Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Blaðsíða 49
INAMSKEIÐ OG RAÐSTEFNURl
Fundur um tölvumál
17. nóvember
Tölvuþjónusta sveitarfélaga held-
ur fund meö fulltrúum þeirra sveitar-
félaga, sem nota IBM 34/36 og
Wang-tölvur, í húsakynnum
Fræöslumiðstöðvar sveitarfélaga á
4. hæö aö Háaleitisbraut 11 laugar-
daginn 17. nóvember, og hefst
hann kl. 13.30.
Á fundinum verður fjallaö um
þann hugbúnað fyrir sveitarfélög,
sem til er á þessar tölvur, og um
þróun hans.
Fjármálaráðstefnan
mánudaginn 19.
nóvember
Hin árlega ráöstefna sambands-
ins um fjármál sveitarfélaga verður
haldin aö Hótel Sögu í Fteykjavík
mánudaginn 19. nóvember og
hefst kl. 9.00 árdegis. Gerð veröur
grein fyrir helztu forsendum fjár-
hagsáætlana sveitarfélaga fyrir áriö
1985, þar á meðal áhrifum launa-
breytinga vegna nýrra kjarasamn-
inga, og rætt almennt um horfur í
efnahagsmálum á næsta ári. Þá
verður fjallað um flutning á vinnslu
tölvukerfa frá Flugleiðum hf., kynnt
störf Tölvuþjónustu sveitarfélaga og
stefna hennar gagnvart einkatölv-
um (PC) og hagnýtingu minni sveit-
arfélaga á þeim.
Síðari hluta dagsins starfar ráð-
stefnan í tvennu lagi. Þá mun fulltrú-
um fjölmennari sveitarfélaganna
gefast tækifæri til að ræða nánar
áhrif launabreytinganna og um
kostnaðarhækkanir í kjölfar þeirra,
um skólarekstur og heilbrigðisþjón-
ustu, og fulltrúum strjálbýlishreppa
gefst m. a. tækifæri til þess að ræða
um kostnað við skólahald, þ. á m.
heimavistir og akstur með
skólanemendur, og fleira.
Ráðstefna um hlut-
verk sveitarfélaga
í atvinnumálum
20. og 21. nóvember
Sambandið efnir i samvinnu við
félagsmálaráðuneytið til ráðstefnu
um hlutverk sveitarfélaga ( atvinnu-
málum þriðjudaginn 20. og miðviku-
daginn 21. nóvember. Ráðstefnan
verður haldin á 4. hæð að Borgar-
túni 6 í Reykjavík.
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, mun á ráðstefnunni
gera grein fyrir stefnu ríkisstjórnar-
innar í atvinnumálum. Fulltrúar Þjóð-
hagsstofnunar og Framkvæmda-
stofnunar fjalla um mannafla- og at-
vinnuþróun komandi áratugar og
lýsa hugmyndum sínum um hlut-
verk sveitarfélaga í atvinnuþróun.
Gefið verður yfirlit um atvinnuá-
standið í hverjum landshluta, gerð
úttekt á aðgerðum sveitarfélaga og
samtaka þeirra á sviði atvinnumála
til þessa og m.a. fjallað um störf
atvinnumálanefnda, þátttöku sveit-
arfélaga í útgerð og fiskvinnslu og
um reynsluna af iðngörðum.
Talsmenn helztu atvinnugrein-
anna lýsa hugmyndum sínum um,
hvernig sveitarfélögin geti búið í
haginn fyrir einstakar atvinnugrein-
ar, og fulltrúar opinberra stofnana
og sjóða skýra frá aðstoð þeirra við
uppbyggingu fyrirtækja. Þessar
stofnanir og sjóðir eru Iðntækni-
stofnun, Rannsóknaráð ríkisins, Iðn-
lána- og Iðnþróunarsjóður, Stofn-
lánadeild landbúnaðarins og Fisk-
veiðasjóður íslands.
Gunnar Hálfdánarson, fram-
kvæmdastjóri Fjárfestingarfélags
íslands, flytur á ráðstefnunni erindi
um fjármögnun og uppbyggingu
nýrra atvinnufyrirtækja og Óskar
Hallgrímsson, deildarstjóri í vinnu-
málaskrifstofu félagsmálaráðu-
neytisins, kynnir frumvarp til nýrra
laga um vinnumiðlun.
Ákveðið er, að ráðstefna þessi sé
einnig opin öðrum en fulltrúum
sveitarfélaga. Er því nauðsynlegt,
að þátttaka sé tilkynnt með nokk-
urra daga fyrirvara til skrifstofu sam-
bandsins í síma 91-83711.
Námskeið í innheimtu
gjalda til sveitarsjóða
og stofnana þeirra
22. nóvember
í Fræðslumiðstöð sveitarfélaga á
4. hæð að Háaleitisbraut 11 verður
fimmtudaginn 22. nóvember haldið
námskeið í innheimtu gjalda til
sveitarsjóða og stofnana þeirra.
Guðmundur Vignir Jósefsson,
gjaldheimtustjóri í Gjaldheimtunni f
Reykjavík, leiðbeinir um innheimtu
hinna almennu sveitarsjóðsgjalda,
um ábyrgð og skyldur kaupgreið-
enda til þess að halda eftir af kaupi
starfsmanna og ábyrgð þeirra í því
sambandi, um útsvarsgreiðslur út-
lendinga, um gagnkvæma ábyrgð
hjóna á greiðslu gjalda, um lögtaks-
innheimtu, dráttarvexti af vangoldn-
um sveitarsjóðsgjöldum, um lög-
taksrétt og fyrningarfrest á honum.
Karl M. Kristjánsson, fjármála- og
hagsýslustjóri, og Kristján Ólafs-
son, bæjarlögmaður í Kópavogi,
fjalla um innheimtu annarra gjalda,
s.s. gatnagerðargjalds A og B, dag-
vistargjalda, sorphirðugjalda og
annarra sérgjalda, sem innheimt
eru. Ingimundur Einarsson, bæjar-
lögmaður í Hafnarfirði, kynnir sér-
staklega innheimtu gjalda til hafnar-
sjóðs. Farið verður yfir lög og reglu-
gerðir, sem snerta réttarstöðu sveit-
arfélaga varðandi innheimtu, og
sagt frá hæstaréttardómum, sem
þar koma við sögu.
Á námskeiðinu er einnig ætlunin
að fjalla um uppgjörsreglur milli
ríkis og sveitarfélaga vegna sam-
eiginlegra verkefna.
Loks verður kynnt sú þjónusta,
sem sveitarfélögum stendur til
boða hjá Innheimtustofnun sveitar-
félaga, að því er varðar innheimtu
sveitarsjóðsgjalda hjá utansveitar-
mönnum, og mun Árni Guðjónsson,
forstöðumaður hennar, kynna hana.
sveitarstjórnarmál 239