Sveitarstjórnarmál - 01.11.2003, Blaðsíða 15
einföldun frá því kerfi sem notað er í dag. „Við erum með 35
ökuleiðir en sjáum fyrir okkur að þær verði 15 eða 16 í nýja
leiðakerfinu. Því kerfi er ætlað að halda mun betur utan um
meginstraumana í farþegaflutningunum. Nýja leiðakerfið er unnið
í Ijósi umfangsmikillar ferðavenjukönnunar frá árinu 2002 auk
þess sem við höfum atvinnu-
og búsuetuskiptingu alls svæð-
isins til hliðsjónar. Áþreifanleg-
asta breytingin á leiðakerfinu
verður að við munum laga
framboð ferða að þeirri eftir-
spurn sem raunverulega er fyrir hendi. Með öðrum orðum að
ferðatíðni á álagstímum verður aukin en færri ferðir verða farnar
utan þeirra. Ferðum hálftómra vagna fram og aftur um gatnakerfi
höfuðborgarsvæðisins á því að fækka og þær eiga helst að hverfa.
Álagstímarnir eru fyrst og fremst á morgnana og aftur upp úr
klukkan 15:00 síðdegis og fram til á bilinu á milli klukkan 18:00
og 18:30. Við munum veita ákveðna grunnþjónustu allan daginn
en hins vegar leggja mun meiri áherslu á ferðatíðni á þessum
tveimur álagstímum."
Lestarstrætó
„Nýja leiðakerfið verður annars vegar byggt upp af sérstökum
stofnbrautum en hins vegar af safnleiðum inn á stofnbrautirnar.
Þessi hugmynd kallast „Think train, drive bus" á ensku eða stræt-
isvagnaferðir byggðar á hugmynd um lestarkerfi. Eins konar lest-
arstrætó. Við erum að skipuleggja fimm safnleiðir út frá hug-
myndum um skipulagningu lesta- eða sporvagnaferða. Þessar
leiðir verða tiltölulega beinar og greiðfarnar og munu kemba öll
nágrannasveitarfélögin og úthverfi Reykjavíkurborgar inn til mið-
borgarinnar. Þannig náum við utan um meginstraumana í ferða-
mynstrinu. Tillaga okkar um nýtt leiðakerfi gerir ráð fyrir að enda-
stöð fyrir þessar fimm stofn-
brautir verði ÍVatnsmýrinni þar
sem BSÍ er með höfuðstöðvar
og þar sem miðstöð almenn-
ingssamgangna á landsvísu er
fyrirhuguð. Með slíkum höfuð-
stöðvum koma saman endastöðvar strætisvagna og hópferðabíla,
sem flytja farþega í áætlunarferðum og öðrum hópferðum út um
land, og einnig flugrútunnar, sem annast almenningssamgöngur
við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þarna er biðstöð leigubíla og ætl-
unin er að koma upp aðstöðu fyrir hótelin til þess að staðsetja
minni fólksflutningabíla eða svokallaðar „hótelskutlur" til að
flytja fólk, sem kemur erlendis frá eða utan af iandi til hótel-
anna."
Samþættar almenningssamgöngur
Ásgeir segir að í dag skorti alla samtengingu á milli mismunandi
tegunda almenningssamgangna. „Flugrútan er ágætt dæmi um
það vegna þess að sá sem kemur með henni frá Keflavíkurflug-
velli verður strandaglópur á leiðarenda hennar f dag við Hótel
Loftleiðir á Reykjavíkurflugvelli. Sömu sögu er segja af rútuferð-
um sem enda við BSÍ. Tillögur okkar hjá Strætó bs ganga meðal
„Viðtekið viðhorf hér er því miður það að Strætó
sé eitthvað sem fólk notar aðeins þegar allar aðrar
bjargir eru bannaðar. Þessu viljum við breyta."
Mikil uppbygging á öllum sviðum
íbúðarlóðir í þéttbýli og dreifbýli
Fjölskylduvænt samfélag
Fjölbreyttir atvinnumöguleikar
Góðir skólar, gott mannlíf
Blómstrandi menning
Miðstöð verslunar og þjónustu
Samgöngur eins og best gerist
Veðursæld í fögru umhverfi
hvert cetlar pú?
15