Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.03.2003, Blaðsíða 16

Sveitarstjórnarmál - 01.03.2003, Blaðsíða 16
Sveitarfélagið Ölfus Miklir möguleikar í landrýminu Miklar framkvæmdir eru fyrirhugaðar í Sveitarfélaginu Ölfusi á næstunni. Auk stórátaks í hafn- armálum er hafinn undirbúningur að byggingu allt að 50 nýrra íbúða í Þorlákshöfn og Orku- veita Reykjavíkur er að undirbúa framleiðslu á hágæðalíni úr hör sem ræktaður er á ökrum á Suður- og Vesturlandi. Orkuveita Reykjavíkur er að hefja undir- búning að starfsemi feygingarstöðvar við Þorlákshöfn. Feyging felst í því að línþræðir eru losaðir úr stilk hörplöntunnar og síðan seldir til spunavinnslu á erlendum mörkuð- um. Vinnslan fer fram með þeim hætti að hörinn er feygður í heitu vatni en þá leysist náttúrlegt lín sem auðvelt er að losa úr stilkunum eftir að þeir hafa verið þurrkaðir. í fyrsta áfanga er ætlunin að reisa aðstöðu til að feygja um 500 tonn af hör en hann hefur verið ræktaður á Suður- ogVestur- landi og var uppskera tekin af um 80 hekt- ara landssvæðum á liðnu sumri. Ætlunin er að rækta hör á allt að 450 hekturum lands í framtíðinni og gert er ráð fyrir að fá þannig um þrjú þúsund tonn af hráefni til fram- Starfsmenn Sveitaríélagsins Ölfuss sem staddir voru í höfuðstöðvum þess þegar tíðindamann bar að garði. Frá hægri: Ólafur Áki Ragnarsson bæjarstjórí, Davíð Halldórsson garðyrkjustjóri, Indriði'Kristinsson hafn- arstjóri, Kristinn Kristinsson félagsmálastjóri og Guðni Pétursson bæjarritari. Atvinnulífið í Þorlákshöfn einkennist annars vegar af útvegsstarísemi og hins vegar af þjónustu. Á myndinni magn af áburði til sunnlenskra bænda fer um Þorlákshöfn. lengst til hægri er stafli af áburðarsekkjum en mikið leiðslunnar. Ætlað er að afkastageta verksmiðjunnar verði komin í um sex þúsund tonn innan þriggja ára. Hágæðalín er einkum notað í fatnað, teppi og klæðningar í innréttingum ökutækja. Gert er ráð fyrir þremur stöðu- gildum við framleiðslu verk- smiðjunnar á fyrsta ári en að þau verið um 15 þegar starf- semin verður komin í fullan gang. Fiskeldi og ferðaþjón- usta Um 1.740 manns búa í Sveitarfélaginu Ölfusi. Þar af búa um 1.350 manns í Þorlákshöfn en aðrir íbúar þess búa annað hvort í dreifbýli eða Árbænum, þéttbýliskjarna á vesturbakka Ölfusár gegnt Selfossi. Landbúnaður var stundaður í dreifbýli Ölfussins en að sögn Ólafs Áka Ragnarsonar bæjarstjóra hefur hefðbundinn búskapur að mestu horfið á undanförnum árum. Byggðin hefur þó ekki dregist verulega sam- an og hafa íbúarnir fundið sér önnur viðfangsefni. Ólafur Áki segir að ferðaþjónusta fari ört vaxandi og einnig sé talsvert um að fólk búi á sveitabæjum en starfi að öðru en búskap, enda stutt til næstu þéttbýlis- staða og aðeins um hálfrar klukkustundar akstur til höfuðborgar- svæðisins. Nokkurt fiskeldi er stundað í Ölfusinu og nú er verið að hefja „Við höfum orðið vör við áhuga fólks á að setjast hér að og viljum gefa fólki tækifæri á að koma hingað og skapa sér heimili til frambúðar," segir Ólafur Áki Ragnarsson. 16

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.