Sveitarstjórnarmál - 01.11.2003, Side 31
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra ávarpaði ársfund Hafnasambandsins.
eðlilegar tekjur. „Er augljóst að þar er arf-
ur þess tíma þegar útgerðin taldi sig eiga
að hafa aðgang að fjármunum úr ríkissjóði
til þess að skapa hafnaraðstöðu án þess að
fyrir þá fjárfestingu fengist eðlilegur arður
sem nýttist til þess að reka hafnirnar og
byggja þær upp," sagði samgönguráð-
herra. Sturla sagði að ótrúlegar skeyta-
sendingar útvegsmanna á ársfundi þeirra
vektu ekki miklar vonir um að í þeim her-
búðum megi finna skilning á þörfum hafn-
anna til eðlilegra tekna. Sá tónn sem þar
hafi verið gefinn færi sér heim sanninn
um hversu mikil ástæða hafi verið til þess
að styrkja löggjöf um hafnir og skapa
þeim betra svigrúm til rekstrar í breyttum
heimi viðskiptanna. Sturla sagði að sér
hafi verið Ijóst að það myndi víða hvessa
þegar lögin tækju gildi og kvaðst jafnframt
viss um að öllum stormum
hafi ekki slotað og að tölu-
verður tími muni líða þangað
til að nýtt jafnvægi komist á.
Hann sagði mikinn misskiln-
ing í gangi hjá samtökum út-
gerða um gjaldskrá hafnanna
og ákvæði hafnalaga sem lúta
að heimild til gjaldtöku fyrir þjónustu
hafnanna. Ein af forsendum hafnalaganna
sé að gjaldskráin verði gefin frjáls og hafn-
irnar megi semja um gjaldtöku við við-
skiptavini. í ákvæði til bráðabirgða sé hins
vegar gert ráð fyrir að samgönguráðherra
gefi út gjaldskrá sem gildi fyrsta árið.
Engin hafnarlög í Færeyjum
Jonsvein Lamhauge, hafnarstjóri í Færeyj-
um, flutti erindi á ársfundi Hafnasam-
bands sveitarfélaga. Hann fjallað um hafn-
ir í Færeyjum, uppbyggingu þeirra og
starfsumhverfi. Færeyskar hafnir eru í eigu
sveitarfélaga en athygli vakti
að engin hafnalög eru til í Fær-
eyjum. Sagði Jonsvein að þó
væri farið að ræða um nauð-
syn þess að skapa hafnastarf-
seminni ákveðið lagaumhverfi.
í Færeyjum eru einkum þrjár
tegundir hafna eða þrenns
konar starfsemi í höfnunum, vöruhafnir,
fiskihafnir og ferjuhafnir.
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sagði mik-
inn misskilning í gangi hjá samtökum útgerða um
gjaldskrá hafnanna og ákvæði hafnalaga sem lúta
að heimild til gjaldtöku fyrir þjónustu hafnanna.
Ráðstefna um
orkumál
Evrópsk ráðstefna um aðgerðir sveitar-
stjórna í orkumálum verður haldin í
Brússel í Belgíu og á Netinu dagana
26.-27. nóvember. Ráðstefnan í Belgíu
er aðeins ætluð stofnunum í aðildar-
ríkjum Evrópusambandsins og sam-
starfsríkjum þess en aðrir eiga þess
kost að sækja ráðstefnuna yfir internet-
ið. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna
er að finna á slóðinni www.mana-
genergy.net og dagskrána má finna á
slóðinni www.managenergy.net/con-
ference/2003.html/fprogramme.
Hverfisvæn leið
í gegnum Grundarfjörð
Frá því er sagt á vef Grundarfjarðarbæj-
ar, www.grundarfjordur.is, aðVegagerðin
hafi, í samvinnu við Verkfræðistofuna
VST, unnið að hönnun svokallaðrar
hverfisvænnar leiðar í gegnum Grundar-
fjörð undanfarin misseri.
Tillaga að breyttum umferðamann-
virkjum á Grundargötu liggur nú fyrir og
var af því tilefni boðað til kynningar-
fundar þar sem fyrirliggjandi tillögur
voru kynntar.
Fjölbraut í fullum undirbúningi
Grundfirðingar hafa, í samvinnu við fleiri
sveitarfélög á Snæfellsnesi, unnið ötul-
lega að undirbúningi þess að komið
verði á fót fjölbrautaskóla í Grundarfirði.
Unnið hefur verið að deiliskipulagi lóðar
fyrir skólann en gert er ráð fyrir um
5.900 fermetra lóð fyrir skólann og
tengda starfsemi. Miðað er við að húsið
verði einnar hæðar og standi við Grund-
argötu en að auki verði jarðhæð undir
húsinu að hluta.
Hágæða síur
verja dýrmætan vélbúnað
VÉLASALAN
Ananaust 1, Reykjavík. Sími 580 5300. Fax 580 5301. Netfang: velasalan@velasalan.is Veffang: http://www.velasalan.is
31