri námskeið fyrir þá, sem hyggjast koma á fót og vilja reka eigið fyrir- tæki í kjördæminu. Níu manna atvinnumála- nefnd Ákveðið var á fundinum að koma á fót níu manna atvinnumálanefnd. Fundurinn kaus fimm þeirra, en síð- an kysi fulltrúaráð SASS tvo og stjórn Iðnþróunarsjóðs Suðurlands tvo. Nefndin kysi síðan þriggja manna verkefnishóp, er starfi með iðnráðgjafa að nýiðnaðarverk- efnum. í atvinnumálanefndina voru síðan kjörnir á fundinum Sigrún Þor- steinsdóttir, bæjarfulltrúi í Vest- mannaeyjum; Páll G. Björnsson, oddviti Rangárvallahrepps; Hörður Davíðsson, bóndi, Efrivík í Kirkjubæjarhreppi, Jón Ó. Vil- hjálmsson, verkstjóri, Selfossi, og Margrét Frímannsdóttir, oddviti Stokkseyrarhrepps, sem kosin hef- ur verið formaður nefndarinnar. Fulltrúaráð SASS hefur kosið í nefndina þá Hafstein Þorvaldsson, bæjarfulltrúa á Selfossi, og Stefán 230 SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.