Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.11.2003, Blaðsíða 21

Sveitarstjórnarmál - 01.11.2003, Blaðsíða 21
Hliðið að landshlutanum Nokkur samdráttur hefur orðið í hefðbundnum greinum land- búnaðar á svæðinu; mjólkurframleiðslu og sauðfjárrækt, en menn hafa verið að þreifa fyrir sér í þeim greinum sem kalla mætti óhefðbundnar. Þar má meðal annars nefna skógrækt, fas- hanarækt og ferðaþjónustu. Þvf fer þó fjarri að sögn Eiríks að landbúnaðurinn sé að hverfa. Öflug bú séu í fullum rekstri. Dæmi um það mátti meðal annars sjá meðfram flugbrautinni á Egilsstöðum þar sem bleikt kornið á akri Egilsstaðabóndans bærðist í golu þegar tíðindamann bar að garði með kvöldfluginu frá Reykjavík síðla sumars. Eiríkur ræddi nokkuð um flugvöllinn og sagði alveg Ijóst að Egilsstaðaflugvöllur væri eitt af akkerun- um í samfélaginu á Héraði. Forsvarsmenn stofnana ríkisins og einnig margra fyrirtækja innlendra og erlendra, með starfsemi á Austurlandi, hafi bent á að flugvöllurinn sé hliðið að þessum landshluta. Samgöngur með flugi hafa líka aukist verulega og nú hefur í fyrsta skipti verið fjölgað áætlunarferðum Flugfélags ís- lands á milli Egilsstaða og Reykjavíkur á milli sumar og vetrará- ætlunar. Einnig er búið að tengja Egilsstaði betur við útlönd með áætlunarflugi LTU á sumrin og beinu flugi Flugfélags íslands til Keflavíkur. „Nú er það af sem áður var þegar nánast var hægt að ganga beint inn í flugvél án þess að bóka fyrirfram. Nú er vissara að at- huga hvort eitthvert sæti er laust áður en maður heldur á flug- völlinn," sagði Eiríkur B. Björgvinsson bæjarstjóri að lokum. ilí YKJAViX HAFNARFIRÐI ÍNKUHS-Viíli Klettagörðum 12 104 Reykjavík slmi 575 0000 fax 575 0010 www.sindri.is Strandgötu 75 220 Hafnarfirði sími 565 2965 fax 565 2920 www.sindri.ls Draupnisgötu 2 603 Akureyri sími 462 2360 fax 462 6088 www.slndri.is liPII Glerveggir frá Mabglas Skandinavien Ýmsar útfærslur • Rennihurðir • GlerveF Xd i Felliveggir • Öryggisgler SIINIORI

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.