Sveitarstjórnarmál - 27.10.2005, Síða 8
Sameiningarkosningarnar
þeirra, sem tóku þátt í kosningunni í öll-
um sjö sveitarfélögunum, var samþykkur
sameiningunni eða 640 manns á móti
528 og verður því kosið aftur í þeim fjór-
um sveitarfélögum sem sögðu nei. Tillaga
um sameiningu Þórshafnarhrepps og Sval-
barðshrepps í Norður-Þingeyjarsýslu var
samþykkt í Þórshafnarhreppi en felld með
afgerandi hætti í Svalbarðshreppi.
Samþykkt á Mið-Austurlandi
íbúar Mið-Austurlands samþykktu tillögu
um sameiningu fjögurra sveitarfélaga. Um
var að ræða sameiningu sveitarfélaganna
Fjarðabyggðar, Austurbyggðar, Fáskrúðs-
fjarðarhrepps og Mjóafjarðarhrepps og
mun sameiningin ganga í gildi að loknum
sveitarstjórnarkosningum næsta vor.
íbúar Skeggjastaðahrepps samþykktu
að sameinast Vopnafjarðarhreppi í kosn-
ingum um sameiningar sveitarfélaga en
íbúar Vopnafjarðarhrepps höfnuðu henni.
Fellt í Árnessýslu
Tillaga um sameiningu sex sveitarfélaga í
Ölfusi og Flóa var felld í öllum sveitarfé-
lögunum. Mest andstaða við sameining-
una var í Ölfusinu, þar sem tæp 93%
þeirra sem atkvæði greiddu voru á móti.
Tillaga um sameiningu fjögurra sveitarfé-
laga í uppsveitum Árnessýslu var sam-
þykkt í Bláskógabyggð og í Skeiða- og
Gnúpverjahreppi en felld í Hrunamanna-
hreppi og Grímsnes- og Grafningshreppi.
Mestur stuðningur var í Bláskógabyggð en
mest andstaða í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi. Meirihluti þeirra sem kusu í
þessum fjórum sveitarfélögum hafnaði
tillögunni og er niðurstaðan því endanleg,
þó tvö sveitarfélög hafi samþykkt tillög-
una.
Kosið á ný þann 5. nóvember nk.
Enn er möguleiki á sameiningu í Suður- og Norður-Þingeyjarsýslum en ekki er búist við að sam-
einingartillagan verði samþykkt í Reykhólahreppi þegar gengið verður aftur til kosninga þann 5.
nóvember nk.
Sameiningarkosningar verða endurteknar
í fimm sveitarfélögum og munu kosningar
fara fram þann 5. nóvember nk. Fjögur
þessara sveitarfélaga eru í Þingeyjarsýsl-
um, Aðaldælahreppur, Kelduneshreppur,
Skútustaðahreppur og Tjörneshreppur. Þar
verður kosið aftur um sameiningu við
Húsavíkurbæ, Öxarfjarðarhrepp og Rauf-
arhafnarhrepp. Einnig munu íbúar Reyk-
hólahrepps greiða atkvæði að nýju um
sameiningu við Dalabyggð og Saurbæjar-
hrepp.
Jón Heiðar Steinþórsson, oddviti Tjör-
neshrepps, segir að aðeins hafi munað
þremur atkvæðum íTjörneshreppi og því
erfitt að spá um úrslitin. Sameiningin var
felld með tæpum 76% í Aðaldælahrepp
og á Ólína Arnkelsdóttir, oddviti Aðal-
dælahrepps, alveg eins-von á því að svo
fari aftur. Rúmlega 65% fbúa Skútustaða-
hrepps voru andvíg sameiningu en Guð-
rún María Valgeirsdóttir, oddviti Skúta-
staðahrepps, segir að það liggi engin ein
ástæða að baki þess. „Sumir setja vega-
lengdina til Raufarhafnar fyrir sig, aðrir
fjárhagsstöðu Húsavíkurbæjar og svo
framvegis." Hún segir að ekki verði
haldnir fleiri kynningafundir, en þess í
stað verður fólki boðið að koma og ræða
þessi mál við sveitarstjórnina.
Eitt atkvæði skildi að
Aðeins munaði einu atvæði að tillagan
yrði samþykkt í Kelduneshreppi en kjör-
sókn þar var tæp 72%. Katrín Eymunds-
dóttir, oddviti hreppsins, segir að haldinn
verði annar kynningafundur og allt gert til
að ýta við mönnum. „Við ætlum að reyna
að koma þessari sameiningu í gegn. Það
er nauðsynlegt að Þingeyingar styrki
stöðu sína og komi fram sem ein heild.
Þetta er framtíðin en það virðist vera ein-
hver hræðsla í gangi sem vinna verður
bug á", segir Katrín og er bjartsýn á sam-
einingu.
Of langt í alla þjónustu
Sem kunnugt er kolfelldu íbúar Reykhóla-
hrepps tillöguna því tæp 69% kjósenda
lýstu sig andvíg sameiningu. Þar sem íbú-
ar Dalabyggðar og Saurbæjarhrepps sam-
þykktu sameininguna og meirihluti þeirra
íbúa sem tók þátt í kosningunum í sveit-
arfélögunum þremur samþykkti samein-
ingu verður íbúum Reykhólasveitar gefinn
kostur á því að segja hug sinn til hugsan-
legrar sameiningar að nýju. Sveitarstjór-
inn, Einar Örn Thorlacius, á alveg eins
von á því að tillagan verði felld aftur.
„Munurinn var það mikill síðast. Það var
kosið um sömu tillöguna árið 2002 og þá
sögðu 65% nei. Andstaðan hefur því auk-
ist milli ára. Fólki finnst of langt að þurfa
að sækja alla þjónustu til Búðardals, sem
eru 75 km í burtu. Það væri nær að
stjórnsýslan yrði staðsett í Hólmavík.
Vegalengdin þangað verður aðeins 45 km
þegar nýi vegurinn verður tekinn í notkun
árið 2008."
Kelduneshreppur er einn þeirra sveitarfélaga þar sem kosið verður að nýju 5. óvember n.k. en aðeins
munaði einu atkvæði að tillagan yrði samþykkt. Myndin er frá Vogum f Kelduhverfi.
8
TÖLVUMIÐLUN
H-Laun SFS