Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.11.2003, Qupperneq 19

Sveitarstjórnarmál - 01.11.2003, Qupperneq 19
Eiríkur B. Björgvinsson bæjarstjóri og Soffía Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar Austur-Héraðs. lengra tímabili eða hátt í 200 manns á ári að jafnaði." Eiríkur segir að stjórnendur sveitarfélagsins verði að draga ákveðnar ályktanir af því sem þegar hafi orðið. Áður en virkjunarframkvæmdirnar voru ákveðn- ar hafi verið áætlað að íbúum fjölgaði um 30 á árinu. Því markmiði hafi hins vegar verið náð á fyrri helmingi ársins. „Þessi snögga fjölgun hefur orðið þess valdandi að við þurfum stöðugt að endurstilla kúrs- inn og endurskoða markmiðin varðandi íbúaþróunina." Stöndum á tánum „Já - það er rétt. Við stöndum raunveru- lega á tánum út af þeirri þjónustu sem við verðum að búa okkur undir að veita og eðlilegt er að sveitarfélög veiti íbúum sín- um. Það kallar vissulega á miklar fram- kvæmdir af hálfu sveitarfélagins. Sex ára áætlunin gerir ráð fyrir að fjárfestingar, sem við þurfum að fara út í vegna fólks- fjölgunar og aukinnar þjónustu, verði um 1.600 milljónir króna. Þar er bæði um lögbundin verkefni sveitarfélaga að ræða og einnig önnur verkefni sem ekki eru beinlínis bundin í lög en nauðsynlegt að fara út í frá siðferðilegum sjónarhóli til þess að geta veitt þá þjónustu sem við teljum að þurfi vera fyrir hendi, við viljum veita íbúunum og þeir gera kröfu um. Hér er helst að nefna byggingu menningarmið- stöðvar, stjórnsýsluhúss og íþróttamann- virkja." Eiríkur segir að eitt af stóru verk- efnunum sé fráveitumál sveitarfélagsins sem þurfi að vera búið að bæta úr til frambúðar á árinu 2005. Einnig er eðlilegt að nefna stækkun grunnskóla og leikskóla. Hann segir að nemendum grunnskólans á Egilsstöðum hafi fjölgað um 25 frá liðnu vori og fram til þess að skólinn hóf störf að hausti. „Við urðum að bregðast við því með þeim hætti að byggja þrjár lausar kennslustofur, sem auðvitað eru einungis til bráðabirgða. Slíkt hefur ekki verið gert hér fyrr þótt slíkar bráðabirgðalausnir séu vel þekktar frá ýmsum öðrum stöðum." Um 230 sóttum um 35 lóðir Eiríkur segir sterkustu vísbendinguna um ÆHB i\raH maritech Upplýsingakerfi fyrir sveitarfélög Maritech býður upp á fjölda sérlausna fyrir minni og stærri sveitarfélög sem byggja á MBS Navision. Meðal kerfiseininga eru: * Fjármálastjóri * Félagsmálastjóri * Fasteignastjóri * Eignakerfi * Skönnun reikninga * Skuldabréfakerfi Áhaldahússstjóri Dagmömmukerfi Skólastjóri Tónlistarskólastjóri Leikskóli til framtíðar OLAP greiningar Maritech ehf. hefur sérhæft sig í þjónustu og þróun á upplýsingakerfum fyrir sveitarfélög á íslandi Nánari upplýsingar veitir söludeild Maritech. Sími 545 3200 sala@maritech.is www.maritech.is 19

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.